Síða 1 af 2

HTC One Dev Edition Vs. Samsung Galaxy S4

Sent: Mið 01. Maí 2013 18:14
af chaplin
Jæja piltar, nokkrar spurningar og pælingar varðandi símana.

Mynd

- Hvorn símann myndu þið kjósa og afhverju?
- Er e-h umboðsaðili fyrir HTC á Íslandi? Er þá aðalega að hugsa varðandi rafhlöðuna þar sem ef hún bilar, er síminn gott sem ónýtur nema því það er nánast ómögulegt að skipta út rafhlöðunni nema með miklum kostnaði og skemmir það gjörðina víst að eitthverju leiti.
- Rökstuðningur er vel þeginn hjá þeim sem kjósa.

Það það sé ekki microSD rauf er ekki vandamál fyrir mér.

Re: HTC One Dev Edition Vs. Samsung Galaxy S4

Sent: Mið 01. Maí 2013 18:48
af atlifreyrcarhartt
Eg a s3 t.d. og eg se eingan ókost við hann, en htc eg hef heyrt slæmt af teim :/ min skoðun er samsung s2 3 eda 4 allt mjog goðir simar

Re: HTC One Dev Edition Vs. Samsung Galaxy S4

Sent: Mið 01. Maí 2013 18:56
af FreyrGauti
Tæki HTC One, finnst hann flottari og er búinn að eiga tvo HTC og er mjög ánægður með þá, er með HTC One S núna.

Hátækni er "umboðsaðili" fyrir þá en senda alla síma út í viðgerð.

Re: HTC One Dev Edition Vs. Samsung Galaxy S4

Sent: Mið 01. Maí 2013 18:57
af chaplin
HTC One

Kostir:
- Betur byggður
- Betri myndavél við lítil birtuskilyrði
- Zoe
- Betri skjár
- Betri hátalarar
- Meira "smooth" í vinnslu
- Betri rafhlöðuending
- USB viðmót (USB Interface, hef ekki hugmynd um hvað það er)
- FM Útvarp
- Almennt talinn betri sími í "review"-um.

GSM Arena Dómar:
Design: 8.4
Features: 8.3
Performance: 8.4

Galaxy S4

Kostir:
- Stærri skjár
- Öflugri búnaðir
- Nýrri hugbúnaður
- Hægt að fjarlægja rafhlöðu
- Hægt að bæta við SD korti
- Betri myndavél í nema við lítil birtuskilyrði
- Meira af hugbúnaði (S. Translator, S. Health os.frv.)
- Betra multitasking
- Rakamælir (?)
- Hitamælir (?)
- Hægt að halað þráðlaust (með aukabúnaði)

GSM Arena Dómar:
Design: 6.3
Features: 7.0
Performance: 7.1

Re: HTC One Dev Edition Vs. Samsung Galaxy S4

Sent: Mið 01. Maí 2013 18:59
af chaplin
atlifreyrcarhartt skrifaði:Eg a s3 t.d. og eg se eingan ókost við hann, en htc eg hef heyrt slæmt af teim :/ min skoðun er samsung s2 3 eda 4 allt mjog goðir simar
Hef átt HTC Desire og S2, ánægður með báða símana en HTC finnst mér vera mun meiri gæðasími, algjör tankur.
FreyrGauti skrifaði:Tæki HTC One, finnst hann flottari og er búinn að eiga tvo HTC og er mjög ánægður með þá, er með HTC One S núna.

Hátækni er "umboðsaðili" fyrir þá en senda alla síma út í viðgerð.
Ef ég kaupi síma erlendis, veistu hvort ég gæti þá farið með símann til Hátækni ef hann skildi klikka og þeir sjá um allt ferlið?

Re: HTC One Dev Edition Vs. Samsung Galaxy S4

Sent: Mið 01. Maí 2013 19:12
af fedora1
S4, á sjálfur htc legend, en konan á S3. HTC er ekki að standa sig í uppfærslum. Mun aldrei kaupa mér HTC síma aftur.

Re: HTC One Dev Edition Vs. Samsung Galaxy S4

Sent: Mið 01. Maí 2013 19:47
af KermitTheFrog
Er sjálfur með S4 og dýrka hann. Var með S2 fyrir.

Hef ekki reynslu af HTC þó.

Sent from my GT-I9505 using Tapatalk 2

Re: HTC One Dev Edition Vs. Samsung Galaxy S4

Sent: Mið 01. Maí 2013 19:48
af Unnaro
Veit einhver hér hvenær HTC One á að koma í búðir hér á landi?

Re: HTC One Dev Edition Vs. Samsung Galaxy S4

Sent: Mið 01. Maí 2013 20:37
af slapi
Ég er gjörsamlega veikur yfir HTC One en ekkert spenntur yfir S4.
One er miklu flottari aími og betur byggður.

Re: HTC One Dev Edition Vs. Samsung Galaxy S4

Sent: Mið 01. Maí 2013 21:28
af DaRKSTaR
s4.. er að bíða eftir octacore og sjá hvort hann hafi fm útvarp, ef svo er þá upgrada ég s3-inn.

