Síða 1 af 3

365 byrjaðir að bjóða upp á ljósleiðara/ljósnet

Sent: Fim 15. Ágú 2013 09:52
af Sallarólegur
http://365.is/" onclick="window.open(this.href);return false;
Enski boltinn,
internet & sími
Fyrir aðeins 8.990 kr. á mánuði.
Internet og heimasími innifalinn í 12 mánuði
gegn 12 mánaða samningi.

Internet innifalið í 12 mánuði
Veldu á milli Ljósleiðara eða Ljósnets. Allt að 100 Mb/s ljóshraði og 10 GB erlent niðurhal fylgir. Þú færir netið yfir til 365 og heldur núverandi sjónvarpsbúnaði. Greiða þarf 2.610 kr. aðgangsgjald fyrir netaðgang.



Bættu við 40GB erlendu gagnamagni á 1.000 kr.
Fáðu viðbótar gagnamagn á frábæru verði. 40GB erlent niðurhal á aðeins 1.000 kr. til viðbótar.

Klassíski heimasíminn
Hagkvæmur heimasími á hvert heimili. Það er ekkert mál að færa gamla númerið yfir til okkar. Þú getur líka valið þér nýtt númer ef þú vilt.



Bættu við 1.000 mínútur í alla heimasíma fyrir aðeins 300 kr.
Hringdu eins og þú getur í alla heimasíma á Íslandi fyrir aðeins 300 krónur. 1.000 mínútur eru innifaldar, þannig að þú getur spjallað langt fram á nótt án þess að hafa áhyggjur.
Hvernig líst mönnum á?

Re: 365 byrjaðir að bjóða upp á ljósleiðara/ljósnet

Sent: Fim 15. Ágú 2013 10:04
af Daz
Þeir hafa náttúrulega boðið upp á ljósleiðara lengi.
Internetið og síminn sem er partur af þessum díl kostar 5500 kr skv verðlista en á móti þarf að taka tillit til að þetta er 12 mánaða samningur og þessi sjónvarpsstöð er ónothæf 3 mánuði á ári.

edit: ruglaði saman 365 og vodafone!

Eru það ekki sami aðilinn?? :(

Re: 365 byrjaðir að bjóða upp á ljósleiðara/ljósnet

Sent: Fim 15. Ágú 2013 10:11
af emmi
Þeir eru líklega að endurselja Vodafone netið.

Re: 365 byrjaðir að bjóða upp á ljósleiðara/ljósnet

Sent: Fim 15. Ágú 2013 10:18
af einarth
Sæl.

Ég get upplýst að þeir munu ekki nota Vodafone netið.

365 er sjálfstæð þjónustuveita hjá GR með internet og heimasímaþjónustu.

Kv, Einar.

Re: 365 byrjaðir að bjóða upp á ljósleiðara/ljósnet

Sent: Fim 15. Ágú 2013 10:44
af Sallarólegur
emmi skrifaði:Þeir eru líklega að endurselja Vodafone netið.
Þeir eru með beinan samning við GR og Mílu eftir því sem ég best veit.

Re: 365 byrjaðir að bjóða upp á ljósleiðara/ljósnet

Sent: Fim 15. Ágú 2013 10:55
af emmi
GR og Míla selja ekki internet sambönd þannig að hvaðan eru þeir þá að kaupa það?

Re: 365 byrjaðir að bjóða upp á ljósleiðara/ljósnet

Sent: Fim 15. Ágú 2013 11:04
af hagur
Hmm, eru þeir ekki að reyna að "réttlæta" 30% hækkun á enska boltanum sem skellur á 1. sept? Þ.e að inní þeim pakka núna fái fólk internetaðgang í kaupbæti. Hentar sumum eflaust vel.

Re: 365 byrjaðir að bjóða upp á ljósleiðara/ljósnet

Sent: Fim 15. Ágú 2013 11:20
af hfwf
Ripoff ekkert nema.

Re: 365 byrjaðir að bjóða upp á ljósleiðara/ljósnet

Sent: Fim 15. Ágú 2013 12:48
af Sallarólegur
Þess má geta að við þetta bætist aðgangsgjald, svo heildarkostnaður er 11.600 kr. á mánuði, skuldbundið í 12 mánuði.

Re: 365 byrjaðir að bjóða upp á ljósleiðara/ljósnet

Sent: Fim 15. Ágú 2013 12:51
af AntiTrust
Alltaf gaman að sjá meiri samkeppni, leiðinlegt reyndar að sjá þetta bara samtvinnað við e-rn bolta, hefði bara viljað sjá nýjan ISP í leiknum. Þessi 12 mánaða binditími er samt alveg absúrd.

Re: 365 byrjaðir að bjóða upp á ljósleiðara/ljósnet

Sent: Fim 15. Ágú 2013 12:55
af krissdadi
11600 fyrir 10gb á mánuði.

