Síða 1 af 1
Hvernig er að panta á netinu frá útlöndum?
Sent: Lau 18. Jan 2014 21:25
af krani
Hvernig er að panta íhluti á netinu frá útlöndum?
Re: Hvernig er að panta á netinu frá útlöndum?
Sent: Lau 18. Jan 2014 21:26
af Sydney
krani skrifaði:Hvernig er að panta íhluti á netinu frá útlöndum?
Fínt að undanskildum íslenska tollinum. Hann notar ekki einu sinni sleipiefni.
Re: Hvernig er að panta á netinu frá útlöndum?
Sent: Lau 18. Jan 2014 21:39
af Sallarólegur
Það er frítt að senda vörur frá Kína til Íslands, en fyrir það að koma vörunni frá Keflavík niður á pósthús greiðirðu póstinum 550 kr. í "umsýslugjald".
Mæli með
http://www.eBay.com" onclick="window.open(this.href);return false; ef þú vilt panta eitthvað. Velur "Top rated seller" og þú færð betri þjónustu en þú myndir nokkurn tíma fá hér heima.
Ég hef oftar en ekki fengið vöruna endurgreidda að fullu vegna þess að það komst upp um galla, án þess að þurfa að senda hana út aftur. Gallarnir eru oftar en ekki minniháttar, og varan virkar allt að því fullkomlega.
Keypti til dæmis afturljós í bílinn minn frá USA og tók eftir því að það var sprunga í öðru ljósinu.
Hann bauð mér annaðhvort að fá nýtt sent heim, eða að fá bæði ljósin endurgreidd, svo ég fékk ljósið, sem átti að kosta um 20þ kr., frítt.
Re: Hvernig er að panta á netinu frá útlöndum?
Sent: Lau 18. Jan 2014 22:38
af krani
ok takk fyrir

Re: Hvernig er að panta á netinu frá útlöndum?
Sent: Lau 18. Jan 2014 22:56
af rango
ég var að því þangað til ég kallaði tollin fasískt kommabæli og að skatturinn coverar ekki einusinni sleipiefnið.
sagði að það væri minna vesen að fá pakka sendan ef þú ert í þýskalandi, þannig að heil nýja N-kórea með bjarna ben sem einræðisherra.
Enn tjaa núna veit ég ekki hvort ég ætti einusinni að reyna frá ebay

Re: Hvernig er að panta á netinu frá útlöndum?
Sent: Lau 18. Jan 2014 23:19
af roadwarrior
Tölvuvörur sérstaklega algenga íhluti borgar sig oftast ekki að kaupa af netinu, allavega samkvæmt minni reynslu. Ef þú ert að leita að einhverju spes td spes týpum af móðurborðum, kössum eða einhverju álíka þá getur verið eina leiðin að nálgast það er að versla erlendis.
Það er enginn tollur af tölvuvörum, bara 25.5% vsk og það virðist vera að samkeppnin hér á landi sé það hörð, sérstaklega varðandi íhluti (þökk sé vaktini?) að hægt er að fá minni, hd, örgjörva og svo frv á sambærilegu verði (+Vsk) og erlendis, útúr búið hér með ábyrgð þannig að það borgar sig ekki að flytja inn sjálfur.
Held stundum að þegar menn kvarta undan tollinum sé það vegna þess að menn séu að reyna að svindla (reyna að gefa upp lægra verð), ekki viss á hvaða flokki vörur lenda í (td með skjái sem eru með HDMI tengi vs skjá án HDMI) eða bara plain fúlir að búa á íslandi þar sem það kostar sitt að halda úti 320þús manna þjóðfélagi með allri þeirri þjónustu sem fólk ætlast til að fá

Re: Hvernig er að panta á netinu frá útlöndum?
Sent: Sun 19. Jan 2014 00:33
af jonsig
Og endurfjármagna hrunið bankakerfi , ekki gleyma því .