Síða 1 af 2
Hýsing á vefsíðu?
Sent: Fim 03. Jan 2013 19:52
af inservible
Sælir vaktarar, konan er með fyrir tæki og þarf að halda uppi heimasíðu er einhver með einhvern góðan ódýran hýsingaraðila í huga? eða jafnvel uppástungur hvernig væri best að hafa þetta?
Fyrirfram þakkir..
Re: Hýsing á vefsíðu?
Sent: Fim 03. Jan 2013 20:01
af intenz
http://www.x.is" onclick="window.open(this.href);return false;
Ódýrir, áreiðanlegir, góðir.
Re: Hýsing á vefsíðu?
Sent: Fim 03. Jan 2013 20:02
af Ezekiel
Ef þú vilt reyna hafa þetta sem kostnaðarminnst þá er sniðugt að gera eftirfarandi, en krefst smá network stillinga.
Það er hægt að nýta sér free web sites í Microsoft Azure Cloud-inu, allt upp að 10 vefsíðum, hinsvegar til að fá .is lén-ið til að virka þá þarftu að þá þarftu að setja upp CNAME og A-record í gegnum DNS stillingar(1984.is t.d.)
Og til að geyma póstinn þá er hægt að nota serverana hjá google, sem kostar 5$ á mán.
Þá ertu kominn með, heimasíðu, póstþjón, google analytics, etc á 5$ á mán.
Ef þú nennir ekki veseni, þá mæli ég 1984.is - þá er lén og hýsing á 18922 kr. á ári.
Re: Hýsing á vefsíðu?
Sent: Fim 03. Jan 2013 20:14
af tdog
Er Google Apps farið að kosta 5$ núna ?
Re: Hýsing á vefsíðu?
Sent: Fim 03. Jan 2013 20:18
af fannar82
hef heyrt mjög góða hluti um
1984.is
Re: Hýsing á vefsíðu?
Sent: Fim 03. Jan 2013 20:22
af hfwf
tdog skrifaði:Er Google Apps farið að kosta 5$ núna ?
http://www.pcworld.com/article/2018964/ ... -apps.html" onclick="window.open(this.href);return false;
Re: Hýsing á vefsíðu?
Sent: Fim 03. Jan 2013 20:25
af Vignirorn13
123.is
Re: Hýsing á vefsíðu?
Sent: Fim 03. Jan 2013 21:42
af addi32
er að nota x.is..
Er nokkuð sáttur með það. Borga einhvern 200kall á mánuði og uppitíminn hefur verið góður.
Re: Hýsing á vefsíðu?
Sent: Fim 03. Jan 2013 22:12
af TraustiSig
http://www.opex.is
795 kr á mánuði
9.540 kr á ári
12 GB svæði með ótakmörkuðum fjölda léna, ótakmörkuðum fjölda póstfanga, FTP stuðningur, mySQL stuðningur, IMAP/POP3 og SMTP fyrir póstinn, dagleg afritun allra gagna og aðgangur að mjög fullkomnu stjórnborði
Re: Hýsing á vefsíðu?
Sent: Fim 03. Jan 2013 22:58
af inservible
hummm...opex lookar vel einhver reynsla þaðan?
Re: Hýsing á vefsíðu?
Sent: Fös 04. Jan 2013 00:07
af Zorky
http://www.000webhost.com/features" onclick="window.open(this.href);return false;
Ég nota þetta og kostar mig ekki krónu eins sem ég þarf að kaupa er URL.
Re: Hýsing á vefsíðu?
Sent: Fös 04. Jan 2013 00:15
af dori
Nota tumblr með custom útliti og beina léninu þangað. Þá ætti hver sem er að geta stjórnað innihaldi og það kostar nákvæmlega ekki neitt.
Re: Hýsing á vefsíðu?
Sent: Fös 04. Jan 2013 00:25
af intenz
dori skrifaði:Nota tumblr með custom útliti og beina léninu þangað. Þá ætti hver sem er að geta stjórnað innihaldi og það kostar nákvæmlega ekki neitt.
Hahaha, ef fyrirtæki er með Tumblr síðu sem heimasíðu þá verslar maður ekki við það fyrirtæki.
Re: Hýsing á vefsíðu?
Sent: Fös 04. Jan 2013 00:27
af Zorky
intenz skrifaði:dori skrifaði:Nota tumblr með custom útliti og beina léninu þangað. Þá ætti hver sem er að geta stjórnað innihaldi og það kostar nákvæmlega ekki neitt.
