Síða 1 af 2

Slökkt á Windows Live Messenger

Sent: Þri 15. Jan 2013 00:52
af krissi24
Eins og fram hefur komið þá verður Slökkt á Windows Live Messenger þann 15 mars næstkomandi..... Ég hætti reyndar að nota þessa samskiptaþjónustu fyrir að verða 3 - 4 árum.... Hvað finnst ykkur um þetta samt sem áður? :p

Re: Slökkt á Windows Live Messenger

Sent: Þri 15. Jan 2013 00:54
af axyne
Eru ekki allir hættir að nota þetta og því er verið að hætta með þetta.
Mér er a.m.k slétt sama.

Re: Slökkt á Windows Live Messenger

Sent: Þri 15. Jan 2013 00:57
af bulldog
ég hef ekki notað msn messenger í mörg ár. good riddance

Re: Slökkt á Windows Live Messenger

Sent: Þri 15. Jan 2013 00:58
af worghal
fór á msn svona upp á djókið um daginn.
2 online af um 200

Re: Slökkt á Windows Live Messenger

Sent: Þri 15. Jan 2013 01:03
af krissi24
Hehe :P Microsoft vill meina það að email reikningarnir verða færðir yfir á samskiptakerfi Skype sem er einnig í eigu Microsoft.... Ef ég átti semsagt hotmail: krissi24@live.com, myndi það þá verða: krissi24@skype.com..... Eða munu bara allir email reikningarnir þurrkast út? Eða ætla þeir að uppfæra skype þannig að það verði líka email-a samskiptakerfi? Bara svona spurning.... :P

Re: Slökkt á Windows Live Messenger

Sent: Þri 15. Jan 2013 01:40
af Black
Ég sem var að setja nýja Display mynd Mynd

Re: Slökkt á Windows Live Messenger

Sent: Þri 15. Jan 2013 07:37
af Svansson
Félagi minn notar þetta til að tala við kæró útí Canada, ennþá eithvað vinsælt þar. Hef marg oft sagt honum að skipta út í skype en hann hlustar ekki. Núna virðist sem hann fái ekkert um það að segja.

Re: Slökkt á Windows Live Messenger

Sent: Þri 15. Jan 2013 08:00
af GuðjónR
Ég nota MSN oft á dag...mun sakna þess.
Sé ekki hvernir Skype á að koma í staðin fyrir msn.
Þetta er í stíl við annað hjá Microsoft, þeir taka tvö skref áfram og svo tíu afturábak.

Re: Slökkt á Windows Live Messenger

Sent: Þri 15. Jan 2013 08:02
af emmi
Þú getur signað þig inná MSN með Skype forritinu. Eins og ég skil þetta þá eru þeir að losa sig við MSN clientinn sjálfan en networkið verður uppi áfram.

Re: Slökkt á Windows Live Messenger

Sent: Þri 15. Jan 2013 08:08
af GuðjónR
emmi skrifaði:Þú getur signað þig inná MSN með Skype forritinu. Eins og ég skil þetta þá eru þeir að losa sig við MSN clientinn sjálfan en networkið verður uppi áfram.
Ahh þannig að í sjálfu sér eru þeir ekki að drepa MSN beint, heldur vilja stýra því hvaða forrit við notum til að nýta þjónustuna.
Ég er nú svo vanafastur að ég myndi 100x frekar vilja msn/adium en þetta skype dót, nota það örsjaldan til að hringja í ættingja í Svíþjóð, hef ekki tekið eftir MSN fídus þar. Verð að skoða það betur.

Re: Slökkt á Windows Live Messenger

Sent: Þri 15. Jan 2013 08:19
af Frost
Hef ekki notað MSN í svo langan tíma, kominn tími á að það var slökkt á þessu :D.

Skype hefur tekið yfir hjá mér.

Re: Slökkt á Windows Live Messenger

Sent: Þri 15. Jan 2013 08:38
af Senko
Er einmitt að merga skypeið og MSNið hjá mér, er í því að deleta mörg hundruð contactum sem maður hefur ekki talað við í mörg ár af MSN, annars hef ég altaf verið meira fyrir MSN, en það er alveg rétt að það er að verða úrelt miðað við skype / facebook chat, allavegana þegar það kemar að því hversu margir nota það.

Re: Slökkt á Windows Live Messenger

Sent: Mið 16. Jan 2013 17:17
af Icarus
Ég nota þetta nú öðru hvoru, tala við nokkra sem eru ekki á facebook og svona. held ég muni samt ekkert missa svefn þó þessu sé lokað.

væri til í að sjá hvernig þeir ætla að útfæra þennan samruna, ég er með eitt e-mail á msn og annað á skype. Einnig finnst mér leiðinlegt með Skype er að samtölin geymast alltaf, jafnvel þó maður sé ekki skráður inn, þá nær clientinn í þau þegar maður svo skráir sig inn. Of public þegar maður er ekki eini notandinn að tölvunni.

Re: Slökkt á Windows Live Messenger

Sent: Mið 16. Jan 2013 17:36
af upg8
Það er verið að færa ALLAR þjónustur undir sama hatt, eitt login fyrir Xbox Live, Skydrive, Skype, Windows 8. Office 365 osfv. Ferlið til að sameina þetta er mjög einfalt, bara velja áfram og áfram og samþykkja ;)

Er miklu einfaldara fyrir alla að þurfa ekki að vera með tugi af mismunandi lykilorðum og þar sem Skype gerir nánast allt það sama og MSN gerði þá fagna ég því að nú verði öll áherslan lögð á Skype.

