Síða 1 af 1
Millifæra pening milli landa ?
Sent: Fös 12. Apr 2013 23:02
af mundivalur
Sæl/ir
Hvernig er það, er hægt að millifæra pening milli landa eða úr banka inná paypal ?
Ég er hjá sparisjóðnum !
Re: Millifæra pening milli landa ?
Sent: Fös 12. Apr 2013 23:07
af AntiTrust
Tengir bara kreditkortið þitt við Paypal og millifærir þaðan, nokkrar leiðir þar, hann getur m.a. bara sent á þig greiðslukröfu m. email addressu.
Re: Millifæra pening milli landa ?
Sent: Fös 12. Apr 2013 23:14
af mundivalur
Já er að spá því að það eru ekki allir með paypal því miður, það eru samt einhverjir bankar hér með svona kerfi !
Þetta er ss. ungur gaur sem ekki er með paypal
Re: Millifæra pening milli landa ?
Sent: Fös 12. Apr 2013 23:30
af Moldvarpan
Í bankanum þínum?
Eða heimabankanum undir gjaldeyrisviðskipti?
Re: Millifæra pening milli landa ?
Sent: Fös 12. Apr 2013 23:36
af mundivalur
Ég þarf að skoða það betur
Re: Millifæra pening milli landa ?
Sent: Lau 13. Apr 2013 00:00
af Bjosep
Ef þú ætlar að millifæra "hefðbundið" þá líklegast þarftu IBAN og SWIFT númer. Borgar allavega reikninga milli landa á þann hátt.
Re: Millifæra pening milli landa ?
Sent: Lau 13. Apr 2013 00:06
af mundivalur
Já var einmitt búinn að heyra um þetta IBAN og SWIFT ætli ég þurfi ekki bara að tala við bankann um það
Re: Millifæra pening milli landa ?
Sent: Lau 13. Apr 2013 00:33
af gugglan
getur líka notað western union ef sá sem þú ert að millifæra á hefur þannig þjónustu í sínu landi
Re: Millifæra pening milli landa ?
Sent: Lau 13. Apr 2013 00:43
af Xovius
mundivalur skrifaði:
Þetta er ss. ungur gaur sem ekki er með paypal
Fór strax að hugsa nígeríusvindl
Re: Millifæra pening milli landa ?
Sent: Lau 13. Apr 2013 01:17
af Minuz1
Vilt ekki nota SWIFT nema með stórar fjárhæðir, gríðarlegur kostnaður þar á ferð.
sjá t.d hér
http://support.envato.com/index.php?/Kn ... sfers-cost" onclick="window.open(this.href);return false;
Re: Millifæra pening milli landa ?
Sent: Lau 13. Apr 2013 03:58
af worghal
það var einmitt einhver gaur hér á landi sem var að borga með svona millifærslu vegna bíla varahluta og þegar peningurinn skilaði sér loksins þá var um helmingur peningsins farinn í gjöld fyrir að millifæra og hafði þessi millifærsla stoppað hjá 3-5 bönkum áður en hún komst á leiðarenda.
Re: Millifæra pening milli landa ?
Sent: Lau 13. Apr 2013 08:09
af hkr
gugglan skrifaði:getur líka notað western union ef sá sem þú ert að millifæra á hefur þannig þjónustu í sínu landi
Get tekið undir þetta, t.d. er landsbankinn með þetta:
http://www.landsbankinn.is/einstaklinga ... ternunion/" onclick="window.open(this.href);return false;
Re: Millifæra pening milli landa ?
Sent: Lau 13. Apr 2013 11:05
af Icarus
worghal skrifaði:
það var einmitt einhver gaur hér á landi sem var að borga með svona millifærslu vegna bíla varahluta og þegar peningurinn skilaði sér loksins þá var um helmingur peningsins farinn í gjöld fyrir að millifæra og hafði þessi millifærsla stoppað hjá 3-5 bönkum áður en hún komst á leiðarenda.
Ég lenti í því sama, var að panta varahluti frá Bandaríkjunum og þeir tóku ekki við íslenskum kreditkortum né paypal.
Re: Millifæra pening milli landa ?
Sent: Lau 13. Apr 2013 13:13
af methylman
hef notað margar millifærsluleiðir og ef ekki er paypal.com viðtakandi þá má líta á
http://www.moneybookers.com" onclick="window.open(this.href);return false; sem val ?