Re: 365 byrjaðir að bjóða upp á ljósleiðara/ljósnet

Sent: Fim 15. Ágú 2013 13:20
af Daz
krissdadi skrifaði:11600 fyrir 10gb á mánuði.
Svolítið meira innifalið í þjónustunni en bara internet. Mér finnst reyndar sniðugt hjá þeim að maður borgar bara 1000 kr fyrir hver 40 gb sem maður vill bæta við áskriftina, flatt verð fyrir gagnamagnið er svolítið "sanngjarnara". (Geri ráð fyrir að þetta sé upphæð sem maður þarf að bæta við mánaðargjaldið, ekki eitthvað sem tikkar bara inn jafnóðum og maður fer yfir síðasta pakka).

Re: 365 byrjaðir að bjóða upp á ljósleiðara/ljósnet

Sent: Fim 15. Ágú 2013 16:59
af atlist
Góðan daginn,
365 miðlar og Vodafone eru ekki tengd fyrirtæki. 365 er einn stærsti viðskiptavinur Vodafone, eins og kom fram í viðtali Ara forstjóra 365 í morgun og vinna náið saman að því að dreifa sjónvarpsefni (Vodafone sem sjálfstæð dreifiveita og 365 sem sjálfstæð efnisveita). 365 er einnig í slíku samstarfi með Símanum og dreifa áskriftarefni sínu um Sjónvarp Símans.
365 eru með samninga beint við Gagnaveituna og Mílu/Símann um endursölu á ljósleiðara og ljósneti.
Hækkun á verði enska boltans er tilkomin vegna hækkunar á innkaupsverði um 30% (sjá tilkynningu inn á stod2.is).
Boltinn hækkaði um 1400-2000 kr á mánuði (eftir vildarkjörum). Net og heimasími kostar 3490 + 990 á mánuði, og 365 er ódýrari en tveir stærstu aðilar á markaði. Sambærilegur pakki getur verið yfir 5000 kr. mánuði og því fólk að minnsta kosti að fá 3000 kr í plús. Þetta er gott verð og sambærilegt því sem er að finna í nágrannalöndum (þ.e. net + sími + enski). Skuldbindingin er einungis í Stöð 2 Sport 2 (Enska Boltanum).

Daz: 365 býður upp á bæði að stoppa þegar innifalið erlent niðurhal klárast, eða að það bætist sjálfkrafa við 40GB eftir þörfum.

Við vonum að fólki taki vel á móti okkur á markaði, enda alltaf gott fyrir neytendur þegar samkeppni eykst. Við ætlum okkur að veita góða þjónustu og gæði. Endilega spjallið við okkur á Facebook (365 ljóshraði eða Twitter (@ljoshradi) ef þið viljið vita meira.

Kv. Atli Stefán
Starfsmaður 365

Re: 365 byrjaðir að bjóða upp á ljósleiðara/ljósnet

Sent: Fim 15. Ágú 2013 17:46
af AntiTrust
Bara svo það sé á tandurhreinu, þessi 12 mánaða binding á einungis við sjónvarpsáskriftina? Er sumsé hægt að segja TV áskriftinni upp og halda neti?

Re: 365 byrjaðir að bjóða upp á ljósleiðara/ljósnet

Sent: Fim 15. Ágú 2013 20:19
af hallihg
Það er 10 gb innifalið í erlent, sem er djók, og bara hægt að bæta við 40 gb í sex skipti? Þetta er væntanlega eitthvað tekjumódel.

Ef þetta erlenda niðurhal væri ekki svona lágt hefði ég eflaust stokkið á þetta til að fá enska.

Re: 365 byrjaðir að bjóða upp á ljósleiðara/ljósnet

Sent: Fim 15. Ágú 2013 22:21
af svensven
AntiTrust skrifaði:Bara svo það sé á tandurhreinu, þessi 12 mánaða binding á einungis við sjónvarpsáskriftina? Er sumsé hægt að segja TV áskriftinni upp og halda neti?
Ef ég skil þetta rétt, þá geturðu ekki sagt upp TV áskriftinni en þú getur aftur á móti sagt upp netinu þegar þú villt og haldið enska boltanum.

Re: 365 byrjaðir að bjóða upp á ljósleiðara/ljósnet

Sent: Fim 15. Ágú 2013 22:46
af Cascade
Vá... eins og allir aðrir eru að kommenta

Er maður þá síðustu 3 mánuðina að borga 11600kr fyrir internet með 10gb erlendu niðurhali... og ekkert á sjónvarpsstöðinni sem fylgir?

Re: 365 byrjaðir að bjóða upp á ljósleiðara/ljósnet

Sent: Fim 15. Ágú 2013 23:02
af hagur

Væl


Ég er búinn að vera með Stöð 2 Sport 2 núna í nokkur ár, eða alveg síðan þeir fengu enska boltann aftur til sín (eftir að skjár 1 og svo "enski boltinn" náðu honum svo eftirminnilega af 365).

Í 2 mánuði á ári er nánast ekkert í gangi á Stöð 2 Sport 2 (fyrir utan þegar stórmót eins og EM og HM eru í gangi), en samt borgar maður fullt verð fyrir hana, allt árið.

