Síða 1 af 1
Tengja S-Video Skjákort í Sjónvarp
Sent: Mán 07. Jan 2013 19:17
af Dúlli
Góðan daginn ég er hér með nokkrar spurningar, ég er með nokkur skjákort sem hafa S-Video tengi og ég er líka með nokkra svona gæja
hér (hlekkur á ljósmynd) þannig ég var að velta fyrir mér hvort það sé hægt að nota þetta tengi til að tengja við sjónvarpið og hafa þá þetta svona
S-Video tengi yfir í
Component tengi (hlekkur á ljósmynd) og úr component í sjónvarp, myndi það ekki ganga upp ?
Hvernig myndi ég þá fara að því að fá hljóð ?
Er því miður ekki með neinar nákvæmar upplýsingar um sjónvarpið þetta er gamalt túbu sjónvar með Scart og Component tengjum veit ekki hvort það sé eithvað meira í boði, ætla að afla þeim upplýsingum sem fyrst.
En hugmyndinn er ef þetta myndi virka þá myndi ég skella upp HTPC heima hjá kærustunni

í stað þessi að nota sjónvarpsflakkara alltaf. Er búin að vera að lesa um þetta á netinu en ekkert beint svar mjög margir að hugsa en ekkert meira en það.
Með fyrir fram þakkir dúlli

Re: Tengja S-Video Skjákort í Sjónvarp
Sent: Mán 07. Jan 2013 20:05
af hagur
Júbb, þetta er í raun ekki s-video tengi þó það líti þannig út. Þetta er mini din tengi og flest eldri AtI/Nvidia kort styðja HDTV/component út um þetta tengi og þá einmitt með svona component break-out kapli eins og þú ert með. Til að fá hljóð þarftu að nota bara t.d 3.5mm hljóðútgang úr tölvunni og í audio inngang á TV.
Re: Tengja S-Video Skjákort í Sjónvarp
Sent: Mán 07. Jan 2013 20:11
af Bioeight
Ágætis upplýsingar um allt :
http://www.svideo.com/compaq1700.html
Það eru til 3 mismunandi "S-video" tengi, 4-,7- og 9- pinna.
4-pinna "S-video" eru sjónvörpum , 7-pinna á skjákortum, almenna reglan en veit ekki hvort hún er algild.
Túbusjónvörp eru venjulega ekki með RGB component tengi, vertu alveg viss um að þú sért með það.
Hljóðið er svo bara output á hljóðkortinu/móðurborðinu(eða headphone) og í það sem er á sjónvarpinu, þarft að vita hvað það býður upp á, audio l/r, minijack eða eitthvað annað. það yrði þá sérsnúra eða ný snúra með öllu á.
Myndir af tengjum eru frábærar.
Birt með fyrirvara um að ég veit ekki neitt og má ekki mæla með neinu.
Re: Tengja S-Video Skjákort í Sjónvarp
Sent: Mán 07. Jan 2013 21:10
af Dúlli
Takk fyrir svarið, Hagur þetta var það sem ég var að leitast eftir, Bioeight ég var búin að finna þetta en þetta svaraði mér ekki spurningunum.
En gæti ég gert S-Video (Tölvutengið á skjákort) sem sagt
= S-Video yfir í component og svo nota
Component/scart Tengi og nota tengja það í scart tengi
Til Að Fá Mynd.
Og fyrir hljóð nota Audio Jack tengið á tölvunni sem sagt nota
= Jack yfir í Aux snúru og tengja Aux hliðinna í Component tengið í sjónvarpinu ?
Til Að Fá Hljóð.
Re: Tengja S-Video Skjákort í Sjónvarp
Sent: Mán 07. Jan 2013 21:58
af IL2
Er ekki S-Video á sjónvarpinu?
Re: Tengja S-Video Skjákort í Sjónvarp
Sent: Mán 07. Jan 2013 22:00
af Dúlli
IL2 skrifaði:Er ekki S-Video á sjónvarpinu?
Ef þú skoðar þessa ljósmynd.

