Síða 1 af 1

2 hljóðrásir

Sent: Mán 06. Maí 2013 14:23
af Moreno8
Sælir.

Núna horfir kærastan oft á þætti frammi í stofu meðan ég er á netinu inn í herbergi. Tölvan er tengd sjónvarpinu með HDMI snúru. Hvernig stillir maður þannig að hún er með sína hljóðrás í sjónvarpinu en ég með mína í tölvunni þannig að hún getur horft á sinn þátt og ég horft á minn eða farið í leik. Já eða bara eitthvað.

Það hlýtur að vera hægt tiltölulega auðveldlega er það ekki?

Fyrirfram þakkir!

Re: 2 hljóðrásir

Sent: Mán 06. Maí 2013 14:27
af Sallarólegur
Búinn að skoða 'Audio' stillingarnar í forritinu? Líklega hægt að velja 'output', t.d. í VLC.