Síða 1 af 1

Ghosting with LCD

Sent: Fös 15. Okt 2004 23:03
af Woods
hver er besta aðferðin við að finna út hvort skjárinn Ghosti ??


thx


ER það 3Dmark ,Unreal eða eitthvað annað ?

Sent: Fös 15. Okt 2004 23:52
af Voffinn
Besta aðferð sem menn vita um til að sjá hvort um að er að ræða draugagang í tölvuhlutunum sínum er að láta stafrænamyndavél fylgjast með þeim yfir nótt. Ef tölvuhluturinn (í þessu tilviki LCD skjár) fer að birta óhuggulegar myndir eða skrýtna liti má telja að umtalaður hlutur sé með yfirnáttúrulega krafta.

Menn hafa viljað benda á það að tölvuvörur sem eru keyrðar á hærri spennu en þær eru gerðar fyrir eiga það meira til að vera með draugagang þegar slökkt er á þeim á næturnar en ella. Þess vegna er ekki mælt með að kaupa tölvuvörur frá USSR þar sem þeir eru að nota 200W spennukerfi (og hafa menn verið að koma með þetta heim og keyra þetta á 230W og afleiðingarnar hafa verið skelfilegar).

Einkennin fyrir því að það sé draugagangur í tölvuvörunum geta verið margvísleg, allt frá því að t.d. skjáir birta skrýtnar myndir óumbeðið til þess að hljóðkort farið að syngja 3. sinfóníur Betófens eða dans valkyrjanna. Einnig man ég eftir atviki þar sem frægur CS'ari vaknaði með músina sína á milli lappanna á sér eða þá þegar gumol (okkar kæri þráðstjóri) lenti í því að vatnið í vatnskælingunni hjá sér varð rautt.

Neðsta línan: Taktu enga sjénsa, tölvuherbergi sem reimt er í getur verið dauðagildra á næturnar.

Að lokum er þess að geta að þetta er föstudagspóstur. Lesandi sem tekur alvarlega eitthvað sem í því stendur gerir það algerlega á eigin spýtur.

Sent: Fös 15. Okt 2004 23:58
af Vilezhout
já ég lenti einu sinni í að það var móri í hljóðnemanum mínum

Sent: Lau 16. Okt 2004 00:12
af Sveinn
Spookeyyyy

Sent: Lau 16. Okt 2004 00:18
af gumol
Lendi oft í því að það er einhver draugur sem tekur blíantana mína. Svo finn ég þá á gólfinu fyrir framan tölvuna.

Sent: Lau 16. Okt 2004 00:25
af Woods
Vilezhout skrifaði:já ég lenti einu sinni í að það var móri í hljóðnemanum mínum

ja það er gaman að vera fyndinn en þráðstjórar hvað svo sem það er ?

vita þeir þetta ekki

Sent: Lau 16. Okt 2004 00:30
af gnarr
prófaðu að horfa á skjáinn... þá sérðu kanski drauginn!

Sent: Lau 16. Okt 2004 01:28
af Pandemic
ég var sofandi einu sinni og þá byrjaði helvítis tölvan að blasta Korn það er sko spooky

Sent: Lau 16. Okt 2004 02:24
af Zkari
Maybe she just likes KoRn?

Re: Ghosting with LCD

Sent: Lau 16. Okt 2004 11:40
af Tristan
Woods skrifaði:hver er besta aðferðin við að finna út hvort skjárinn Ghosti ??

ER það 3Dmark ,Unreal eða eitthvað annað ?
Held að eitt application segi ekki alla söguna, verður að skoða heildina t.d. hvað þú notar vélina mest í, væri best bara að fara með vélina og fá að plögga í viðkomandi LCD skjá. Geta verið fleiri vandamál með LCD skjái en "ghosting" sbr. þetta review á Shuttle XP17 http://www.anandtech.com/displays/showd ... i=2140&p=6 .

Þó vissulega segi hraður FPS leikur eins og UT2004 eitthvað ;)

Sent: Lau 16. Okt 2004 13:06
af Pandemic
Eini leikurinn sem ég sé þetta í er Battlefield Vietnam en t.d þegar ég er í Quake 3 á fullu sé ég ekkert