Síða 1 af 1

Píratar kæra kosninganar

Sent: Fös 24. Maí 2013 17:00
af hakkarin
http://www.dv.is/frettir/2013/5/24/pira ... ningarnar/" onclick="window.open(this.href);return false;

Veit ekki hvað þetta fólk heldur að það sé að afreka með þessu.

Skoðun?

Re: Píratar kæra kosninganar

Sent: Fös 24. Maí 2013 18:32
af skoffin
Þetta er allt eitthvað sem skiptir máli - og þar með er eitthvað unnið með hverju smáatriði sem er lagað í kjölfarið.

Re: Píratar kæra kosninganar

Sent: Fös 24. Maí 2013 20:07
af capteinninn
skoffin skrifaði:Þetta er allt eitthvað sem skiptir máli - og þar með er eitthvað unnið með hverju smáatriði sem er lagað í kjölfarið.
Nákvæmlega, þeir sjá galla á framkvæmdinni og þessvegna kæra þau. Þessi atriði verða þá vonandi löguð og með kærunni spretta upp umræður um framkvæmd kosninganna.

T.d. finnst mér það frekar skrítið að innsiglun salarins og eftirlitið á talningarstað sé ekki í höndum lögreglu heldur einkarekins fyrirtækis (líklega securitas eða öryggismiðstöðin). Þá er ég samt ekki að halda því fram að það sé eitthvað conspiracy í gangi en mér finnst þurfa að breyta þessu til hins betra (og á ég þá við að láta lögreglu sjá um þetta hlutverk)

Re: Píratar kæra kosninganar

Sent: Fös 24. Maí 2013 20:44
af Bioeight
Það er ástæða fyrir því að hlutverk lögreglu er minna. Sjá frétt - http://www.ruv.is/frett/engir-logreglumenn-a-kjorstodum

Re: Píratar kæra kosninganar

Sent: Fös 24. Maí 2013 20:52
af dori
Bioeight skrifaði:Það er ástæða fyrir því að hlutverk lögreglu er minna. Sjá frétt - http://www.ruv.is/frett/engir-logreglumenn-a-kjorstodum
Það er munur á kjörstað og talningarstað. Er það ekki?

Re: Píratar kæra kosninganar

Sent: Fös 24. Maí 2013 23:57
af capteinninn
Bioeight skrifaði:Það er ástæða fyrir því að hlutverk lögreglu er minna. Sjá frétt - http://www.ruv.is/frett/engir-logreglumenn-a-kjorstodum
Já ég skil það með að hafa þá ekki á kjörstað en talningarstað er að mínu mati annað.

Re: Píratar kæra kosninganar

Sent: Lau 25. Maí 2013 00:09
af beatmaster
Þeir gerðu meðal annars athugasemd við aðkomu lögreglu við framkvæmd kosninganna þannig að það var ákveðið að hætta þá að leita liðsinnis lögreglu við flutning á kjörkössum milli kjörstaða.
Framkvæmd kosningana er töfraorðið í þessari frétt, það á bæði við um kjörstaði og talningu

Re: Píratar kæra kosninganar

Sent: Lau 25. Maí 2013 00:11
af appel
Ææææi við íslendingar erum svo líbó.... er ekki bara alltílagi að hafa opna kassa? Og leyfa svo öllum að prenta kjörseðla úr A4 inkjet prentaranum sínum heima?

Re: Píratar kæra kosninganar

Sent: Lau 25. Maí 2013 03:10
af rapport
Það er eðlilegt að skrá athugasemdir og kæra til að kalla á bætt verklag...

Það er ekki verið að biðja um að kosningarnar verði gerðar ógildar eða niðurstða þeirra kærð, bara framkvæmdin...

Gott mál sem gerir okkar lýðræðislega kosningaferli betra...

Re: Píratar kæra kosninganar

Sent: Lau 25. Maí 2013 05:48
af Sallarólegur
Eru þau ekki bara að benda á hluti sem eiga að vera 100%, eðli málsins samkvæmt, en voru það ekki?

Efast um að það sem þau séu að gefa í skyn að þau hefðu fengið meira fylgi ef svo hefði verið, enda held ég að þau séu mjög ánægð með niðurstöður kosninganna.

Rétt skal vera rétt.