Facebook átti líklega stærsta þáttinn í falli MSN. Facebook er aðgengilegt í gegnum Skype og Skype er aðgengilegt í gegnum Facebook svo það er aðeins auðveldara að ná til þeirra sem ekki nenna að setja upp eitthvern client hjá sér.

Re: Slökkt á Windows Live Messenger

Sent: Mið 16. Jan 2013 17:58
af GuðjónR
upg8 skrifaði:Facebook átti líklega stærsta þáttinn í falli MSN.
Kannsi...mig grunar samt að þetta sé liður í því að markaðssetja Skype sem M$ keypti af eBay á sínum tíma fyrir 8.5 milljarða dollara!
http://www.wired.com/business/2011/05/m ... s-skype-2/" onclick="window.open(this.href);return false;

Re: Slökkt á Windows Live Messenger

Sent: Fim 17. Jan 2013 00:00
af krissi24
En hvað verður þá um Email þjónustuna? Hverfur allur tölvupósturinn eða? Og þá er ég aðallega að tala um þessi pósta sem tilheyra fortíðinni.... Kannski að maður ætti bara að taka afrit af þeim? :p

Re: Slökkt á Windows Live Messenger

Sent: Fim 17. Jan 2013 00:09
af upg8
krissi þú getur notað þitt e-mail áfram, þú loggar þig áfram inn með því. Ég ákvað að nýta mér tækifærið og breyta um e-mail address þegar það var opnað á outlook.com, -flutningurinn gekk fullkomlega fyrir sig og öll e-mail sem eru send á gamla e-mailið berast á það nýja. Allt þetta gamla er aðgengilegt hjá mér, auk þess geturðu alltaf gert merge á nokkra accounta og haft þá aðgengilega, t.d. ef þú ert foreldri og hefur yfirumsjón með netföngum barna þinna.

Re: Slökkt á Windows Live Messenger

Sent: Fös 18. Jan 2013 16:06
af krissi24
upg8 skrifaði:krissi þú getur notað þitt e-mail áfram, þú loggar þig áfram inn með því. Ég ákvað að nýta mér tækifærið og breyta um e-mail address þegar það var opnað á outlook.com, -flutningurinn gekk fullkomlega fyrir sig og öll e-mail sem eru send á gamla e-mailið berast á það nýja. Allt þetta gamla er aðgengilegt hjá mér, auk þess geturðu alltaf gert merge á nokkra accounta og haft þá aðgengilega, t.d. ef þú ert foreldri og hefur yfirumsjón með netföngum barna þinna.
Já þannig.... :p hehe, Ég sem er búinn að færa konuna yfir á gmail og allar þær þjónustur sem tengdust hotmail-inu hennar yfir á nýja gmail-ið hehe! Ég sjálfur hef notað gmail í 6 - 7 ár.... :p

Re: Slökkt á Windows Live Messenger

Sent: Fös 18. Jan 2013 22:26
af intenz
Mér finnst þetta bara allt í lagi. Ég þekki engan sem var ennþá að nota MSN. En ég nota Skype hins vegar mjög mikið og veit um fullt af fólki sem notar það sem aðal samskiptaforrit í dag - fyrir utan Facebook chat.

Re: Slökkt á Windows Live Messenger

Sent: Mán 28. Jan 2013 14:06
af Jón Ragnar
Spjallið í Skype finnst mér forljótt eins og annað viðmót.

Messenger er notaður fáránlega mikið í fyrirtækjum ennþá sem eru ekki með Office Communicator / Lync, Spurning hvort menn noti Skype þá í staðinn

Re: Slökkt á Windows Live Messenger

Sent: Mán 28. Jan 2013 14:08
af dori
Google talk -> 17x þægilegra í notkun en Skype.

Re: Slökkt á Windows Live Messenger

Sent: Mið 30. Jan 2013 04:00
af lyfsedill
hvað halda menn eða vita? verður hægt að nota msn áfram á netsíðum eins og iloveim.com, ebuddy.com og imo.im? veit einhver það?

Re: Slökkt á Windows Live Messenger

Sent: Mið 30. Jan 2013 08:29
af Haxdal
það er verið að drepa Windows Live vörumerkið, öll MSN virknin færð undir Skype og búa til einn unified Microsoft account einsog upg8 sagði sem meikar alveg sense, þú ert ekki með 5 mismunandi aðganga til að komast inná google dótið þitt .. af hverju ætti að þurfa helling af mismunandi aðgöngum til að komast inná microsoft dótið :)

Annars er ég eiginlega hættur á MSN, tala við 2 einstaklinga þar .. nota bara Facebook fyrir allt annað, setti bara facebook chattið upp í Pidgin svo það hefur alveg komið í staðinn fyrir MSN :)

Re: Slökkt á Windows Live Messenger

Sent: Fim 31. Jan 2013 21:50
af lyfsedill
hvað halda menn eða vita? verður hægt að nota msn áfram á netsíðum eins og iloveim.com, ebuddy.com og imo.im? Eða gegnum pidgin? veit einhver það?

Re: Slökkt á Windows Live Messenger

Sent: Fim 31. Jan 2013 22:17
af Xovius
Ég hætti að nota MSN þegar þeir breyttu forritinu algjörlega, það eyðilagðist eiginlega alveg í mínum augum. Síðan hef ég notað skype og er bara mjög sáttur með það :)