Síða 1 af 4

[Politík] Umræða

Sent: Mið 02. Okt 2013 00:29
af chaplin
Mér almennt leiðist umræða um politík en ég var að lesa stórkostlega hressandi frétt á MBL.

http://www.mbl.is/frettir/innlent/2013/ ... r_haekkud/" onclick="window.open(this.href);return false;

Hver er skoðun ykkar á þessu máli?

Ath. Þeir sem halda því fram að ef þið eruð ekki skráðir í þjóðkirkjuna séuð að greiða til HÍ, rangt. Heimild XII. Kafli, 24 gr.

Re: [Politík] Umræða

Sent: Mið 02. Okt 2013 00:38
af worghal
þetta frumvarp er algert bull.
skera niður í menntun og sjúkrun og hækka svo framlög til kirkjunnar.
þetta er til skammar!

Re: [Politík] Umræða

Sent: Mið 02. Okt 2013 00:52
af tdog
Þetta eru 44 miljónir sem fara aukalega til Kirkjunnar (þótt ég sé stuðningsmaður aðskilnaðar ríkis og kirkju þá er fólk of mikið að einblína á þessa smáu tölu). Að væla yfir þessum auka 44 miljónum þangað er eins og að míga í sjóinn á fjöru og ætla að sigla út á háflóði.

Re: [Politík] Umræða

Sent: Mið 02. Okt 2013 01:10
af rapport
Þar sem öll þessi helstu trúarbrögð nútímans eru öll nánast af sömu rótinni, þá vil ég bara ítreka hvað það skiptir máli að hafa gott heilbrigðiskerfi, líka úti á landi.

Annars dettur einhverjum í hug að það sé raunverulega einhver karl á himninum sem hægt er að tala við með því að fara í krumlu við sjálfan sig.

Hann stjórni heiminum og að hann setji öllum reglur og að þú og vinir þínir séu löggur alheimsins og eigið að stjórna samkvæmt reglunum sem gaurinn á himninum setti.

Og ef þú gerir það, þá færðu að koma í partý til hans þegar þú drepst.

Re: [Politík] Umræða

Sent: Mið 02. Okt 2013 08:58
af GönguHrólfur
rapport skrifaði:Þar sem öll þessi helstu trúarbrögð nútímans eru öll nánast af sömu rótinni, þá vil ég bara ítreka hvað það skiptir máli að hafa gott heilbrigðiskerfi, líka úti á landi.

Annars dettur einhverjum í hug að það sé raunverulega einhver karl á himninum sem hægt er að tala við með því að fara í krumlu við sjálfan sig.

Hann stjórni heiminum og að hann setji öllum reglur og að þú og vinir þínir séu löggur alheimsins og eigið að stjórna samkvæmt reglunum sem gaurinn á himninum setti.

Og ef þú gerir það, þá færðu að koma í partý til hans þegar þú drepst.
Ekki vera svona neikvæður, þetta verður alveg eins og í "this is the end" \:D/

Re: [Politík] Umræða

Sent: Mið 02. Okt 2013 09:51
af Gislinn
tdog skrifaði:Þetta eru 44 miljónir sem fara aukalega til Kirkjunnar (þótt ég sé stuðningsmaður aðskilnaðar ríkis og kirkju þá er fólk of mikið að einblína á þessa smáu tölu). Að væla yfir þessum auka 44 miljónum þangað er eins og að míga í sjóinn á fjöru og ætla að sigla út á háflóði.
Það sem ég pirra mig á er að það eru að fara 1.474 milljónir í þessa vitleysu sem þjóðkirkjan er.

Framlög ríkisins til þjóðkirkjunnar er um 34 sinnum hærri per skráðan einstakling en til annarra trúfélaga (meðaltöl um 6012 kr vs 175 kr skv. fjárlagafrumvarpi), sóknargjöld þjóðkirkjunnar er 1.5 sinnum hærri en sóknargjöld annarra trúfélaga per einstakling (meðaltöl er um 6852 kr vs 4362 kr skv. fjárlagafrumvarpi). Þegar skorið er niður í heilbrigðis- og menntamálum eins og verið er að gera nú þá skipta 44 milljónir ótrúlega miklu þegar kirkjan er skoðuð. Aðskilnaður ríkis og kirkju væri það besta sem væri gert.

