Síða 1 af 1

CPU Bottleneck á skjákort

Sent: Mið 19. Feb 2014 12:02
af capteinninn
Er með i3 örgjörva, 12gb ram og 460 skjákort og var að spá að uppfæra í 660 kort ( http://www.att.is/product/msi-geforce-n ... ing-2048mb" onclick="window.open(this.href);return false;).

Myndi ég græða lítið á því með svona lélegan örgjörva?

Ætti ég frekar að taka 760? Er mikill munur?

Ætla að uppfæra meira seinna og kaupa nýtt móðurborð og örgjörva en væri til í að sjá aðeins betri gæði og byrja bara á skjákorti.

Er ekki við tölvuna og myndi setja inn meiri upplýsingar ef ég hefði þær.

Re: CPU Bottleneck á skjákort

Sent: Mið 19. Feb 2014 12:39
af FreyrGauti
Færi í 760, mun öflugra en 660. i3 ætti alveg að vera góður í flesta leiki þessa stundina.

Re: CPU Bottleneck á skjákort

Sent: Mið 19. Feb 2014 13:46
af MrSparklez
Taktu frekar 760, það er STÓR munur á því og 660, hvernig i3 ertu annars með ?

Re: CPU Bottleneck á skjákort

Sent: Mið 19. Feb 2014 14:35
af capteinninn
Þetta er eldri týpa af i3 sem er hætt að selja móðurborð fyrir, man ekki töluna. Ég set það inn í kvöld. Ég tek þá frekar 760 ég ég fer í þetta

Re: CPU Bottleneck á skjákort

Sent: Mið 19. Feb 2014 15:58
af littli-Jake
Hætt að selja fyrir? Hvaða socekt ertu með :/ ?

Re: CPU Bottleneck á skjákort

Sent: Mið 19. Feb 2014 16:33
af Revenant
Ef þú vilt ekki eyða mjög miklum pening þá var nvidia að gefa út nýja útgáfu af 750 / 750 Ti sem lookar ágætlega (verð í BNA: $150).

Re: CPU Bottleneck á skjákort

Sent: Mið 19. Feb 2014 17:21
af capteinninn
To hell with it, kom við í Computer.is og keypti Gigabyte 760 kortið hjá þeim.

Þakka ráðleggingarnar!

Re: CPU Bottleneck á skjákort

Sent: Mið 19. Feb 2014 18:46
af vikingbay
Hvernig gengur þetta síðan?
Er örgjörvinn eitthvað að draga þetta?

Re: CPU Bottleneck á skjákort

Sent: Mið 19. Feb 2014 19:15
af capteinninn
vikingbay skrifaði:Hvernig gengur þetta síðan?
Er örgjörvinn eitthvað að draga þetta?
Ja hreinskilnislega sagt þá er ég ekki viss hvernig ég prófa það.

Er búinn að prófa að spila Battlefield 4 og ég fór úr 30-40 fps í 90-100 fps þótt ég hækkaði allt í high-ultra hjá mér.
Mjög mikill munur á grafíkinni eftir þetta.
Næsta skref er bara að kaupa nýtt móbo og CPU en það bíður aðeins.

Annars er tölvan líka miklu hljóðlátari eftir þetta, greinilegt að 660 kortið er með frekar ofvirka viftu

Re: CPU Bottleneck á skjákort

Sent: Mið 19. Feb 2014 19:54
af MrSparklez
capteinninn skrifaði:To hell with it, kom við í Computer.is og keypti Gigabyte 760 kortið hjá þeim.

Þakka ráðleggingarnar!
Ekki málið og gangi þér vel með þetta ! :D