Þetta nýja tilboð er góðra gjalda vert fyrir þá sem vilja fara með allan pakkann til 365 og getur eflaust sparað einhverjum útgjöld. En fyrir aðila eins og mig, sem eru "fastir" hjá ákveðinni netveitu (er með fyrirtækjapakka hjá Vodafone sem vinnuveitandi greiðir) situr eftir sú staðreynd að ég þarf að greiða núna 30% hærra verð fyrir enska boltann en ég hef gert hingað til, án þess að fá nokkuð aukalega til baka. Geri mér grein fyrir því að innkaupsverðið á þessu hækkaði um 30% (eða svo er sagt), en ég held ég segi þessu bara upp núna.


/Væl

Re: 365 byrjaðir að bjóða upp á ljósleiðara/ljósnet

Sent: Fim 15. Ágú 2013 23:03
af tdog
Cascade skrifaði:Vá... eins og allir aðrir eru að kommenta

Er maður þá síðustu 3 mánuðina að borga 11600kr fyrir internet með 10gb erlendu niðurhali... og ekkert á sjónvarpsstöðinni sem fylgir?
14600-, með leigu á router og aðgangsgjaldi til GR eða Mílu. Rippoff að mínu mati. Sér í lagi rippoff ef þeir geta keypt netþjónustu í smásölu og selt áfram og sömuleiðis selt aðgang að Enska boltanum sem að þeirra sögn hækkaði um 30%, þá hljóta þeir að niðurgreiða netkaupin. Þetta meikar ekki sens fyrir mér.

Re: 365 byrjaðir að bjóða upp á ljósleiðara/ljósnet

Sent: Fim 15. Ágú 2013 23:12
af MuGGz
Verðið á stöð2sport2 er komið í algjört rugl!

Hátt í 9000kr á mánuði til að horfa á enska boltann!

Sent from my GT-N7100 using Tapatalk 2

Re: 365 byrjaðir að bjóða upp á ljósleiðara/ljósnet

Sent: Fös 16. Ágú 2013 00:25
af svensven
Afhverju hækkaði innkaupaverðið svona mikið ? Voru þeir ekki með lengri samning en þetta.. um daginn sögðu þeir að þetta væri vegna þess að þeir ætluðu að vera með fleiri íslenska lýsendur :-k

Re: 365 byrjaðir að bjóða upp á ljósleiðara/ljósnet

Sent: Fös 16. Ágú 2013 07:53
af rattlehead
fyrir galin sparkunnanda sem notar ekki netið er þetta ágætis díll. Fyrir ykkur flesta sem fara vel yfir 100 gígin á mánuði horfir málið allt öðruvísi.

Re: 365 byrjaðir að bjóða upp á ljósleiðara/ljósnet

Sent: Fös 16. Ágú 2013 09:49
af Daz
rattlehead skrifaði:fyrir galin sparkunnanda sem notar ekki netið er þetta ágætis díll. Fyrir ykkur flesta sem fara vel yfir 100 gígin á mánuði horfir málið allt öðruvísi.
Þá kostar 3000 kr að bæta við 120 gb. Eða 6000 kr að bæta við 240 gb.

Ef ég væri ekki eins og hagur fastur með netið mitt annarstaðar, þá myndi ég kanna þetta betur.

Re: 365 byrjaðir að bjóða upp á ljósleiðara/ljósnet

Sent: Fös 16. Ágú 2013 18:00
af Xovius
Daz skrifaði:
rattlehead skrifaði:fyrir galin sparkunnanda sem notar ekki netið er þetta ágætis díll. Fyrir ykkur flesta sem fara vel yfir 100 gígin á mánuði horfir málið allt öðruvísi.
Þá kostar 3000 kr að bæta við 120 gb. Eða 6000 kr að bæta við 240 gb.

Ef ég væri ekki eins og hagur fastur með netið mitt annarstaðar, þá myndi ég kanna þetta betur.
Skil einmitt ekki hvað allir erunað væla yfir litlu gagnamagni. Ódýrara að hækka magnið þarna en hjá nokkrum öðrum netfyrirtækjum..

Re: 365 byrjaðir að bjóða upp á ljósleiðara/ljósnet

Sent: Fös 16. Ágú 2013 18:04
af hfwf
Xovius skrifaði:
Daz skrifaði:
rattlehead skrifaði:fyrir galin sparkunnanda sem notar ekki netið er þetta ágætis díll. Fyrir ykkur flesta sem fara vel yfir 100 gígin á mánuði horfir málið allt öðruvísi.
Þá kostar 3000 kr að bæta við 120 gb. Eða 6000 kr að bæta við 240 gb.

Ef ég væri ekki eins og hagur fastur með netið mitt annarstaðar, þá myndi ég kanna þetta betur.
Skil einmitt ekki hvað allir erunað væla yfir litlu gagnamagni. Ódýrara að hækka magnið þarna en hjá nokkrum öðrum netfyrirtækjum..
Kannski ódýrara en þarna færð í pakkanum 10gb með pakkanum, svo kostar 40gb 1000kr, sem þú þarft bókað að fá þér nema þú sért eingöngu þá meina ég eingöngu að skoða netið lítillega. Þannig ég sé þetta bara enganveginn sem gott útspil.

edit: getur bætt við 40gb 6 sinnum svo hækkar gjaldskráin í 2000kr per 20gb.