Svo er annað, þó töluvert aðskilið, sem snýr að velferðarráðaneytinu. Hvernig ætli standi á því að fólk sé að svíkja út bætur endalaust án þess að það sé eitthvað gert við því. Ég held að ef ráðinn væri einstaklingur til að athuga á fólki sem fær bætur eigi raunverulega rétt á því að þá myndi sá einstaklingur spara meira fyrir ríkið en laun þess einstaklings væri. Mál sem mætti t.d. skoða er fólk sem er ekki skráð í sambúð en eiga barn/börn saman, búa saman og eru saman og fólk sem er á öryrkjabótum en þarfnast þeirra ekki. Svört atvinnustarfsemi er svo annar vængur sem mætti tækla. Einnig er fáránlegt af persónuvernd að dæma það ólöglegt að tilkynna bótasvindl nafnlaust. :mad [/rant]

Re: [Politík] Umræða

Sent: Mið 02. Okt 2013 09:55
af depill
tdog skrifaði:Þetta eru 44 miljónir sem fara aukalega til Kirkjunnar (þótt ég sé stuðningsmaður aðskilnaðar ríkis og kirkju þá er fólk of mikið að einblína á þessa smáu tölu). Að væla yfir þessum auka 44 miljónum þangað er eins og að míga í sjóinn á fjöru og ætla að sigla út á háflóði.
Djöfull þoli ég ekki þessi rök. Ég heyrði þessi rök líka varðandi leigu Náttúruminjastofnunar Ísland á perlunni sem eru 80 milljónir og ég heyri þetta sífellt meira. Rökin eru sem sagt sú að fjárlög eru rétt yfir 570 milljarða á ári og að 44 milljónir séu 0,007719298246% af fjárlögum og þess vegna skiptir þetta bara engu málil.

Ríkið á bara að hugsa þetta eins og heimilin, þegar ég fer í niðurskurð heima þá er bara allt undir. Ef ég reikna þetta heim til mín er þetta rétt um 700 kall á ári af mínum ráðstöfunartekjum. Ef þetta sé einn liður af tekjunum mínum þá bara hugsa ég út í þetta allt ( en ég er stundum smá nískur )

Þetta skiptir bara allt máli, þar sem ef við finnum 44 milljónir á öllum stofnunum erum við að tala um fullt af peningum, það skiptir öllu máli að það séu afgangur af fjárlögum svo við getum hætt að borga vaxtatekjur af skuldum.

Re: [Politík] Umræða

Sent: Mið 02. Okt 2013 10:01
af depill
Mæli með að hlusta líka á þetta http://www.visir.is/section/MEDIA98&fileid=CLP21266" onclick="window.open(this.href);return false;, ég er mjög sammála þessu. Við þurfum að gera bótasvik fráhrindandi, refsingar þungar og að við eigum að koma okkur hugsun um að þetta sé sameiginlegt "pool" sem við borgum í en ekki bara "RÍKIÐ" eins og sumir hugsa um ríkið. Eins og hún segir þá er það þannig í Danmörku að þar eru aðilar að tilkynna hvorn annan og það eru refsingar.

Mér finnst annar hvor aðili í kringum mig vera svíkja undir einhverskonar bótum og ég gjörsamlega þoli það ekki.

Re: [Politík] Umræða

Sent: Mið 02. Okt 2013 10:19
af GuðjónR
Mín vegna mætti leggja þessa þjóðkirkju niður.
En það sem pirrar mig mest í þessu öllu er þessi endalausi grímulausi klíkuskapur, fella niður veiðigjald, gistináttagjald, orkugjald á stóriðju ásamt örlitlum eignaskatti á stóreignamenn og hækka BJÓRINN minn á meðan er algjörlega ótækt!

Hérna gæti ríkið t.d. skattlagt feitt og náð inn peningum:
http://www.mbl.is/vidskipti/frettir/201 ... ukkustund/" onclick="window.open(this.href);return false;

Re: [Politík] Umræða

Sent: Mið 02. Okt 2013 10:41
af depill
GuðjónR skrifaði:Mín vegna mætti leggja þessa þjóðkirkju niður.

