Síða 1 af 1

Skjár 1920x1200 eða hærra, 24" eða hærra

Sent: Fim 27. Des 2012 02:51
af aether
Sæl/ir,

Ég er að leita að upplýsingum um skjái __ATH EKKI AÐ KAUPA__.

Það sem ég er að leita af er góður skjár sem er með upplausnina 1920x1200 eða meira og er 24" eða meira. En samt ekki yfir 100 þúsund kalli.

Mér finnst mjög erfitt eitthvað að finna þannig skjái og flestir eru 1920x1080 drasl sem ég vill ekki sjá.

Ég er að leita að þessu til að taka við af Samsung SyncMaster 245BW sem ég hef átt í hátt í 5 ár og hann er farinn að sýna ýmsa veikleika... :P ( dæmi: https://www.youtube.com/watch?v=Zghl0NHYms4" onclick="window.open(this.href);return false; ).

~ Aether

Re: Skjár 1920x1200 eða hærra, 24" eða hærra

Sent: Fim 27. Des 2012 02:58
af gardar
Kauptu þér notaðan Dell Ultrasharp :happy

Re: Skjár 1920x1200 eða hærra, 24" eða hærra

Sent: Fim 27. Des 2012 03:05
af SolidFeather
Dell eiga nokkra þannig skjái

https://www.advania.is/vefverslun/vara/ ... 9f9a558791" onclick="window.open(this.href);return false;

og Asus

http://buy.is/product.php?id_product=9207929" onclick="window.open(this.href);return false;

Re: Skjár 1920x1200 eða hærra, 24" eða hærra

Sent: Fim 27. Des 2012 03:23
af Nolon3
sé ekki alveg tilganginn í að kaupa þenna asus skjá á þessu verði en mæli reyndar með dell skjánum.. en í hvað ætlaru annars að nota skjáinn í, leiki eða myndvinnslu ? fer svolítið eftir því

Re: Skjár 1920x1200 eða hærra, 24" eða hærra

Sent: Fim 27. Des 2012 04:09
af DJOli
Mín ágiskun er Forritun. Mikil forritun. Leikjaspilun og animegláperí.

Re: Skjár 1920x1200 eða hærra, 24" eða hærra

Sent: Fim 27. Des 2012 04:26
af aether
DJOli skrifaði:...Mikil forritun. Leikjaspilun og animegláperí.

Re: Skjár 1920x1200 eða hærra, 24" eða hærra

Sent: Fim 27. Des 2012 04:55
af Xovius
Hví 1920x1200 í stað 1920x1080?
er áfinnanlegur munur?

Re: Skjár 1920x1200 eða hærra, 24" eða hærra

Sent: Fim 27. Des 2012 05:26
af aether
Xovius skrifaði:Hví 1920x1200 í stað 1920x1080?
er áfinnanlegur munur?
Mér finnst það, ótrúlega þægilegt stundum, ég t.d. er með start menuið hægra megin á skjánum sem gefur mér ennþá meira vertical pláss.

Eini gallinn sem ég hef séð við þá er verðmunurinn, annars er meira vertical pláss mjög þægilegt.

Ég mundi jafnvel sætta mig við skjá í 1:1 eða 4:3 hlutföllum ef þeir væru með álíka stórt eða stærra skjásvæði.

Re: Skjár 1920x1200 eða hærra, 24" eða hærra

Sent: Fim 27. Des 2012 05:33
af Gúrú
Xovius skrifaði:Hví 1920x1200 í stað 1920x1080?
er áfinnanlegur munur?
Það er alþekkt meðal rugludalla að við 16:10 notendur hötum 16:9. Ég myndi borga ~50% hærra verð fyrir 16:10 en þarf þess sem betur fer ekki. :)

Re: Skjár 1920x1200 eða hærra, 24" eða hærra

Sent: Fim 27. Des 2012 10:29
af rapport
https://www.okbeint.is/hpbeint/ui/vorur ... id=A9P21AA" onclick="window.open(this.href);return false;

Re: Skjár 1920x1200 eða hærra, 24" eða hærra

Sent: Fim 27. Des 2012 10:54
af Jón Ragnar
Mundurinn á 16:10 vs 16:9 er gríðarlegur þrátt fyrir að vera ekki mikill í tölum.

Er búinn að vera með mikið af mismunandi skjám í höndunum vegna vinnunar. Dell Ultrasharp 24" 16:10 er klárlega næsti skjár sem ég kaupi heim :happy

Re: Skjár 1920x1200 eða hærra, 24" eða hærra

Sent: Fim 27. Des 2012 15:11
af svanur08
Ákkuru vilja menn minna "wide" skjá 16:9 er meira wide heldur en 16:10?

Re: Skjár 1920x1200 eða hærra, 24" eða hærra

Sent: Fim 27. Des 2012 16:25
af Xovius
svanur08 skrifaði:Ákkuru vilja menn minna "wide" skjá 16:9 er meira wide heldur en 16:10?
Það er ekkert minna við 16:10, hann er jafn stór á einn kantinn (16) og stærri á hinn (10 vs 9)

Re: Skjár 1920x1200 eða hærra, 24" eða hærra

Sent: Fim 27. Des 2012 17:01
af svanur08
Xovius skrifaði:
svanur08 skrifaði:Ákkuru vilja menn minna "wide" skjá 16:9 er meira wide heldur en 16:10?
Það er ekkert minna við 16:10, hann er jafn stór á einn kantinn (16) og stærri á hinn (10 vs 9)
Hann er samt ekki jafn wide aspect ratio, bara með hærri upplausn á hæðina. Ef að 16:9 skjár væri 1200 pixlar á hæð væri hann meira en 1920 pixlar á breidd.

