Síða 1 af 1
''Útsala ársins'' hjá Tölvutek 27/12
Sent: Fim 26. Des 2013 16:57
af Yawnk
Sælir, var að sjá status frá Tölvutek á Facebook að á morgun yrði útsala ársins hjá þeim og hún byrjar klukkan 12:00..
''ÚTSALA ÁRSINS hefst klukkan 12:00, föstudaginn 27. Desember í Tölvutek Hallarmúla Reykjavík og Undirhlíð Akureyri.
Yfir 1000 vörunúmer á allt að 75% afslætti, takmarkað magn, fyrstur kemur fyrstur fær!
Einnig er sérstakur Útsölumarkaður í Reykjavík með rýmingarvörum og öðrum B-Vörum með allt að 90% afslætti.
Ekki láta þig vanta á ÚTSÖLU ÁRSINS í Tölvutek.
Smelltu á linkinn hér að neðan til að kynna þér geðveikina!
http://issuu.com/tolvutek/docs/4bls_aramot" onclick="window.open(this.href);return false;
Ef einhver fer, endilega segið frá hvort þetta stóð undir nafni
Re: ''Útsala ársins'' hjá Tölvutek 27/12
Sent: Fim 26. Des 2013 17:12
af g0tlife
Ekki veitir þeim af. Hef aldrei verslað þarna því ég hef aldrei fundið ódýrustu vöruna sem mig vantar hjá þeim ever
Re: ''Útsala ársins'' hjá Tölvutek 27/12
Sent: Fim 26. Des 2013 17:29
af Tesy
"Turnkassi með 450W aflgjafa" á 2.990kr (bls. 3).. Upphæð til þess að skemma eh íhlut?
Re: ''Útsala ársins'' hjá Tölvutek 27/12
Sent: Fim 26. Des 2013 21:31
af fannar82
Afhverju minnir mig að menn voru að tala um í fyrra að allt sem var sett í bæklingin hefði verið til ca 1-2stk af og restin var svo bara humbugg, rámar eitthvað í ósætti.. er einhver sem man eftir þessu ?
annars ætla ég að smella mér og reyna að ná mér í svona skjá, þarf einmitt að fara uppfæra minn benq, enda orðin 5 ára
Re: ''Útsala ársins'' hjá Tölvutek 27/12
Sent: Fös 27. Des 2013 00:07
af Arena77
Verð að segja að ég alltaf verið fyrir vonbrigðum með þessar útsölur hjá Tölvutek, þeir eru með einn hlut til af hverju sem er auglýstur, hef aldrei náð að kaupa neitt þarna á einhverjum alvöru afslætti. Þetta er ekkert annað en stór auglýsingabrella.
Re: ''Útsala ársins'' hjá Tölvutek 27/12
Sent: Fös 27. Des 2013 11:46
af CendenZ
Ég fór í fyrra og þar áður og varð svo hundfúll yfir draslinu þarna. Ég fer aldrei aftur á þessar útsölur.
Það var pakkfullt í fyrra af vörum, þessar vörur voru algjört drasl og mesta áherslan var lögð á einhver sýniningartæki sem voru outdated eða á leiðinni að verða outdated, ódýra tölvukassa, ódýrar ferðatölvur og USB gadget.
Miðað við auglýsinguna í ár er úrvalið aðeins betra en samt, þetta kemur einhverjum að góðum notum
Re: ''Útsala ársins'' hjá Tölvutek 27/12
Sent: Fös 27. Des 2013 12:03
af Gúrú
Þig er mögulega að ráma í þetta fannar82:
http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f=9&t=52330" onclick="window.open(this.href);return false;
Ég myndi ekki fara þangað aftur sama hvaða bull þeir setja í bæklingana um afslætti á íhlutum.
Ef þeir hafa ekki fyrir því að segja manni hvað verður á hvaða afslætti þá er það af því að þeir vilja plata mann til að mæta fyrir ekki neitt.
Re: ''Útsala ársins'' hjá Tölvutek 27/12
Sent: Fös 27. Des 2013 12:24
af rapport
Gúrú skrifaði:Þig er mögulega að ráma í þetta fannar82:
http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f=9&t=52330" onclick="window.open(this.href);return false;
Ég myndi ekki fara þangað aftur sama hvaða bull þeir setja í bæklingana um afslætti á íhlutum.