Re: Tengja S-Video Skjákort í Sjónvarp
Sent: Mán 07. Jan 2013 22:02
af hagur
Sýndu okkur mynd af tengjunum sem eru á sjónvarpinu.
Re: Tengja S-Video Skjákort í Sjónvarp
Sent: Mán 07. Jan 2013 22:04
af Dúlli
Ég náði að komast að módeli. Hér eru allir tengi möguleikar.

Re: Tengja S-Video Skjákort í Sjónvarp
Sent: Mán 07. Jan 2013 22:12
af hagur
Ok, þarna er ekkert component tengi. Gula er composite video, og svo er stereo hljóð með því (rautt og hvítt).
Það sem þú þarft að gera er að græja break-out kapal úr S-Video/Mini-din tenginu á skjákortinu, sem er með composite video á hinum endanum, svona kapall:
http://www.pccables.com/images/ATI_GeFo ... e_9PIN.jpg" onclick="window.open(this.href);return false;
Þessi er með component video (blátt, rautt, grænt), composite video (gult) og s-video (ljós-grátt).
Svo þarftu 3.5mm jack í RCA fyrir hljóð, svona:
http://www.sm.is/index.php?sida=vara&vara=301968" onclick="window.open(this.href);return false;
Ef þú vilt nota SCART tengið á sjónvarpinu þarftu að fá þér SCART kubb:
http://www.sm.is/index.php?sida=vara&vara=303335" onclick="window.open(this.href);return false;
Svo tengirðu break-out kapalinn í skjákortið og gula endann í gula input-ið á scart-kubbinum. Tengir svo 3.5mm jack-inn í out tengið á hljóðkortinu og rauða og hvíta endann í rautt/hvítt á scart-kubbinum, stillir hann svo á input og stingur í samband við SCART tengið á sjónvarpinu.
Ef þú vilt ekki nota SCART, þá geturðu tengt gula úr break-out kaplinum og rautt/hvítt úr hljóðkortinu beint í gult/rautt/hvítt á sjónvarpinu.
Re: Tengja S-Video Skjákort í Sjónvarp
Sent: Mán 07. Jan 2013 22:48
af Dúlli
Myndi þetta virka eða er ég bara eithvað ekki að skilja þetta ? allur búnaður sem ég tek fram er ég með eithver staðar í snúru tösku, er því miður ekki með budget fyrir neitt af þessu.

Re: Tengja S-Video Skjákort í Sjónvarp
Sent: Mán 07. Jan 2013 23:08
af hagur
Já, þetta virkar, en þá þarftu að nota S-video útgang úr skjákortinu, tengir það svo við S-video innganginn á SCART kubbnum, þarft semsagt svona snúru:
http://sm.is/index.php?sida=vara&vara=301661" onclick="window.open(this.href);return false; (S-Vhs og S-Video er sama dótið)
(Sleppir alveg að nota rauða/hvíta/gula)
Vandamálið við S-Video í gegnum SCART er að fæst sjónvörp styðja það. Ef sjónvarpið þitt styður það rétt, þá er það fínt. Ef ekki, þá muntu fá svart/hvíta mynd. Það er þó hægt að leysa með svona stykki:
http://www.tolvutek.is/vara/s-vhs-litabreytir" onclick="window.open(this.href);return false;
Myndir bara setja það í samband við S-video snúruna úr skjákortinu og svo í SCART kubbinn.
Re: Tengja S-Video Skjákort í Sjónvarp
Sent: Mán 07. Jan 2013 23:19
af Daz
þú getur örugglega ekki notað jack í jack snúru fyrir hljóðið, þar sem þetta er headphone tengi. Þú getur notað jack-í-hvítt-og-rautt aftur á móti. (kostar einhverja hundraðkalla).
Re: Tengja S-Video Skjákort í Sjónvarp
Sent: Mán 07. Jan 2013 23:33
af Dúlli
náði að fá mynd svona núna þarf ég að rölta og kaupa eitt svona stykki.
http://www.sm.is/index.php?sida=vara&vara=301968" onclick="window.open(this.href);return false; veit eithver um besta verði á þessu ? er eithver með svona notað

á klink

Re: Tengja S-Video Skjákort í Sjónvarp
Sent: Þri 08. Jan 2013 08:20
af hagur
Hugsa að þú fáir þetta varla ódýrara en þetta.