Síða 1 af 1

Bæta við fartölvu vinnsluminni

Sent: Sun 26. Jan 2014 13:55
af Billiebob
Góðan daginn

Ég keypti Lenovo S300 frá elko og rosalega sáttur með tölvuna, en var að velta fyrir mér hvort ég ætti að uppfæra vinnsluminni úr
4GB í 8GB.

Hér er mynd þar sem CPU-Z sýnir allt helsta upplýs um núverandi vinnsluminni.
Mynd

Hvaða vinnsluminni mæliði með? :)
Ég reikna líka með því að skipta um vinnsluminni sjálfur brjóta ábyrgða skilmála.. ^^

Re: Bæta við fartölvu vinnsluminni

Sent: Sun 26. Jan 2014 16:44
af steinarorri
Sæll, skv upplýsingum frá framleiðanda eru bara 4GB studd, en þú gætir hugsanlega komist upp með að setja 8GB kubb í staðinn fyrir þann sem er fyrir.
Veit ekki hvernig fer þá með ábyrgðina.

Hinsvegar er harði diskurinn í vélinni frekar hægur (500 GB 5400 snúninga) og þá er besta uppfærslan fyrir svona vél sú að fara yfir í SSD disk (sjá verð $ stærðir hér: http://vaktin.is/index.php?action=price ... lay&cid=10" onclick="window.open(this.href);return false;).
Endar líklegast með minna geymslupláss en ef það pirrar þig ekki þá er SSD málið.

Re: Bæta við fartölvu vinnsluminni

Sent: Sun 26. Jan 2014 18:36
af Billiebob
Sæll

Eins og er þá eru 2 slots fyrir ram í tölvunni en einungis eitt þeirra er í notkun, trúi nú varla að það sé bara 4GB sem kemst fyrir, en reyndar er þetta tiltölega ódýr tölva ^^

En já, mér finnst hún alls ekki hæg, ég uppfæri kanski í SSD eftir 1-2 ár en vildi bara bæta við ram ef það væri hægt. :)
Ég ætla heyra í Lenovo og spurja þá úti þetta, þá fæ ég loka svar með hvort það sé hægt að uppfæra.

Re: Bæta við fartölvu vinnsluminni

Sent: Sun 26. Jan 2014 19:29
af steinarorri
Billiebob skrifaði:Sæll

Eins og er þá eru 2 slots fyrir ram í tölvunni
ertu viss?
Skv. Lenovo (linkur) er bara eitt slot sem styður max 4GB.
Skv. Crucial styður þetta hinsvegar 8GB (linkur) og ég sé í raun ekki afhverju vélin ætti ekki að styðja 8GB.

Re: Bæta við fartölvu vinnsluminni

Sent: Sun 26. Jan 2014 20:23
af Billiebob
Þetta pdf frá Lenovo er sennilega fyrir eldri S300 týpur, þar sem enginn örgjafi í "Specifications" er örgjafinn sem ég er með.
En já ég er alveg 100% viss að ég er einungis að nota 1 af 2 slots. þannig ef það styður 4GB í einu slotti þá hlytur það að styðja annað eins í hitt.. :P

En ég er núna með 4GB 1600MHz DDR3, er það ekki í lagi að nota hvaða ram sem er svo lengi sem það er líka 4GB/1600Mhz? :)