Hahaha, ef fyrirtæki er með Tumblr síðu sem heimasíðu þá verslar maður ekki við það fyrirtæki.
lol já ég er sammála því.
Re: Hýsing á vefsíðu?
Sent: Fös 04. Jan 2013 00:36
af dori
intenz skrifaði:dori skrifaði:Nota tumblr með custom útliti og beina léninu þangað. Þá ætti hver sem er að geta stjórnað innihaldi og það kostar nákvæmlega ekki neitt.
Hahaha, ef fyrirtæki er með Tumblr síðu sem heimasíðu þá verslar maður ekki við það fyrirtæki.
Þú sérð það ekkert á yfirborðinu ef það er vel gert. Það er líka bókað mál að það er ekkert verri uppitími en margt annað sem er í boði.
Kostur númer 1, 2 og 3 er hins vegar að það getur hvaða hálfviti sem er notað tumblr. Það er erfitt fyrir hvaða hálfvita sem er að nota alls konar CMS kerfi sem fólki dettur í hug að setja upp. Og þú getur sett alls konar efni þangað inn og það er hægt að stíla það eftir efnistegund.
Augljóslega mun source kóðinn ekki ljúga. Og það gæti hugsanlega staðið "waiting for tumblr.com" þegar það er verið að sækja myndir sem eru geymdar á tumblr (sem gæti reyndar alveg staðið á hvaða síðu sem er ef þú linkar í mynd þaðan).
Og varðandi það að versla ekki við slíkt fyrirtæki. Það er í fyrsta lagi mjög heimskulegt viðhorf. Og í öðru lagi tæki ég það alla daga fram yfir fyrirtæki sem hafa síður eins og t.d.
http://smart.is" onclick="window.open(this.href);return false; þar sem þeir geta ekki einu sinni breytt verðskránni á "vefsíðunni" sinni svo að þeir settu upp eitthvað asnalegt facade fyrir framan til að geta vísað í nýja verðskrá. Svo er það innihaldið sem skiptir máli og það að innihaldið sé ferskt. Ekki hvar vefur er hýstur (svo framarlega sem þú nærð í vefinn).
Re: Hýsing á vefsíðu?
Sent: Fös 04. Jan 2013 00:39
af Zorky
Ég vissi ekki einu sinni hvað smart væri en með tumblr þá ertu bundin ákveðnum skilmála video t.d. geta ekki verið lengri en 10 mín t.d. en með
http://www.000webhost.com/" onclick="window.open(this.href);return false; get ég búið til hvað sem er og þar að auki frítt nema URL.
Re: Hýsing á vefsíðu?
Sent: Fös 04. Jan 2013 01:06
af pattzi
Nota
http://www.3owl.com" onclick="window.open(this.href);return false; hætti með 000webhost
Sent from my XT910 using Tapatalk 2
Re: Hýsing á vefsíðu?
Sent: Fös 04. Jan 2013 01:06
af intenz
dori skrifaði:intenz skrifaði:dori skrifaði:Nota tumblr með custom útliti og beina léninu þangað. Þá ætti hver sem er að geta stjórnað innihaldi og það kostar nákvæmlega ekki neitt.
Hahaha, ef fyrirtæki er með Tumblr síðu sem heimasíðu þá verslar maður ekki við það fyrirtæki.
Þú sérð það ekkert á yfirborðinu ef það er vel gert. Það er líka bókað mál að það er ekkert verri uppitími en margt annað sem er í boði.
Kostur númer 1, 2 og 3 er hins vegar að það getur hvaða hálfviti sem er notað tumblr. Það er erfitt fyrir hvaða hálfvita sem er að nota alls konar CMS kerfi sem fólki dettur í hug að setja upp. Og þú getur sett alls konar efni þangað inn og það er hægt að stíla það eftir efnistegund.
Augljóslega mun source kóðinn ekki ljúga. Og það gæti hugsanlega staðið "waiting for tumblr.com" þegar það er verið að sækja myndir sem eru geymdar á tumblr (sem gæti reyndar alveg staðið á hvaða síðu sem er ef þú linkar í mynd þaðan).
