Síða 1 af 1

Lenovo 500 Hitavandamál.

Sent: Fös 20. Des 2013 21:55
af fannar82
Ég er í mestu vandræðum með W500 vél, frá Lenovo. Hún er að hitna alltaf svo svaðalega mikið (búinn að rykhreinsa marg oft etc) þetta er svona semi framleiðslu galli á þessari týpu en Nýherji\Lenovo neituðu að skipta henni út á meðan hún var í ábyrgð skiptu heldur alltaf bara um viftu\móðurborð.

Núna er hún dottin úr ábyrgð og er byrjuð að láta ílla aftur, er hægt að setja 2dery viftu í svona vélar? ég sá ekkert aukapláss fyrir það þegar ég opnaði hana til að rykhreinsa nema þá að taka cd'ið út og setja viftu í staðin or sum (sem er ekkert mál ef slík vifta er til)



Any ideas?
(btw, jább er með TPfancontrol til að boosta upp fanspeed)

Re: Lenovo 500 Hitavandamál.

Sent: Lau 21. Des 2013 21:28
af fannar82
Enginn sem hefur lent í svipuðu? (ég virðist vera halda henni nokkuð stable núna með því að rykhreinsa og cappa cpu\gpu usage "gera hana verri" )

Re: Lenovo 500 Hitavandamál.

Sent: Sun 22. Des 2013 00:08
af playman
Mig minnir endilega að þegar að bilun er löguð þá er 2 ára ábyrgð á henni, og ef að það er buið að gera við sömu biluninna tvisvar þá á að
skipta vörunni út ef að vandamálið lagist ekki.

Annars er þá bara að redda sér USB viftu tölvuborði.

Re: Lenovo 500 Hitavandamál.

Sent: Sun 22. Des 2013 14:56
af Klemmi
Rétt hjá playman.

Ef skipt er um íhlut að þá er sá íhlutur í nýrri 2 ára ábyrgð.

Auk þess má nefna þessa klausu úr lögum um neytendakaup:
Seljandi á ekki rétt á að bæta úr sama galla eða afhenda nýjan söluhlut vegna sama galla oftar en tvisvar sinnum nema sérstakar aðstæður séu fyrir hendi sem réttlæta frekari úrbætur eða afhendingu.

Re: Lenovo 500 Hitavandamál.

Sent: Sun 22. Des 2013 16:25
af fannar82
Það var það sem ég sagði, þeir voru að mér skillst tilbúnir að fara í lögmanna leik.. sem ég nennti ekki :-s , en hef bara verslað Dell vélar síðan í vinnuni, svo .. they loose.