Síða 1 af 1

Aðstoð með heildun

Sent: Fim 04. Júl 2013 16:37
af Halli13
Er í smá erfiðleikum með að heilda e

Ég er með jöfnu f(x)=3e^2x, ekki getur einhver sagt mér hvernig ég heilda þetta og látið fylga með stutta útskýringu?

Re: Aðstoð með heildun

Sent: Fim 04. Júl 2013 16:41
af Padrone

Re: Aðstoð með heildun

Sent: Fim 04. Júl 2013 16:46
af Halli13
Padrone skrifaði:tékkaðu á þessu
Til hamingju þú kannt að nota google, en ef þú værir eldri en 15 ára þá mynduru átta þig á því hversu heimskulegt þetta er hjá þér.

Re: Aðstoð með heildun

Sent: Fim 04. Júl 2013 17:00
af dori
Virkar Wolfram Alpha ekki lengur?

Ah, ég sé... Núna þarf að skrá sig til að fá "step by step" solution.

Re: Aðstoð með heildun

Sent: Fim 04. Júl 2013 17:04
af Tales
Halli13 skrifaði:Er í smá erfiðleikum með að heilda e
='D Sorry þetta var of fyndið.
En allavega:
Ég myndi checka á wolframalpha.com sem er (var) go-to síða allra nemenda í stærðfræði í nokkur ár, en þarfnast nú borgaðs aðgangs til þess að fá "step-by-step explanation" sem var obv besti fídusinn. Þú getur samt fengið loka svarið þar yfirleitt, í undantekningar tilvikum færðu eitthvað rugl en síðan er í sífelldri betrumbót.

Betra fyrir þig væri hins vegar að fara bara á Khanacademy.com og einfaldlega LÆRA að gera þetta. Sal Khan er sennilega einn besti kennari í heiminum og án efa sá auðveldasti að nálgast sem kennir námsefni á háskólastigi. Síðan hýsir þúsundir myndbanda um allt milli himins og jarðar, og þessi gaur hefur alveg sérstakan hæfileika fyrir því að útskýra stærðfræði á skiljanlegan hátt.

Svarið sem þú ert að leita að hins vegar, er svona:

f(x)=3e^2x, þumalputtaregla þegar heildað er yfir e er að nota breytuskipti. Látum 2x = u. Þá eru 2dx=du, eða dx= du/2.
Nú sést að undir heildinu er aðeins ein skalar stærð, 3/2, margfaldað við fallið e^u*du. Við tökum þá bara skalarinn út fyrir heildið og heildum e^u *du.
Það er augljóslega bara aftur e^u. Nú skiptum við aftur um breytu, svo u verður aftur 2x, margföldum útkomu heildisins við stærðina fyrir utan (3/2) og við sjáum að svarið er 3/2 *e^2x.

Þetta er hugsanlega vont að skilja svona í texta, en ég mæli sterklega með khanacademy og wolframalpha ef þú ert kominn í það öngstræti að spyrja hér á spjallinu.

Re: Aðstoð með heildun

Sent: Fim 04. Júl 2013 17:09
af hfwf
Svarið er því miður 6e^2x, mjög einfalt, margfaldar 3 í 2 færð 6 6 dettur niður í stað 3 kominn með 6e, ^2x heldur sér alltaf og svarið er 6e^2x

Re: Aðstoð með heildun

Sent: Fim 04. Júl 2013 17:12
af Halli13
Tales skrifaði:
Halli13 skrifaði:Er í smá erfiðleikum með að heilda e
='D Sorry þetta var of fyndið.
En allavega:
Ég myndi checka á wolframalpha.com sem er (var) go-to síða allra nemenda í stærðfræði í nokkur ár, en þarfnast nú borgaðs aðgangs til þess að fá "step-by-step explanation" sem var obv besti fídusinn. Þú getur samt fengið loka svarið þar yfirleitt, í undantekningar tilvikum færðu eitthvað rugl en síðan er í sífelldri betrumbót.

Betra fyrir þig væri hins vegar að fara bara á Khanacademy.com og einfaldlega LÆRA að gera þetta. Sal Khan er sennilega einn besti kennari í heiminum og án efa sá auðveldasti að nálgast sem kennir námsefni á háskólastigi. Síðan hýsir þúsundir myndbanda um allt milli himins og jarðar, og þessi gaur hefur alveg sérstakan hæfileika fyrir því að útskýra stærðfræði á skiljanlegan hátt.

Svarið sem þú ert að leita að hins vegar, er svona:

f(x)=3e^2x, þumalputtaregla þegar heildað er yfir e er að nota breytuskipti. Látum 2x = u. Þá eru 2dx=du, eða dx= du/2.
Nú sést að undir heildinu er aðeins ein skalar stærð, 3/2, margfaldað við fallið e^u*du. Við tökum þá bara skalarinn út fyrir heildið og heildum e^u *du.
Það er augljóslega bara aftur e^u. Nú skiptum við aftur um breytu, svo u verður aftur 2x, margföldum útkomu heildisins við stærðina fyrir utan (3/2) og við sjáum að svarið er 3/2 *e^2x.

Þetta er hugsanlega vont að skilja svona í texta, en ég mæli sterklega með khanacademy og wolframalpha ef þú ert kominn í það öngstræti að spyrja hér á spjallinu.
Takk fyrir, þetta bjargar mér í bili
Tales skrifaði:
Halli13 skrifaði:Er í smá erfiðleikum með að heilda e
='D Sorry þetta var of fyndið.
Þetta minnir mig á nokkuð góðan aulabrandar sem ég heyrði einu sinni:

Öll föllin sátu saman á bar, síðan kom diffurskrímslið og þau hlupu öll í burtu nema f(x)=e

Re: Aðstoð með heildun

Sent: Fim 04. Júl 2013 17:23
af Tales
hfwf skrifaði:Svarið er því miður 6e^2x, mjög einfalt, margfaldar 3 í 2 færð 6 6 dettur niður í stað 3 kominn með 6e, ^2x heldur sér alltaf og svarið er 6e^2x
Þú virðist vera að diffra, kæri vinur.

Re: Aðstoð með heildun

Sent: Fim 04. Júl 2013 17:36
af hfwf
Tales skrifaði:
hfwf skrifaði:Svarið er því miður 6e^2x, mjög einfalt, margfaldar 3 í 2 færð 6 6 dettur niður í stað 3 kominn með 6e, ^2x heldur sér alltaf og svarið er 6e^2x
Þú virðist vera að diffra, kæri vinur.
My bad :)
carry on.