Veiðigjaldið var reyndar ekki fellt niður, en ég er alveg sammála þér það að það er of lágt. Mér finnst rökin að sumar útgerðir geti ekki staðið við þær veikar. Þar sem yfirleitt er verið að tala um vel skuldarsettar útgerðir, allavega sem ég hef séð.

Við eigum auðvita að skattleggja ferðaþjónustuna meira, enda er hún ekki sjálfbær og við þurfum að fjárfesta miklu meira í ferðaþjónustunni en eigum að gera það með tekjum frá ferðaþjónustunni.

Ég er reyndar á móti eignarskattinum þar sem fólk er búið að borga sína skatta og þú ert að taka skatt af eignum sem er búið að borga skatt af og oft á tíðum ertu að tala um eldra fólk sem hreinlega er ekki með tekjur á móti skattinum. Eignarskatturinn er vondur skattur.

Áfengisskatturinn er svo bara þæginleg leið til að skatta óæskilega hegðun ( ásamt tóbaksskatti ) sem er dýr fyrir samfélagið. Þótt ég hafi aldrei prófað nein fíkniefni utan áfengis þá vill ég sjá hass/Marijuna og jafnvel fleirri efni leyfð. Það mun lækka kostnað og auka skattheimtu ( þar sem við eigum augljóslega að skatta það í drasl, og við getum væntanlega ræktað þetta heima, atvinnuskapandi og við getum skattað það líka í drasl, marginin er þegar svo sver ).

Re: [Politík] Umræða

Sent: Mið 02. Okt 2013 10:46
af GuðjónR
depill skrifaði:

Per se. þá er ég líka á móti eignarsköttum almennt og það á sömu forsendum og þú. Fólk er búið að greiða skatt af tekjum sínum þegar það fjárfestir og því má segja að eignaskattur sé ekkert annað en eignaupptaka. En við búum við eignaskatt í dag, það var reyndar hætt að kalla hann eignaskatt fyrir nokkrum árum og farið að kalla hann fasteignagjöld.

Þessi umræddi hátekju-eignaskattur er auðvitað í eðli sínu ósanngjarn, en hey! það er nú verðtryggingin og hvernig hún er reiknuð út líka :)

Re: [Politík] Umræða

Sent: Mið 02. Okt 2013 10:51
af depill
GuðjónR skrifaði:
Per se. þá er ég líka á móti eignarsköttum almennt og það á sömu forsendum og þú. Fólk er búið að greiða skatt af tekjum sínum þegar það fjárfestir og því má segja að eignaskattur sé ekkert annað en eignaupptaka. En við búum við eignaskatt í dag, það var reyndar hætt að kalla hann eignaskatt fyrir nokkrum árum og farið að kalla hann fasteignagjöld.

Þessi umræddi hátekju-eignaskattur er auðvitað í eðli sínu ósanngjarn, en hey! það er nú verðtryggingin og hvernig hún er reiknuð út líka :)

já ég er reyndar sammála þér með fasteignaskattinn af því hann er eignaupptaka í raun og veru, hélt einu sinni að hann tengdist leigugjöldum borgarinnar ( þar sem fæstir eiga lóðirnar sínar, leigja þær til 75 ára af Rvk ) en þeir sem eiga lóðinar sínar ( sem eru nokkrir ) borga þetta líka....

En verðtryggingin, held ég að sé bara sköpuð af lack of competition, við erum 300.000 hræður hérna, það er dýrt að halda upp þjónustu hérna, það er dýrt að halda upp eigin gjaldmiðli. Ég myndaði mér einu sinni þá skoðun að jafnvel þótt mér líkar alls ekki allt við ESB að þá finnst mér lack of competition, lokaður markaður og áhættu við fjárfestingu á Íslandi sem outweighar það. Þess vegna finnst mér að við ættum ennþá að ganga í ESB ( eða afsala fullveldi eithvert annað :) )

Re: [Politík] Umræða

Sent: Mið 02. Okt 2013 10:52
af jericho
Mæli með að menn skoði DATAMARKET síðuna. Þar má skoða nýja frumvarpið visualt (súlurit) og sjá hvaða stofnanir fá niðurskurð (t.d. Lögregluskólinn) en hvaða stofnanir fá aukafjárveitingu (t.d. Vegagerðin).

Ég týndi mér þarna inni í dágóða stund. Mæli með að áhugasamir skoði þetta.