Re: HTC One Dev Edition Vs. Samsung Galaxy S4

Sent: Mið 01. Maí 2013 21:39
af FreyrGauti
chaplin skrifaði:
FreyrGauti skrifaði:Tæki HTC One, finnst hann flottari og er búinn að eiga tvo HTC og er mjög ánægður með þá, er með HTC One S núna.

Hátækni er "umboðsaðili" fyrir þá en senda alla síma út í viðgerð.
Ef ég kaupi síma erlendis, veistu hvort ég gæti þá farið með símann til Hátækni ef hann skildi klikka og þeir sjá um allt ferlið?
Finnst það ólíklegt, mögulega ef þú kaupir hann í evrópu. Best að hringja í þá og spurja.

Re: HTC One Dev Edition Vs. Samsung Galaxy S4

Sent: Mið 01. Maí 2013 21:55
af chaplin
Þrátt fyrir að hann sé Octo-core, getur þú eingöngu nýtt 4 kjarna í einu. Aðal munurinn liggur í skjástýringunum, Adreno 320 vs PowerVR SGX 544MP3. Af því sem ég hef lesið er PowerVR um tvöfalt öflugri en A320.

Báðir símarnir verða því gott sem identical í afli, um eða aðeins öflugri en iP5.

Re: HTC One Dev Edition Vs. Samsung Galaxy S4

Sent: Mið 01. Maí 2013 21:59
af andrespaba
Unnaro skrifaði:Veit einhver hér hvenær HTC One á að koma í búðir hér á landi?
Hef einmitt verið að leita eftir upplýsingum, en finn ekkert. Er einhver insider hérna sem veit e-ð?

Re: HTC One Dev Edition Vs. Samsung Galaxy S4

Sent: Mið 01. Maí 2013 22:03
af hfwf
DaRKSTaR skrifaði:s4.. er að bíða eftir octacore og sjá hvort hann hafi fm útvarp, ef svo er þá upgrada ég s3-inn.
kemur ekki með fm-radio.

Re: HTC One Dev Edition Vs. Samsung Galaxy S4

Sent: Mið 01. Maí 2013 22:23
af tveirmetrar
Þetta með Micro SD kortið og non removable battery gerir alveg útslagið fyrir mér...
En ég er reyndar alveg einstaklega storage sjúkur :)
S4 svona rétt rétt hefur það fyrir minn part...

Samt helvíti flottur HTC síminn.

Ps. Finnst líka vanta að henda inn upplýsingum um verðin á þeim ef þú ætlar að bera þá saman...

Pps. og kannski linka á réttann síma í GSM arena, þ.e. ef þú ert að tala um I9500 útgáfuna (Octa core).

Ppps. Og setja þá líka inn rétt performance score í samanburðinum þínum...

Bara svona til að vera ANAL :guy

Re: HTC One Dev Edition Vs. Samsung Galaxy S4

Sent: Mið 01. Maí 2013 22:26
af DaRKSTaR
hfwf skrifaði:
DaRKSTaR skrifaði:s4.. er að bíða eftir octacore og sjá hvort hann hafi fm útvarp, ef svo er þá upgrada ég s3-inn.
kemur ekki með fm-radio.
það er spurning.. ég veit að 4 kjarna er seldur hér með og án fm t.d síminn að selja síma án fm en nova hinsvegar með þá með fm. hugsa að sama muni verða með octa
er ekki bara spurning um típu.. þessir án fm ætlaðir ameríkunni en hinir evrópu með fm?

Re: HTC One Dev Edition Vs. Samsung Galaxy S4

Sent: Mið 01. Maí 2013 22:27
af gissur1
HTC One því mér finnst hann líta út fyrir að vera gæðalegri sími. Ál vs plast.

Útlit og ending skiptir mig meira máli en smá performance munur.

Og skjárinn á One lítur út fyrir að vera rosalegur.

Re: HTC One Dev Edition Vs. Samsung Galaxy S4

Sent: Mið 01. Maí 2013 22:31
af tveirmetrar
Finna þér þessa útgáfu :D
Octa core og Dual SIM option.

Re: HTC One Dev Edition Vs. Samsung Galaxy S4

Sent: Mið 01. Maí 2013 22:42
af tveirmetrar
chaplin skrifaði:Þrátt fyrir að hann sé Octo-core, getur þú eingöngu nýtt 4 kjarna í einu. Aðal munurinn liggur í skjástýringunum, Adreno 320 vs PowerVR SGX 544MP3. Af því sem ég hef lesið er PowerVR um tvöfalt öflugri en A320.