Re: Skjár 1920x1200 eða hærra, 24" eða hærra

Sent: Fim 27. Des 2012 17:15
af stjani11
Xovius skrifaði:
svanur08 skrifaði:Ákkuru vilja menn minna "wide" skjá 16:9 er meira wide heldur en 16:10?
Það er ekkert minna við 16:10, hann er jafn stór á einn kantinn (16) og stærri á hinn (10 vs 9)

Ekki rétt. 24" 16/9 skjár er breiðari en 24" 16/10

Re: Skjár 1920x1200 eða hærra, 24" eða hærra

Sent: Fim 27. Des 2012 17:16
af svanur08
stjani11 skrifaði:
Xovius skrifaði:
svanur08 skrifaði:Ákkuru vilja menn minna "wide" skjá 16:9 er meira wide heldur en 16:10?
Það er ekkert minna við 16:10, hann er jafn stór á einn kantinn (16) og stærri á hinn (10 vs 9)

Ekki rétt. 24" 16/9 skjár er breiðari en 24" 16/10
Rétt hjá þér ---> http://www.displaywars.com/24-inch-16x1 ... -inch-16x9" onclick="window.open(this.href);return false;

Re: Skjár 1920x1200 eða hærra, 24" eða hærra

Sent: Fim 27. Des 2012 20:02
af DJOli
En hér erum við að tala um hæðina, ekki breiddina.
Breiddina er gott að hafa fyrir kvikmyndagláp, þar sem að flestar kvikmyndir eftir 1944 voru gerðar í ~16:9 hlutfalli.
En þá er æskilegt að hafa nógu góðan skjá til að sjá smáatriðin, sérstaklega í dag þegar boðið er upp á allt þetta háskerpufínerí.

En hér erum við einmitt eins og ég giskaði áður á, að tala um forritara, og í forritun getur hver tomma í skjáhæð skipt máli upp á línufjölda kóðans sem skjárinn getur sýnt.

Re: Skjár 1920x1200 eða hærra, 24" eða hærra

Sent: Fim 27. Des 2012 20:13
af svanur08
Væri þá ekki 4:3 skjár bestur? hann er með mestu hæðina :D ----> http://www.displaywars.com/24-inch-4x3-vs-24-inch-16x10" onclick="window.open(this.href);return false;

Re: Skjár 1920x1200 eða hærra, 24" eða hærra

Sent: Fim 27. Des 2012 20:27
af svanur08
Held það rugli suma soldið tommur, upplausn og Aspect Ratio.

Re: Skjár 1920x1200 eða hærra, 24" eða hærra

Sent: Fim 27. Des 2012 21:51
af DJOli
1. Þá er búið að minnka vinnusvæðið.
2. Hvar ætlarðu að fá 24" 4:3 skjá í ábyrgð í dag?.

Re: Skjár 1920x1200 eða hærra, 24" eða hærra

Sent: Fim 27. Des 2012 23:05
af Daz
Random ódýr góður skjár sem er hægt að snúa í 90 gráður á hækkanlegum fæti
CTRL+ALT+ vinstri örin
???
Profit.

Re: Skjár 1920x1200 eða hærra, 24" eða hærra

Sent: Fös 28. Des 2012 03:15
af Garri
24" er alltaf 24" sem þýðir að ef hlutfall lang hliðar versus aðlægrar skammhliðar breytist, þá er langhliðin alltaf sú sama, það er, horn í horn. 16:10 er ekki jafn breiður og 16:9 sem er þá um leið, lægri sama hvað ef um sömu stærð á skjá er að ræða.

Re: Skjár 1920x1200 eða hærra, 24" eða hærra

Sent: Fös 28. Des 2012 04:07
af svanur08
Garri skrifaði:24" er alltaf 24" sem þýðir að ef hlutfall lang hliðar versus aðlægrar skammhliðar breytist, þá er langhliðin alltaf sú sama, það er, horn í horn. 16:10 er ekki jafn breiður og 16:9 sem er þá um leið, lægri sama hvað ef um sömu stærð á skjá er að ræða.
Ákkurat, eins og 50 tommu skjár sem er 21:9 wide (eins og í bíó) er ekkert svakalega stór eins og 50 tommu 16:9 skjár. hann væri sambærilegur og 40 tommu skjár í 16:9 ---> http://www.displaywars.com/50-inch-21x9-vs-40-inch-16x9" onclick="window.open(this.href);return false;

Og í raun væri 22 tommu 16:10 sambærilegur og 24 tommu í 16:9 sirka sést hérna hvað 16:9 er doldið meira wide ---> http://www.displaywars.com/22-inch-16x1 ... -inch-16x9" onclick="window.open(this.href);return false;

Re: Skjár 1920x1200 eða hærra, 24" eða hærra

Sent: Fös 28. Des 2012 04:49
af Xovius
Hví ekki bara að fara í 3x24"1920*1080 fyrir sama verð og vera þá með miiiklu meira skjápláss?

Re: Skjár 1920x1200 eða hærra, 24" eða hærra

Sent: Fös 28. Des 2012 06:30
af aether
Xovius skrifaði:Hví ekki bara að fara í 3x24"1920*1080 fyrir sama verð og vera þá með miiiklu meira skjápláss?
Það er reindar rétt, ég hef verið að pæla í því. En ég mundi þá hafa þá alla vertical.

Þá er spurningin, hvaða skjáir eru góðir, með lítinn ramma og gott verð sem er 24" LED (IPS) og getur verið á hlið.