Síða 1 af 1
HMA spurning
Sent: Mið 18. Des 2013 09:38
af Selurinn
Sælir,
Ég ákvað að skella mér í áskrift hjá hidemyass.
Þetta er að virka mjööööög vel fyrir utan eitt.
Það eru bara 2 tölvur á heimilinu og það virðist vera eins og að þegar báðar vélarnar séu að nota HMA clientinn á sama tíma, þá dettur út http protocolinn á annari vélinni um leið og hin tengist.
Ég er ekki 100% en það virðist flest allt annað virka, t.d. torrent heldur áfram að sækja gögn en virðist ekkert vera hægt að pinga neinar heimasíður nema þá bara á seinni vélinni sem tengist og svo öfugt þegar ég relogga á vélina sem gat ekki opnað vefsíður.
Veit einhver hvað er að valda þessu?
Re: HMA spurning
Sent: Lau 21. Des 2013 02:42
af kjartanbj
bara ein tölva getur verið tengd í einu
Re: HMA spurning
Sent: Lau 21. Des 2013 06:00
af Selurinn
Já okey,
Þeir segja samt sem áður að það sé hægt að nota 2 devices.
http://wiki.hidemyass.com/FAQ" onclick="window.open(this.href);return false;
How many computers can I install and use your VPN on?
You can install our software on as many computers and devices as you wish, however you must not exceed 2 simultaneous connections. Simply put, only 2 computers can be connected to our service at any time.
Kannski þurfa þær að nota sitthvorn protocolinn, önnur openvpn og hin pptp svo þær tengjast ekki sama þjóninn, held að þar liggi vandinn.
Skilst að hann velji bara þjón af handahófi en endar oftast á sama þjóni ef ég tengi báðar vélarnar á sama tíma, sé enga möguleika til þess að velja um.
Þarf að skoða þetta betur.
Þarf maður ekki annars einhverja spes routera undir þetta ef þú vilt fara þá leið uppá það að tengja fleiri tæki?
Re: HMA spurning
Sent: Lau 21. Des 2013 09:55
af FreyrGauti
Þú getur verið með tvær tölvur tengdar en ekki við sama server, og þeir eru bara með einn íslenskan server.
Ef þú myndir tengja hina við t.d. Noreg þá myndi sambandið hætta að slitna, en sú vél væri líka ekki að dl'a "frítt".
Re: HMA spurning
Sent: Lau 21. Des 2013 13:53
af gardar
Setur bara upp openvpn server heima hjá þér, lætur þann server svo tengjast á hidemyass, tengir svo oll tæki heimilisins við þinn openvpn server og voila, allir á sama hidemyass aðgangi
Re: HMA spurning
Sent: Sun 22. Des 2013 15:00
af Selurinn
gardar skrifaði:Setur bara upp openvpn server heima hjá þér, lætur þann server svo tengjast á hidemyass, tengir svo oll tæki heimilisins við þinn openvpn server og voila, allir á sama hidemyass aðgangi
Snillingur!
Það er auðvitað málið
Re: HMA spurning
Sent: Fim 26. Des 2013 15:03
af Selurinn
Hefurðu einhverjar idiot proof leiðir fyrir þetta?
Eftir smá gúgl þá sé ég að þetta er svona "smá" handavinna.
Er þetta t.d. eitthvað sem ég ætti að fara eftir?
https://community.openvpn.net/openvpn/w ... dows_Guide" onclick="window.open(this.href);return false;
Re: HMA spurning
Sent: Fös 03. Jan 2014 00:42
af bigggan
Selurinn skrifaði:Hefurðu einhverjar idiot proof leiðir fyrir þetta?
Eftir smá gúgl þá sé ég að þetta er svona "smá" handavinna.
Er þetta t.d. eitthvað sem ég ætti að fara eftir?
https://community.openvpn.net/openvpn/w ... dows_Guide" onclick="window.open(this.href);return false;
Ekki alveg viss en ef HMA styður notkun með PPTP eða IPSEC/L2TP eða eikvað svoleiðis þá getur þú sett tengingin inná beinirin (ef hann styður það) sem þú átt, þá tengist allar tölvur inná HMA.