Báðir símarnir verða því gott sem identical í afli, um eða aðeins öflugri en iP5.
WRONG! :guy I9500 kemur líka með PowerVR SGX 544MP3 skjástýringunni, plús 1 stk Quad-core 1.6 GHz Cortex-A15 og já svo er annar örri quad-core 1.2 GHz Cortex-A7...
Efast einhvern vegin að HTC-inn sé alveg jafn öflugur. :-k

Re: HTC One Dev Edition Vs. Samsung Galaxy S4

Sent: Mið 01. Maí 2013 22:48
af chaplin
tveirmetrar skrifaði: Ps. Finnst líka vanta að henda inn upplýsingum um verðin á þeim ef þú ætlar að bera þá saman...

Pps. og kannski linka á réttann síma í GSM arena, þ.e. ef þú ert að tala um I9500 útgáfuna (Octa core).

Ppps. Og setja þá líka inn rétt performance score í samanburðinum þínum...

Bara svona til að vera ANAL :guy
1. One DE 64gb kostar $650. S4 16gb kostar $600. Finnst það eðlilegt að greiða $50 fyrir 48gb.

2. i9505 er seldur á Íslandi, ekki i9500.

3. Þetta eru réttu tölurnar.

;)

Re: HTC One Dev Edition Vs. Samsung Galaxy S4

Sent: Mið 01. Maí 2013 22:54

Varstu ekki að tala um að panta þér síma að utan? Og varstu ekki að tala um I9500 útgáfuna? (Settir allavega specana af honum efst...)

Re: HTC One Dev Edition Vs. Samsung Galaxy S4

Sent: Mið 01. Maí 2013 22:57
af Tesy
tveirmetrar skrifaði:
chaplin skrifaði:Þrátt fyrir að hann sé Octo-core, getur þú eingöngu nýtt 4 kjarna í einu. Aðal munurinn liggur í skjástýringunum, Adreno 320 vs PowerVR SGX 544MP3. Af því sem ég hef lesið er PowerVR um tvöfalt öflugri en A320.

Báðir símarnir verða því gott sem identical í afli, um eða aðeins öflugri en iP5.
WRONG! :guy I9500 kemur líka með PowerVR SGX 544MP3 skjástýringunni, plús 1 stk Quad-core 1.6 GHz Cortex-A15 og já svo er annar örri quad-core 1.2 GHz Cortex-A7...
Efast einhvern vegin að HTC-inn sé alveg jafn öflugur. :-k
Eins og Chaplin sagði, þú getur ekki nýtt meira en 4 kjarna í einu í S4 þannig að hann er ekkert svo mikið öflugari. S4 vinnur kanski í benchmark og eitthvað en þetta eru bara tölur.. Það sem skiptir máli er real life performance og þú munt ekki sjá mun á þeim tbh.

Spurningin er eiginlega bara, hvort finnst þér vera mikilvægara? Build quality eða removable battery og SD-kort.

Re: HTC One Dev Edition Vs. Samsung Galaxy S4

Sent: Mið 01. Maí 2013 23:00
af tveirmetrar
Já ég er ennþá að reyna að fá á hreint hvort við séum að tala um I9500 eða I9505.
Því 9500 útgáfan er ekki bara Octa core, heldur eins og Chaplin sagði, hann er einnig með mun öflugri skjástýringu.

Re: HTC One Dev Edition Vs. Samsung Galaxy S4

Sent: Mið 01. Maí 2013 23:02
af chaplin
tveirmetrar skrifaði: WRONG! :guy I9500 kemur líka með PowerVR SGX 544MP3 skjástýringunni, plús 1 stk Quad-core 1.6 GHz Cortex-A15 og já svo er annar örri quad-core 1.2 GHz Cortex-A7...
Efast einhvern vegin að HTC-inn sé alveg jafn öflugur. :-k
Ugh..

One og i9505 eru með sama örgjörva og sömu stýringu, i9505 er þó klukkað örlítið hærra og því eru þeir gott sem identical í afli.

i9500 er þó með annan örgjörva og stýringu, rétt eins og ég nefndi. Og sú stýring er um tvöfalt öflugri en stýringin sem er í One, rétt eins og ég nefndi.

i9500 mun því vera með nánast tvöfalt öflugri stýringu en iP5 notar í dag, en i9505 og One verða sambærilegir iP5 í afli. Því verður i9500 um tvöfalt öflugri en i9505 og One í keyrslum sem krefjast öflugrar skjástýringu. Það er þó ekki sama sagan um vinnslu sem örgjörvinn sér um, amk. ekki ef það verður ekki hægt að keyra alla 8 kjarnana á sama tíma.

Hættu svo að snúa útúr rauðhærði sálarlausi sauður og bjóddu mér frekar upp á bjór í tilefni gærdagsins. :happy

Re: HTC One Dev Edition Vs. Samsung Galaxy S4

Sent: Mið 01. Maí 2013 23:14

Read the question please.
Ertu að bera saman HTC ONE og I9505
Eða ertu að bera saman HTC ONE og I9500

Afþví að efst á síðunni ertu svo almennilegur að gefa specca fyrir I9500
En svo í næstu innsendingu linkaru á I9505...

Maður þarf ekki að vera rauðhærður til að geta spottað svona dvergamistök.

haha sem þú varst að laga...

Idiot :guy