Mynd

Re: [Politík] Umræða

Sent: Mið 02. Okt 2013 11:52
af GuðjónR
Til hamingju Ísland.

Re: [Politík] Umræða

Sent: Mið 02. Okt 2013 12:17
af playman
Hefði ekki verið nær að setja þessar 44 millur til þess að lækka legu gjald á sjúkrahúsi!

Re: [Politík] Umræða

Sent: Mið 02. Okt 2013 12:45
af ManiO
playman skrifaði:Hefði ekki verið nær að setja þessar 44 millur til þess að lækka legu gjald á sjúkrahúsi!
http://datamarket.com/is/data/set/43wl/ ... lay=column" onclick="window.open(this.href);return false; þetta ber saman fjárframlög til innanríkismála og velferðarmála.

http://datamarket.com/is/data/set/43wl/ ... lay=column" onclick="window.open(this.href);return false; þetta ber saman fjárframlög til þjóðkirkjunna og landspítalans.

44 milljónir eru um 0,02% af þeirri upphæð sem rennur til landspítalans.

Re: [Politík] Umræða

Sent: Mið 02. Okt 2013 12:47
af oskar9
depill skrifaði:Mæli með að hlusta líka á þetta http://www.visir.is/section/MEDIA98&fileid=CLP21266" onclick="window.open(this.href);return false;, ég er mjög sammála þessu. Við þurfum að gera bótasvik fráhrindandi, refsingar þungar og að við eigum að koma okkur hugsun um að þetta sé sameiginlegt "pool" sem við borgum í en ekki bara "RÍKIÐ" eins og sumir hugsa um ríkið. Eins og hún segir þá er það þannig í Danmörku að þar eru aðilar að tilkynna hvorn annan og það eru refsingar.

Mér finnst annar hvor aðili í kringum mig vera svíkja undir einhverskonar bótum og ég gjörsamlega þoli það ekki.
Málið er að fólk hugsar svona illa um "RÍKIÐ", svíkur bætur, vinnur svart og þannig er að fólk er ekki sátt við hvað ríkið gerir við peningana sem það fær, eins og sannast hér í aukafjárlögum til kirkjunar ásamt ýmsu fleiru.
Ef ríkið hlustar á fólkið í landinu og peningarnir fara þangað sem þörf er á þeim þá lagar hitt sig sjálft (bótasvikt, svört vinna og því um líkt)

Re: [Politík] Umræða

Sent: Mið 02. Okt 2013 13:02
af littli-Jake
Er virkilega enginn annar en ég drullu ósátt/ur með að það sé verið að moka rúmlega 300 miljónum AUKALEGA í helvítis RUV svo að Páll Magnússon geti haldið áfram að keira um á Range Rover. Hversvegna í fjandanum er verið að spreða þessum peningum í RUV? Eina sem er sýnt þarna er low budget efni frá norðurlöndunum því það er svo "menningarlegt". Hvenar kom eitthvað gott íslenst efni frá RUV? sýnist að allir áhorfanlegu íslensku þættirnir komi frá skjá einum og 365 miðlum. Henda þessu peningasvartholi eins langt út í sjó og mögulegt er. Fólk getur alveg látið sér nægja að horfa á fréttirnar á stöð 2.

Re: [Politík] Umræða

Sent: Mið 02. Okt 2013 13:03
af Stutturdreki
ManiO skrifaði:
playman skrifaði:Hefði ekki verið nær að setja þessar 44 millur til þess að lækka legu gjald á sjúkrahúsi!
http://datamarket.com/is/data/set/43wl/ ... lay=column" onclick="window.open(this.href);return false; þetta ber saman fjárframlög til innanríkismála og velferðarmála.

http://datamarket.com/is/data/set/43wl/ ... lay=column" onclick="window.open(this.href);return false; þetta ber saman fjárframlög til þjóðkirkjunna og landspítalans.

44 milljónir eru um 0,02% af þeirri upphæð sem rennur til landspítalans.
Það eru ekki % sem skipta máli heldur prinsipið. Afhverju eiga þeir sem nota spítalann að borga sjálfir fyrir sína notkun en þeir sem nota kirkjuna fá allt borgað úr sameiginlegum sjóðum.