Og varðandi það að versla ekki við slíkt fyrirtæki. Það er í fyrsta lagi mjög heimskulegt viðhorf. Og í öðru lagi tæki ég það alla daga fram yfir fyrirtæki sem hafa síður eins og t.d.
http://smart.is" onclick="window.open(this.href);return false; þar sem þeir geta ekki einu sinni breytt verðskránni á "vefsíðunni" sinni svo að þeir settu upp eitthvað asnalegt facade fyrir framan til að geta vísað í nýja verðskrá. Svo er það innihaldið sem skiptir máli og það að innihaldið sé ferskt. Ekki hvar vefur er hýstur (svo framarlega sem þú nærð í vefinn).
Það hvernig heimasíðu fyrirtækið er með segir manni ýmislegt um fyrirtækið. Ef fyrirtækið leggur ekki metnað í heimasíðuna sína, af hverju ætti það að leggja metnað í vörur sínar og viðskiptavini sína? Heimasíða er andlit fyrirtækisins út á við. Ég er ekki að segja að heimasíður fyrirtækja þurfi að vera mega pro, skrifaðar í HTML5, CSS3, vera responsive, o.s.frv. Bara að þær séu stílhreinar, komi efni vel til skila, sé uppfærð reglulega og sé ekki hýst hjá Tumblr.
Ég myndi frekar fara út í WordPress uppsetningu heldur en Tumblr.
Re: Hýsing á vefsíðu?
Sent: Fös 04. Jan 2013 01:07
af rango
Talandi um microsoft azure og google appengine. Þá hefur þessi hýsing nýst mér afar vel.
https://www.appfog.com/" onclick="window.open(this.href);return false;
Er í raun sama concept og heroku bara meira.
http://www.heroku.com/" onclick="window.open(this.href);return false;
Re: Hýsing á vefsíðu?
Sent: Fös 04. Jan 2013 01:11
af Zorky
pattzi skrifaði:Nota
http://www.3owl.com" onclick="window.open(this.href);return false; hætti með 000webhost
Sent from my XT910 using Tapatalk 2
Hver er mesti munurin ?
Re: Hýsing á vefsíðu?
Sent: Fös 04. Jan 2013 02:26
af techseven
.
.
1984.is er málið, þótt þeir séu ódýrir er hraði og áreiðanleiki hjá þeim 1. flokks.
Læt alla mína viðskiptavini fara til þeirra og hef aldrei lent í vandræðum
Re: Hýsing á vefsíðu?
Sent: Fös 04. Jan 2013 21:11
af inservible
Þakka kærlega fyrir þessa góðu umræðu sem þessi spurning mín kom í gang ætla að láta reyna á 000webhost nema að einhver bendi mér á mínus við það.
Re: Hýsing á vefsíðu?
Sent: Lau 05. Jan 2013 00:02
af SolidFeather
inservible skrifaði:Þakka kærlega fyrir þessa góðu umræðu sem þessi spurning mín kom í gang ætla að láta reyna á 000webhost nema að einhver bendi mér á mínus við það.
Ekki það að ég hafi mikið vit á þessu, en ég myndi nota eitthvað allt annað en 000webhost.
Re: Hýsing á vefsíðu?
Sent: Lau 05. Jan 2013 00:05
af Zorky
SolidFeather skrifaði:inservible skrifaði:Þakka kærlega fyrir þessa góðu umræðu sem þessi spurning mín kom í gang ætla að láta reyna á 000webhost nema að einhver bendi mér á mínus við það.
Ekki það að ég hafi mikið vit á þessu, en ég myndi nota eitthvað allt annað en 000webhost.
Og af hverju ég er mjög forvitin það sem ég nota webhost án eithverju issues for free.
Re: Hýsing á vefsíðu?
Sent: Lau 05. Jan 2013 00:18
af SolidFeather
Zorky skrifaði:SolidFeather skrifaði:inservible skrifaði:Þakka kærlega fyrir þessa góðu umræðu sem þessi spurning mín kom í gang ætla að láta reyna á 000webhost nema að einhver bendi mér á mínus við það.
Ekki það að ég hafi mikið vit á þessu, en ég myndi nota eitthvað allt annað en 000webhost.
Og af hverju ég er mjög forvitin það sem ég nota webhost án eithverju issues for free.
Mér bara dytti ekki í hug að nota ókeypis hýsingu ef ég væri að setja upp fyrirtækisvefsíðu. Ég myndi vilja borga fyrir áreiðanleika, sem mér sýnist 000webhost ekki hafa eftir stutta google leit.
Það er ekki eins og að þetta sé einhver svaka peningur, rétt undir 20.000 hjá 1984 fyrir .is lén og hýsingu í eitt ár.