Síða 1 af 1

Netflix

Sent: Mán 14. Jan 2013 01:58
af laruswelding
Afsakið ef ég er alveg út á túni, en ég er búinn að vera að spá í að fá mér Netflix, er þetta algjörlega málið eða ? Hvernig er með eins og t.d. erlenda niðurhalið, klárast það ekki um leið ef maður notar þetta eitthvað af viti. Er hægt að komast einhvernveginn framhjá því ? playmotv ?????

Re: Netflix

Sent: Mán 14. Jan 2013 02:49
af Nariur
Þú kemst ekki framhjá erlenda downloadinu, SD efni er, að mig minnir, u.þ.b. 500 MB/klst svo hófleg notkun drepur ekki DL-ið. Nú er spurning hvort það sé hægt að nota DNS hjá playmo.tv og VPN hjá netsamskiptum saman, þá væri hægt að horfa á ótkmarkað magn af HD efni... þá væri maður reyndar kominn í áskrift á 3 stöðum og farinn að borga 2490 fyrir VPN, $5 fyrir DNS og $8 fyrir netflix = kr. 4162 á mánuði. Þú gætir reyndar farið í minnsta gagnamagn hjá ISP og sparað þar.

Re: Netflix

Sent: Mán 14. Jan 2013 09:24
af sibbsibb
Ég er að streama allt í HD og það er gjörsamlega að éta upp downloadið mitt. Er með 140gb frá Símanum og er yfirleitt að fara vel uppí maxið. Ég með netflix í Smarttv svo ég hef engan option að breyta að ég held í only SD stream. Á góðum sunnudegi í þynku í sófanum er ég að fara með uþb 17-18 gb. EEEEN mér finnst Netflix algjör snilld og tími alveg að borga fyrir það sem er ca 2000 og svo ca 1000 kr update í nettengingu ef ég man rétt... var með næst stærstu (gæti verið meira á milli þar, man það ekki og er svo sem ekkert að spá of mikið í því heldur).

Re: Netflix

Sent: Mán 14. Jan 2013 09:45
af AntiTrust
Nokkuð viss um að Netflix býður þér uppá stjórnun á streymisgæðum, stillingin í user panelnum hlýtur að vera global (þ.e. á við um öll tæki) ?

Re: Netflix

Sent: Mán 14. Jan 2013 09:59
af Daz
AntiTrust skrifaði:Nokkuð viss um að Netflix býður þér uppá stjórnun á streymisgæðum, stillingin í user panelnum hlýtur að vera global (þ.e. á við um öll tæki) ?
Það er hægt á síðunni hjá þeim, var einmitt að vesenast með að Netflix hökt á spjaldtölvunni hjá mér, fann stillinguna á heimasíðunni (Quality = Good minnir mig) og þá hætti höktið.

Re: Netflix

Sent: Mán 14. Jan 2013 10:01
af BugsyB
eftir að ég fékk mér netflix þá jókst gagnamagið úr 10gb í 70gb sem er allveg viðráðanlegt. Ég er með allt download sér. En ég mæli eindregið með netflix fyrrir allt þetta gamla góða, en ég ætla að fá mér hulu+

Re: Netflix

Sent: Mán 14. Jan 2013 11:20
af sibbsibb
Já ég þarf að ath þetta. Auðvita ekkert allt sem maður þarf eitthvað endilega að horfa á í HD... takk fyrir ábendinguna.

Re: Netflix

Sent: Mán 14. Jan 2013 12:06
af Zorky
Ég nota netflix og hulu á fullu án þess að sjá að erlenda sé eithvað í rugli...Báðir aðilar pakka allar myndirnar eða þættina án þess að gæðin mínki það er meira download hjá youtube en netflix og hulu. Málið er bara hraðin hjá hringdu laggar svo á kvöldin að það er ekki hægt að horfa yfirleitt á hulu and netflix er svo létt og nett það virkar alltaf. En 140gb á mán er mikið meira en fyrir bæði.