Síða 1 af 1
Vesen með örgjörva
Sent: Mið 20. Feb 2013 10:45
af krissi24
Ég er með Dell dimension 4700 en það vantar apparatið ofaná örgjörvann. Hvar fæ ég svoleiðis? Sendi með myndir.

Re: Vesen með örgjörva
Sent: Mið 20. Feb 2013 10:55
af Hnykill
Skrepptu bara í Tölvulistann eða Tölvutek á eftir og biddu um einhverja odýra viftu fyrir LGA 775 Socket örgjörva. Orginal viftan er ekkert sérstök svo allt fyrir ofan hana er + .
Re: Vesen með örgjörva
Sent: Mið 20. Feb 2013 11:02
af krissi24
Hnykill skrifaði:Skrepptu bara í Tölvulistann eða Tölvutek á eftir og biddu um einhverja odýra viftu fyrir LGA 775 Socket örgjörva. Orginal viftan er ekkert sérstök svo allt fyrir ofan hana er + .
Hvað kostar þetta sirka samtals með ál kællielemetinu og rammanum?
Re: Vesen með örgjörva
Sent: Mið 20. Feb 2013 11:07
af krissi24
Ætlaði ekki að setja þetta inní þennan flokk, afsakið það.

Re: Vesen með örgjörva
Sent: Mið 20. Feb 2013 11:19
af Guðni Massi
krissi24 skrifaði:Hvað kostar þetta sirka samtals með ál kælielementinu og rammanum?
Við snögga skoðun myndi ég giska á ~4.000 kr
http://tl.is/product/cooler-master-vort ... r-intel-lp
http://www.tolvutek.is/vara/thermaltake ... 6-1155-775
Og það fylgir oftast hitaleiðandi krem með örgjörvakælingum, en ef ekki þarftu að kaupa svoleiðis . Það er 500-1000 kr.
http://www.tolvutek.is/vorur/tolvuihlut ... em?order=3
http://tl.is/products/kaelikrem
Re: Vesen með örgjörva
Sent: Mið 20. Feb 2013 12:32
af Olli
festingin á 775 er ferningur, þetta er spes DELL crap sýnist mér..
Re: Vesen með örgjörva
Sent: Mið 20. Feb 2013 13:20
af Hnykill
Olli skrifaði:festingin á 775 er ferningur, þetta er spes DELL crap sýnist mér..
Neibb, bara þessi venjulegu 4 göt fyrir 775 kælingu. einfalt of fljótlegt að skella þessu á.
Re: Vesen með örgjörva
Sent: Mið 20. Feb 2013 13:31
af viddi
Þetta er eitthvað spes Dell dæmi sýnist mér, vantar bracketið sem á að vera þarna í götunum
Held að það sé best að tala við Advania
Re: Vesen með örgjörva
Sent: Mið 20. Feb 2013 13:53
af Klemmi
Hnykill skrifaði:Olli skrifaði:festingin á 775 er ferningur, þetta er spes DELL crap sýnist mér..
Neibb, bara þessi venjulegu 4 göt fyrir 775 kælingu. einfalt of fljótlegt að skella þessu á.
Þetta eru EKKI venjulegu 775 götin.
Re: Vesen með örgjörva
Sent: Mið 20. Feb 2013 14:07
af Hnykill
Re: Vesen með örgjörva
Sent: Mið 20. Feb 2013 16:48
af krissi24
Hvaða, hvaða hehe

Ég spurði nú um þetta afþví að ég hafði ekki hugmynd um þessi mál... hehe

Re: Vesen með örgjörva
Sent: Mið 20. Feb 2013 16:55
af krissi24
viddi skrifaði:Þetta er eitthvað spes Dell dæmi sýnist mér, vantar bracketið sem á að vera þarna í götunum
Held að það sé best að tala við Advania
Ég geri það... Þakka þér kærlega fyrir
