Síða 1 af 1

Handhægar loftpressur til þrifa .

Sent: Lau 11. Jan 2014 17:44
af jonsig
Sælir . Veit einhver hér um hvort maður geti nálgast litlar og nettar loftpressur? Því ég er ekki að fara kaupa lítinn loftbrúsa sem endist í 5sekúntur á 2000kr !

Ég las að maður þyrfti amk 20bör til að hafa þetta fullorðins ?

Re: Handhægar loftpressur til þrifa .

Sent: Lau 11. Jan 2014 18:01
af vesley
20 bör til að þrífa? rífur bara draslið í sundur með svoleiðis þrýsting..

ef þetta er bara smá blástur sem þú þarft þá dugar bara nánast hvaða ódýra loftpressa sem er, svo fer bara eftir hávaðanum sem þú þolir þegar hún fer í gang pressan.

Re: Handhægar loftpressur til þrifa .

Sent: Lau 11. Jan 2014 18:03
af Moquai
Getur kíkt í verkfærasöluna í síðumúla, þeir ættu að vera með einhverjar loftpressur.
vesley skrifaði:svo fer bara eftir hávaðanum sem þú þolir þegar hún fer í gang pressan.
Flestar loftpressur eru bara með hávaða þegar þú ert að fylla tankinn, annars ekkert þegar þú ert að nota hana.

Re: Handhægar loftpressur til þrifa .

Sent: Lau 11. Jan 2014 18:04
af mercury
búinn að vinna í smiðju í nokkur ár þar sem mikið er notað af loftverkfærum. og vinnuþrystingur er vanalega 6-8 bör..

Re: Handhægar loftpressur til þrifa .

Sent: Lau 11. Jan 2014 18:10
af jonsig
Ekki geta loftbrúsarnir verið mörg bör . Eins og ég sagði þá er þetta eitthvað sem ég las bara, þetta er kannski spurning um stærðina á loftbyssunni sem gæjin hefur notað ,hann hefur kannski viljað hafa þetta fullorðins.

En að kaupa loftbrúsa sem hefur kannski setið uppí hillu í 2ár kannski (70%) eftir.....á 2000kr er fáránlegt.

Re: Handhægar loftpressur til þrifa .

Sent: Lau 11. Jan 2014 18:15
af Yawnk
Væri einmitt líka til í að finna eina ódýra loftpressu sem væri hægt að tengja loftverkfæri jafnvel við og þurrka bíla með henni til dæmis! hvað kostar svona græja í bílsskúrinn?

Re: Handhægar loftpressur til þrifa .

Sent: Lau 11. Jan 2014 18:18
af jonsig
Ég hef séð ódýrast 22þúsund -slanga , stóran kút í múrmúinni . Á eftir að chekka verkfærasöluna síðumúla.

En árans loftbrúsarnir eru þó lausir við þessi þrjú form af vatni í þjöppuðu andrúmslofti "fljótandi vatn, aerosol og vapor (gas) " og hugsanlega líka við olíu mengun

Re: Handhægar loftpressur til þrifa .

Sent: Lau 18. Jan 2014 21:12
af krani
Bauhaus

Re: Handhægar loftpressur til þrifa .

Sent: Lau 18. Jan 2014 23:30
af jonsig
Keypti eina á 20k í verkfærasölunni . Sem er 8bör og olíulaus