Síða 1 af 1

Tölvan ætíð að frjósa...

Sent: Þri 11. Mar 2014 20:17
af bjartman
Sælir

Er í pínu furðulegum vandræðum, á vinnustaðnum mínum sem er nokkuð upp í sveit er einn tengill
sem allar tölvur frosna á. Er búinn að skipta þrisvar um tölvu á þessum stað en þær frosna alltaf af og til,
en eins og alltaf þá frýs þetta ekki hjá mér. Veit reyndar að rafmagnið á þessum stað er pínu flöktandi,
þetta hinsvegar gerist bara á þessum stað. Dettur ykkur eitthvað í hug?

Re: Tölvan ætíð að frjósa...

Sent: Þri 11. Mar 2014 20:21
af MrSparklez
Virka tölvurnar 100% annarstaðar ? Ef svo þá er þetta alveg örruglega rafmagnið eins og þú segir.

Re: Tölvan ætíð að frjósa...

Sent: Þri 11. Mar 2014 21:34
af trausti164
Þetta er örugglega bara rafmagnið.
En á góðri íslensku segir maður að hlutir frjósi, ekki frosni og ef að maður breytir um kyn og fall þá frjósa tölvur.
Þessi ákveðna villa pirrar mig óendanlega mikið, sorrý.

Re: Tölvan ætíð að frjósa...

Sent: Mið 12. Mar 2014 00:31
af Minuz1
setja varaaflgjafa þarna