Ef þeir hafa ekki fyrir því að segja manni hvað verður á hvaða afslætti þá er það af því að þeir vilja plata mann til að mæta fyrir ekki neitt.
Sammála...
Er að fatta að ég er farinn að versla lítið sem ekkert við þá og hef þessa tilfinningu gagnvart tilboðunum/auglýsingunum þeirra
Re: ''Útsala ársins'' hjá Tölvutek 27/12
Sent: Fös 27. Des 2013 15:05
af fannar82
fór og fékk mér skjá fín afgreiðsla svosem, kíkti niður í 2min þar sem "stóra útsalan var" og jú það voru 2-3 hlutir þarna sem mér fannst vera með ásættenlegum "ROSAAFSLÆTTI" restin var svolítið svona einsog CenendeZ benti á hlutir á útleið sem eru nokkuð 2nd hand. og eiginlega ekkert sem var "rosalegt tilboð" sá surface Pro td, á 149þús 10þúsnd kr afsláttur.. allt sem var með 75% afslætti var mestmegnis proVIEW eða Trend net drasl.
Re: ''Útsala ársins'' hjá Tölvutek 27/12
Sent: Fös 27. Des 2013 15:41
af Yawnk
fannar82 skrifaði:fór og fékk mér skjá fín afgreiðsla svosem, kíkti niður í 2min þar sem "stóra útsalan var" og jú það voru 2-3 hlutir þarna sem mér fannst vera með ásættenlegum "ROSAAFSLÆTTI" restin var svolítið svona einsog CenendeZ benti á hlutir á útleið sem eru nokkuð 2nd hand. og eiginlega ekkert sem var "rosalegt tilboð" sá surface Pro td, á 149þús 10þúsnd kr afsláttur.. allt sem var með 75% afslætti var mestmegnis proVIEW eða Trend net drasl.
Já, er alveg sammála þér í þessu, fór þarna áðan og leit yfir vörurnar hjá þeim og var ekki að finna neitt sem hæfir titlinum 'útsala ársins', hverjum er ekki sama um 5-10 þúsund af einhverju 150þúsund króna dæmi... afskaplega lítið þarna á almennilegri útsölu.
Re: ''Útsala ársins'' hjá Tölvutek 27/12
Sent: Fös 27. Des 2013 15:52
af tlord
TT->TL ?
Re: ''Útsala ársins'' hjá Tölvutek 27/12
Sent: Fös 27. Des 2013 16:58
af Hannesinn
Jú, var það ekki? Hættu einhverjir í Tölvulistanum og stofnuðu Tölvutek (eða fóru á hausinn og skiptu um kennitölu)? Mig rámar eitthvað í það allavega.
Re: ''Útsala ársins'' hjá Tölvutek 27/12
Sent: Fös 27. Des 2013 18:08
af fannar82
tlord skrifaði:TT->TL ?
Er svosem ekkert að setja út á búðina, þetta er bara þeirra viðskipta stíll, hef tvisvar verslað þarna og í bæði skiptin verið mjög fínt. Aldrei reyndar lent í vandræðum með vöruna þegar það gerist þá raunvörulega finnur maður hvort að þetta sé góður staður til að versla við eða ekki.
Re: ''Útsala ársins'' hjá Tölvutek 27/12
Sent: Fös 27. Des 2013 18:18
af Yawnk
fannar82 skrifaði:tlord skrifaði:TT->TL ?
Er svosem ekkert að setja út á búðina, þetta er bara þeirra viðskipta stíll, hef tvisvar verslað þarna og í bæði skiptin verið mjög fínt. Aldrei reyndar lent í vandræðum með vöruna þegar það gerist þá raunvörulega finnur maður hvort að þetta sé góður staður til að versla við eða ekki.
x2 - Finnst þetta alveg frábær verslun, reyni að versla flestar mínar tölvuvörur þarna enda er þjónustan þarna frábær að mínu mati.
Re: ''Útsala ársins'' hjá Tölvutek 27/12
Sent: Fös 27. Des 2013 18:42
af natti
Er þetta svona svakaleg útsala að þeir þurfa að loka fyrir símann á meðan?
Núna kemur bara símsvari sem segir að þeir taki ekki símann því það sé útsala í gangi...