Nokkuð viss um að engin á Landsspítalanum myndi fúlsa við þessum 44miljónum þótt þær séu bara dropi í hafið. Fyrir utan að ríkið er að eyða yfir 5 miljörðum í snákaoliu sölumenn sem væri mun betur varið í heilbrigðisþjónustu sem virkar.

Re: [Politík] Umræða

Sent: Mið 02. Okt 2013 13:05
af Daz
oskar9 skrifaði:
depill skrifaði:Mæli með að hlusta líka á þetta http://www.visir.is/section/MEDIA98&fileid=CLP21266" onclick="window.open(this.href);return false;, ég er mjög sammála þessu. Við þurfum að gera bótasvik fráhrindandi, refsingar þungar og að við eigum að koma okkur hugsun um að þetta sé sameiginlegt "pool" sem við borgum í en ekki bara "RÍKIÐ" eins og sumir hugsa um ríkið. Eins og hún segir þá er það þannig í Danmörku að þar eru aðilar að tilkynna hvorn annan og það eru refsingar.

Mér finnst annar hvor aðili í kringum mig vera svíkja undir einhverskonar bótum og ég gjörsamlega þoli það ekki.
Málið er að fólk hugsar svona illa um "RÍKIÐ", svíkur bætur, vinnur svart og þannig er að fólk er ekki sátt við hvað ríkið gerir við peningana sem það fær, eins og sannast hér í aukafjárlögum til kirkjunar ásamt ýmsu fleiru.
Ef ríkið hlustar á fólkið í landinu og peningarnir fara þangað sem þörf er á þeim þá lagar hitt sig sjálft (bótasvikt, svört vinna og því um líkt)
Fólk svíkur ekki undan skatti og til sín bætur því það er á móti eyðslu skattpeninga. Fólk svindlar og svíkur því það er gráðugt, latt og eigingjarnt.

Re: [Politík] Umræða

Sent: Mið 02. Okt 2013 13:24
af ManiO
Stutturdreki skrifaði:
ManiO skrifaði:
playman skrifaði:Hefði ekki verið nær að setja þessar 44 millur til þess að lækka legu gjald á sjúkrahúsi!
http://datamarket.com/is/data/set/43wl/ ... lay=column" onclick="window.open(this.href);return false; þetta ber saman fjárframlög til innanríkismála og velferðarmála.

http://datamarket.com/is/data/set/43wl/ ... lay=column" onclick="window.open(this.href);return false; þetta ber saman fjárframlög til þjóðkirkjunna og landspítalans.

44 milljónir eru um 0,02% af þeirri upphæð sem rennur til landspítalans.
Það eru ekki % sem skipta máli heldur prinsipið. Afhverju eiga þeir sem nota spítalann að borga sjálfir fyrir sína notkun en þeir sem nota kirkjuna fá allt borgað úr sameiginlegum sjóðum.

Nokkuð viss um að engin á Landsspítalanum myndi fúlsa við þessum 44miljónum þótt þær séu bara dropi í hafið. Fyrir utan að ríkið er að eyða yfir 5 miljörðum í snákaoliu sölumenn sem væri mun betur varið í heilbrigðisþjónustu sem virkar.
Er þetta ekki mest allt huglægt og því ekkert 'rétt' eftir einhverjum alhliða sannleik? Hvaða prinsip segir til um að hinir og þessir fjármunir eigi einhliða að renna í eina átt en ekki hina?

Að sjálfsögðu myndi engin fúlsa við að fá aukalega 44 milljónir til ráðstöfunar, en hvert á svo að skella þeim fjármunum? Hækka laun starfsmanna? 4800+ starfa fyrir landspítalann, þannig að ekki myndi það hafa afdrifarík áhrif ef að laun allra væri aukin. Tækjakaup? Hvaða tæki á þá að kaupa? Hver væri svo aukinn kostnaður á tímunum sem færi í að funda um þessar auknu 44 milljónir?

Ég vill taka fram að ég er ekki endilega sammála um að auka fjárframlög til þjóðkirkjunnar sé viðunandi en það er margt annað í þessum fjárlögum sem að brýnna er að fylgjast með. T.d. má nefna að virðisaukaskattur á einnota bleyjum fer úr 25,5% niður í 7%, sem ætti að skila sér í um 14% lækkun til neytenda. Þarna munu verslanir sjá sér tækifæri til að auka eigin álagningu.

