Síða 1 af 1
Verð á símsterng/símalínu
Sent: Fös 12. Apr 2013 21:53
af krissi24
Hvað kostar þessi mjóa lína frá inntaki í símdós? Ég veit að nú til dags notar maður Ethernet snúru í svona lagað en ég vil hinsegin í mínu tilfelli. Hvað kostar meterinn af þessu og hvar fæ ég þetta?
Re: Verð á símsterng/símalínu
Sent: Fös 12. Apr 2013 21:56
af Xberg
Byko / Húsasmiðjan, ca. 20.kr meterinn sennilega.
Re: Verð á símsterng/símalínu
Sent: Fös 12. Apr 2013 21:58
af roadwarrior
Sá um daginn að Bauhaus er með gott úrval af strengjum til að mæla niður. Getur athugað hjá þeim td
Ef þig vantar fáeina metra er það best að kaupa hjá þeim en ef þig vantar mikið 40-80 mtr gæti borgað sig að kaupa rúllu. Þær eru umþaðbil 100 mtr.
Fer eftir fjölda para hvað metrerinn kostar, myndi skjóta á 40-60kr á meterinn fyrir 2 para streing en það er án abyrgðar
Re: Verð á símsterng/símalínu
Sent: Fös 12. Apr 2013 22:43
af krissi24
Takk fyrir svörin
Ég er reyndar í Reykjanesbæ en ætla að athuga þetta í Byko.... Myndi giska á að 15m væri nóg. Er ekki 2 para alveg nóg? Það er einungis router sem verður tengdur í þessa línu :p Hvað er þessi gerð af símalínu kölluð?
Re: Verð á símsterng/símalínu
Sent: Lau 13. Apr 2013 11:51
af moog
Yfirleitt kallað bara Símastrengur... passa bara að kaupa solid koparvír, þ.e. ekki fjölþátta vír eins og er í flatköplum t.d.
Re: Verð á símsterng/símalínu
Sent: Lau 13. Apr 2013 12:11
af tdog
í bransanum köllum við þetta tveggja línu (innanhús) streng