Síða 1 af 1

Hvorn kassan eða hvaða? Silencio 550 vs Carbide 330R

Sent: Þri 04. Feb 2014 18:37
af Fumbler
Hvað segiði, einhverjar reynslu sögur. Þessa kassa eða einhverja aðra, hafa hljóð einangrunina eða ekki.
Hvor kassan á ég að velja Silencio 550 vs Carbide 330R
http://tl.is/product/silencio-550-hljodeinangradur" onclick="window.open(this.href);return false; vs http://tl.is/product/carbide-330r-svartur" onclick="window.open(this.href);return false;
Verð með tölvuna sem ég er með hér fyrir neðan og í undirskriftinni í kassnum.
PRIME_BBCODE_SPOILER_SHOW PRIME_BBCODE_SPOILER: Tölvan mín
Móðurborð: Gigabyte GA-MA78GPM-DS2H
Örgjörvi: AMD Athlon II X4 630 2,8GHz Socket AM3
Örgjörvakæling: Retail
Skjákort: MSI nVidia 560 GTX-Ti Twin Frozr II 1024 MB GPU-Z Validation
Vinnsluminni: 2x2GB OCZ DDR2-800 + 2x2GB Corsair DDR2-800 = 8GB
SSD: OCZ Vertex 3 120GB
HDD: Samsung 400GB + Samsung 2TB
Líklega annað móðurborð og 16GB af DDR3

Re: Hvorn kassan eða hvaða? Silencio 550 vs Carbide 330R

Sent: Þri 04. Feb 2014 18:45
af Tesy
Voða svipaðir. Myndi persónulega taka 330R frekar bara útaf því að mér finnst hann flottari :P Silencio 550 á eftir að picka upp fullt af fingraför.
Getur samt sparað þér 1-3k hjá att.
http://www.att.is/product_info.php?cPat ... 26d94c0f9a" onclick="window.open(this.href);return false;
http://www.att.is/product_info.php?cPat ... 26d94c0f9a" onclick="window.open(this.href);return false;

Re: Hvorn kassan eða hvaða? Silencio 550 vs Carbide 330R

Sent: Þri 04. Feb 2014 19:50
af kusi
Ég er með Silencio 650 sem lítur út fyrir að vera svipaður og þessi 550.

Ég held að þetta sé klárlega hljóðlátasta tölva sem ég hef átt en ég veit ekki hversu mikið það er kassanum að þakka. Það háværasta í henni er aflgjafinn sem er einhver Coolermaster silent pro sem mætti gjarnan vera lágværari. Örgjörvaviftan er Gentle Typhoon ( http://www.kisildalur.is/?p=2&id=2004" onclick="window.open(this.href);return false; ) sem dólar sér vanalega hljóðlaus á ~800 rpm. Vifturnar sem fylgdu með er hljóðlátar svo lengi sem ég hef innbyggðu viftustýringuna stillta á lágmarkssnúning. Í henni eru svo 2x 7200 sn. diskar sem ég tek ekki eftir.
Ég bý út í sveit og það er óhætt að segja að það séu ekki mikil umhverfishljóð. Ég heyri eingöngu lítillega í tölvunni.

Varðandi kassann sem slíkan þá finnst mér hann ágætur að mörgu leiti. Hann er þungur, massífur og í stærra lagi en þó ekki of stór. Virðist vel smíðaður. Það truflaði mig fyrst að það væri lok yfir tökkunum ofaná en núna finnst mér það fínt því þá safna portin ekki ryki, ljósin trufla ekki og það er minni hætta á skemmdum ef íbúar heimilisins sulla einhverju niður á hann (ég hef þurft að þurrka eitthvað óþekkt klístur ofan af þessu loki). Með honum fylgdi fullt af drasli og það er hægt að plögga 2.5" SSD beint í hann. Ég hef ekki orðið var við að kassinn safni kámi en 650 er svosem með einhverskonar álhurð en ekki glansplasti.

Ókostir kassans eru að mínu mati að það er erfitt að leggja snúrur snyrtilega í honum. Mér finnst lítið pláss fyrir þær á bakhliðinni, mögulega út af hljóðeinangruninni. Eftir stuttan tíma fóru að koma víbríngshljóð frá hurðinni framaná þar sem gúmmíið á milli var ekki að gera sitt gagn. Ég braut saman smá pappír og lagði á milli og það lagaði hljóðið en er ekki smekkleg lausn. Tvö harðadiskaslot eru frátekin fyrir einhvern "ræsidiska skiptir" þar sem hægt er að færa takki fram og til baka til að skipta milli harðadiska - einhverskonar non-hotplug SATA switch sem hljómar meira eins og íhluta steikir. Með fiktandi börn á heimilinu vill maður samt ekki hafa þannig tengt og því fara þessi slot bara í að safna ryki.

Ef 550 er eitthvað eins og 650 þá gæti ég alveg mælt honum en ég myndi ekki kaupa hann fyrir innbyggðu vifturnar eða þennan diskabreytir.

Re: Hvorn kassan eða hvaða? Silencio 550 vs Carbide 330R

Sent: Þri 04. Feb 2014 20:11
af Baraoli
Corsair. einfaldlega miklu fallegra gengið frá í kössum frá þeim.

Re: Hvorn kassan eða hvaða? Silencio 550 vs Carbide 330R

Sent: Þri 04. Feb 2014 20:36
af Lunesta
Corsair. Virkilega solid kassi. Hreinlegri, flottari og betra rep.

Re: Hvorn kassan eða hvaða? Silencio 550 vs Carbide 330R

Sent: Mið 05. Feb 2014 00:41
af nidur
Ég féll fyrir þessum, keypti samt annan út af gatinu ofan á honum

http://tl.is/product/obsidian-350d-matx-svartur" onclick="window.open(this.href);return false;

Re: Hvorn kassan eða hvaða? Silencio 550 vs Carbide 330R

Sent: Mið 05. Feb 2014 16:50
af Fumbler
Takk fyrir svörinn, ég mun taka Corsair kassan lýst betur á hann.