Re: [Politík] Umræða

Sent: Mið 02. Okt 2013 13:35

% seygja ekki alltaf allt, þessar nokkur hundruð krónur muna fyrir langveikt fólk sem þarf stundum að
vera vikur eða mánuði á spítala.

Ég er bara alfarið á móti því að heilbrigðis kerfið fái að fynna fyrir niðurskurði.

Það væri frekar að rukka fólk um "legu" gjöld fyrir að mæta í kirkju, þar sem að fólk getur sjálft ráðið
hvort að það fari í kirkju eður ey, en langveikt fólk og þeir sem að þurfa að leggjast inná spítala geta ekkert
um það ráðið.

Re: [Politík] Umræða

Sent: Mið 02. Okt 2013 13:42
af Stutturdreki
ManiO skrifaði:
Stutturdreki skrifaði:
ManiO skrifaði:
playman skrifaði:Hefði ekki verið nær að setja þessar 44 millur til þess að lækka legu gjald á sjúkrahúsi!
http://datamarket.com/is/data/set/43wl/ ... lay=column" onclick="window.open(this.href);return false; þetta ber saman fjárframlög til innanríkismála og velferðarmála.

http://datamarket.com/is/data/set/43wl/ ... lay=column" onclick="window.open(this.href);return false; þetta ber saman fjárframlög til þjóðkirkjunna og landspítalans.

44 milljónir eru um 0,02% af þeirri upphæð sem rennur til landspítalans.
Það eru ekki % sem skipta máli heldur prinsipið. Afhverju eiga þeir sem nota spítalann að borga sjálfir fyrir sína notkun en þeir sem nota kirkjuna fá allt borgað úr sameiginlegum sjóðum.

Nokkuð viss um að engin á Landsspítalanum myndi fúlsa við þessum 44miljónum þótt þær séu bara dropi í hafið. Fyrir utan að ríkið er að eyða yfir 5 miljörðum í snákaoliu sölumenn sem væri mun betur varið í heilbrigðisþjónustu sem virkar.
Er þetta ekki mest allt huglægt og því ekkert 'rétt' eftir einhverjum alhliða sannleik? Hvaða prinsip segir til um að hinir og þessir fjármunir eigi einhliða að renna í eina átt en ekki hina?

Að sjálfsögðu myndi engin fúlsa við að fá aukalega 44 milljónir til ráðstöfunar, en hvert á svo að skella þeim fjármunum? Hækka laun starfsmanna? 4800+ starfa fyrir landspítalann, þannig að ekki myndi það hafa afdrifarík áhrif ef að laun allra væri aukin. Tækjakaup? Hvaða tæki á þá að kaupa? Hver væri svo aukinn kostnaður á tímunum sem færi í að funda um þessar auknu 44 milljónir?

Ég vill taka fram að ég er ekki endilega sammála um að auka fjárframlög til þjóðkirkjunnar sé viðunandi en það er margt annað í þessum fjárlögum sem að brýnna er að fylgjast með. T.d. má nefna að virðisaukaskattur á einnota bleyjum fer úr 25,5% niður í 7%, sem ætti að skila sér í um 14% lækkun til neytenda. Þarna munu verslanir sjá sér tækifæri til að auka eigin álagningu.
Það er ágætis prinsipp held ég að þú borgir fyrir það sem þú kýst að gera, td. fara í kirkju á sunnudögum, en þurfir ekki að borga fyrir það sem þú getur ekki verið án, eins og td. liggja á spítala í nokkra daga vegna slyss/veikinda.

Re: [Politík] Umræða

Sent: Mið 02. Okt 2013 13:53
af SolidFeather
Vandamálið eru ekki þessar 44 milljónir sem þeir fá aukalega. Að þeir skuli fá einn og hálfan milljarð til að byrja með er bara klikkun og ætti ekki að viðgangast hér á landi.

Re: [Politík] Umræða

Sent: Mið 02. Okt 2013 13:56
af Stutturdreki
Kirkjan fær miklu meira en 1,5 miljarð. Samtals er sett 5,1 miljarðar í 'Trúmál' samkvæmt fjárlögum 2014, af því fær kirkjan tæplega 4 miljarða. Heimilid: http://www.vantru.is/2013/10/02/13.30/" onclick="window.open(this.href);return false;.