Re: ''Útsala ársins'' hjá Tölvutek 27/12
Sent: Fös 27. Des 2013 19:05
af Hannesinn
Ég var að koma þaðan og ég skil alveg að það sé ekki tekinn síminn í dag.
Útsalan sem slík er nú frekar rýr, en það er 10-30% afsláttur af flestu í búðinni á meðan, og það er lítið hægt að kvarta yfir því.
Re: ''Útsala ársins'' hjá Tölvutek 27/12
Sent: Fös 27. Des 2013 19:07
af upg8
Í stað þess að vera með svona vangaveltur, hví ekki að kíkja til þeirra? Annars þá er oft með svona útsölur að þeir sem koma fyrstir kaupa þá hluti sem eru á bestu tilboðunum, svo eru ekki allir að leita eftir sömu hlutunum. Kannski er eitthvað á afslætti sem Yawnk hefur engan áhuga á og því ekki tekið eftir því þar sem hann fílar kannski annað merki.
Annað sem þið kallið drasl getur verið mikill gleðigjafi fyrir marga sem hafa ekki efni á að kaupa það dýrasta, gott að það eru til búðir sem höfða til allra en ekki bara enthusiasts sem hafa efni á að fá sér i7 og vökvakælingar, -þó þeir séu auðvitað með græjur fyrir þá líka.
Re: ''Útsala ársins'' hjá Tölvutek 27/12
Sent: Fös 27. Des 2013 19:12
af biturk
Kíkti á ak og það var ekkety merkt á afslætti nema eitthvað bakvið borðið hjá þeim
Nennti þessu ekki og fôr út
Re: ''Útsala ársins'' hjá Tölvutek 27/12
Sent: Fös 27. Des 2013 20:02
af natti
upg8 skrifaði:Í stað þess að vera með svona vangaveltur, hví ekki að kíkja til þeirra?
Því það er einmitt þetta viðhorf sem ég (og fleiri) fíla ekki. Þegar verslanir eru með óljós tilboð í þeim tilgangi að "narra" fólk á staðinn undir því yfirskyni að það kaupi nú e-ð fyrst það er á annað borð mætt.
Re: ''Útsala ársins'' hjá Tölvutek 27/12
Sent: Fös 27. Des 2013 20:08
af upg8
Ef vara er til í mjög takmörkuðu upplagi þá gerir það lítið annað en að valda vonbryggðum að telja upp hvern einasta hlut. Engin sem neyðir ykkur til að mæta til þeirra. Það er til fólk sem hefur gaman af því að kíkja og skoða í búðir.
Re: ''Útsala ársins'' hjá Tölvutek 27/12
Sent: Fös 27. Des 2013 21:27
af Gúrú
upg8 skrifaði:Engin sem neyðir ykkur til að mæta til þeirra. Það er til fólk sem hefur gaman af því að kíkja og skoða í búðir.
Takk fyrir að láta okkur vita að það er enginn að neyða okkur til að mæta.
Það er enginn að neyða þig til að vera sammála okkur hinum. Svona svo ég bendi á fleiri augljósa hluti.
Re: ''Útsala ársins'' hjá Tölvutek 27/12
Sent: Fös 27. Des 2013 21:57
af NoName
Flott úrval af fartölvum og fullt af öðru dóti niðri og uppi var afsláttúr af flestu, allt frá 10% og uppí 50/75%... Hver hefur ekki gaman af útsölum
Allavega var ég þarna rétt fyrir lokun og það var sko nóg eftir.
Re: ''Útsala ársins'' hjá Tölvutek 27/12
Sent: Fös 01. Jan 2016 01:29
af einarn
Ég labbaði bara nokkuð sáttur þarna út með I7-4790 og Gigabyte Z97-D3H móðurborð á 50% afslætti. Borgaði rúmlega 40k fyrir pakkan.
Re: ''Útsala ársins'' hjá Tölvutek 27/12
Sent: Fös 01. Jan 2016 14:35
af beatmaster
Það er búið að vera þráður um þetta útsöludjók á hverju ári minnir mig, þessi þráður er síðan 2013 og Gúrú póstaði link á þráðinn síðan 2012 (
http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f=9&t=52330 )
Hérna er 2015 þráðurinn (
http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f ... 5&p=614224 )