Síða 1 af 1

AMD X8 FX-8320

Sent: Fös 01. Nóv 2013 05:39
af Zimbi
Vantar smá hjálp hér, er búinn að vera að vesenast í google-inu en fann ekkert.... :(

Var að spá hvernig þessi X8 FX-8320 http://www.att.is/product_info.php?cPat ... ts_id=8217 örgjafi myndi ganga á þessu móðurborði http://www.expertreviews.co.uk/motherbo ... ifications. Ég veit að móðurborði stiður ekki am3+ en það á samt að virka, þá er það bara spurningin hversu vel þetta gengur saman....

Öll hjálp þeginn með opnum örmum. :)

Re: AMD X8 FX-8320

Sent: Fös 01. Nóv 2013 10:48
af upg8
Mér sýnist að þetta móðurborð styðji AM3+, í það minnsta að eitthverju leiti. Farðu samt varlega í að yfirklukka. Þessi örgjörvi sem þú ert að spá í er 125W, athugaðu hvað borðið er gert til að þola.
http://event.msi.com/mb/am3+/

http://www.msi.com/product/mb/890GXM-G6 ... /?div=BIOS Hér getur þú fundið BIOS uppfærslur fyrir borðið.

Re: AMD X8 FX-8320

Sent: Fös 01. Nóv 2013 13:21
af Hnykill
stutta svarið er nei.. getur notað AM3 í AM3+ socket en ekki öfugt.

þú þarft lágmark 9xx móðurborð með AMD SB950 kubbasetti (AMD 950 South Bridge).. þú ert með 8xx móðurborð og AMD 850 South Bridge

svo nei :/

getur líka séð litinn á Socketinu á móðurborðinu.. AM3 og undir er hvítt, en AM3+ er svart.

Re: AMD X8 FX-8320

Sent: Lau 02. Nóv 2013 16:59
af upg8
Hnykill hví stendur þá á síðunni hjá MSI að þeir hafi bætt við stuðning fyrir AM3+ örgjörva 20. apríl 2011? Það sem var aðal vandamálið ef ég man rétt var að ekki öllu móðurborð réðu við þá auknu orkuþörf sem AM3+ örgjörvar höfðu almennt samanborið við AM3, þau sem gerðu það fengu flest firmware upgrade fyrir AM3+ stuðning.

Leitaði á netinu og get ekki betur séð en það sé slatti af móðurborðum með þessum kubbasettum sem eru auglýst með AM3+ stuðning, -hugsanlega eitthverjar takmarkanir þar á sem vonandi einhver hér getur svarað.

Re: AMD X8 FX-8320

Sent: Lau 02. Nóv 2013 17:11
af MrSparklez
https://forum-en.msi.com/index.php?topic=162959.0" onclick="window.open(this.href);return false;

Re: AMD X8 FX-8320

Sent: Lau 02. Nóv 2013 17:14
af Hnykill
Tjahh.. viti menn :Þ ..virðist geta keyrt þessa örgjörva . ég las bara þegar ég var að kaupa móðurborð að það þyrfti 9xx móðurborð til að keyra þessa "nýju" AMD örgjörva.. (voru að koma út þá) ..en þetta er í CPU Support listanum fyrir móðurborðið hans, svo ég biðst bara afsökunar :face

Re: AMD X8 FX-8320

Sent: Fös 08. Nóv 2013 00:21
af Zimbi
Takk fyrir þessa hjálp strákar/stelpur. :) ætti maður að splæsa í þetta eða fá sér bara nýtt móðurborð og þennann örgjörva?

Re: AMD X8 FX-8320

Sent: Fös 08. Nóv 2013 00:58
af kizi86
bara skella sér á Asus ROG Crosshair V formula-Z 990FX móðurborðið :D