Síða 1 af 1
Grafík vesen með ferðavél..(Ati Mobility Radeon 9700, 128mb)
Sent: Fim 19. Ágú 2004 15:49
af DippeR
Ég er í smá veseni hérna..
Ég keypti mér mitac ferðavél frá Start.is -
http://start.is/product_info.php?cPath= ... cts_id=759
Allt gekk vel í upphafi, gat keyrt leikina tímunum saman o.s.frv.
En núna virðast þeir taka upp á því, þá sérstaklega bf 1942 & sw:kotor að frjósa. BF er líka á tímum óspilanlegur vegna truflana á skjánum (Svartar rendur sem færast lóðrétt eftir skjánum).
Ég hef einnig lent í vægum truflunum á desktoppinu.
Ég held að þetta sé driver mál.
En hér kemur það skuggalega, ég get ekki sett upp nýjustu Catalyst driverana því ég fæ því alltaf slengt í andlitið á mér að ég sé ekki með vélbúnað né hugbúnað til að keyra þá á. Sem er að sjálfsögðu algjört rugl, ef marka má device manager.
Síðan er annað sem er skuggalegt, ég sé 3 default monitora í device anager sem getur varla talist eðlilegt og þegar ég reyni að uppfæra driverana á þeim þá finnur vélin enga (Né hjá windowsupdate).
Hefur einhver elnt í svipuðu?
p.s. er með XP Pro + SP2
Sent: Fim 19. Ágú 2004 15:50
af gnarr
dude! þú notar ekki catalyst með fartölvu! það eru sérsmíðaðir driverar fyrir fartölvu skjákort.
Sent: Fim 19. Ágú 2004 16:04
af Daz
Kom vandamálið fyrst upp eftir að þú settir upp SP2? Eftir að þú uppfærðir einhvern skjákortsdriver? Eftir að þú uppfærðir eitthvað?
Sent: Fim 19. Ágú 2004 16:04
af DippeR
gnarr skrifaði:dude! þú notar ekki catalyst með fartölvu! það eru sérsmíðaðir driverar fyrir fartölvu skjákort.
Ég googlaði líka eftir driverum fyrir skjákortið, fæ samt upp svipaða villu..
"INF error, Video drver not found"
wtF?
Sent: Fim 19. Ágú 2004 16:06
af gnarr
þú verður að nota sérsmíðaða drivera sem eru skrifaðir sérstaklega fyrir móðurborðið þitt, mjög líklega fra Mitac.
Sent: Fim 19. Ágú 2004 16:11
af DippeR
Daz skrifaði:Kom vandamálið fyrst upp eftir að þú settir upp SP2? Eftir að þú uppfærðir einhvern skjákortsdriver? Eftir að þú uppfærðir eitthvað?
Ef ég bara vissi nákvæmlega eftir hvað
Kotor átti það reyndar alltaf til að frjósa ..
Skrítið samt að ég gat alveg spilað UT & Q3 í gær en síðan fer bf í klessu.. bf runnar á d3d ekki satt?
Sent: Fim 19. Ágú 2004 16:54
af Daz
En hefurðu eitthvað uppfært síðan þú fékkst tölvuna og varstu að fá svona "galla" í upphafi?
Og ein spurning, finnst þér tölvan ekkert hávær?
Sent: Fim 19. Ágú 2004 17:05
af DippeR
Daz skrifaði:En hefurðu eitthvað uppfært síðan þú fékkst tölvuna og varstu að fá svona "galla" í upphafi?
Og ein spurning, finnst þér tölvan ekkert hávær?
Kotor hefur alltaf látið illa, bf var fínn fyrsta kvöldið sem ég spilaði hann og nei.. Sætti mig við hávaðann fyrir svona öfluga vél :p
keypti meira að segja fartölvukælingu frá start líka
Sent: Fim 19. Ágú 2004 17:07
af DippeR
Sér enginn neitt að því að ég sjái 3x default monitor í device manager??
Ég er farinn að halda að það sé að orsaka einhver vandamál þar sem ég er ekki með vélina tengda í neina aðra skjái.
Þegar ég hef prófað að nota tv out og spila leikina á sjónvarpi hafa engar truflanir komið upp þar.
Sent: Fös 20. Ágú 2004 01:08
af Rori
Sent: Fös 20. Ágú 2004 01:54
af DippeR
Ég er víst búinn að finna rót vandamálsins...
Skjá driverarnir mínir eru 3 ára gamlir :/
Þarf víst að finna mér nýja.. eyddi þónokkrum klst. í það í dag en ekkert gekk, ætla bara að hringja upp í Start á morgun og sjá hvort þeir geti beint mér á rétt braut.
Takk fyrir góð svör samt sem áður.
Sent: Lau 21. Ágú 2004 01:15
af nomaad
Ég er að lenda í vandræðum með svipaða vél (reyndar keypta í Hugveri).
Þetta lýsir sér þannig að allir leikir (allavega Doom3 og UT2004) frjósa eftir 2-3 mínútur. Mig grunaði strax AGP Fast Writes (sem virðist vera til þess eins að valda vandræðum) en ég finn engan stað til þess að slökkva á þeim; hvorki í BIOS-num eða í driver stillingum. Reyndar fann ég eitthvað sem heitir Write Combining, ég las mér til og það hljómaði svipað og Fast Writes og því slökkti ég á því. Leikir stöðvast eftir smástund en detta aftur inn í Windows með villu sem segir að það sé villa í drivernum.
Frekar leiðinlegt að lenda í þessu með glænýja vél. Ég get ekki talað við Hugver fyrr en á mánudag þannig að ég tékka kannski á Start eða Task í fyrramálið.
Sent: Lau 21. Ágú 2004 01:53
af Rori
Ég held að það sé opið til 2 á laugardögum hjá hugveri.
Sent: Lau 21. Ágú 2004 13:18
af nomaad
Jæja, var að koma frá Start. Gaurinn alltaf hjálpsamur (þótt ég hafi ekki einu sinni keypt tölvuna hjá honum
).
Driverarnir sem fylgja með tölvunni eru algert drasl. Hann sagði að Omega driverarnir virki, hann var búinn að spila FarCry í klst. án vandræða á þeim.
http://www.omegadrivers.net
Hann sagði líka að það væri
mjög mikilvægt að uninstalla gamla drivernum .
Ég tékka á þessu betur í kvöld, læt vita.
Sent: Lau 21. Ágú 2004 16:28
af gnarr
nomaad skrifaði:Jæja, var að koma frá Start. Gaurinn alltaf hjálpsamur (þótt ég hafi ekki einu sinni keypt tölvuna hjá honum
).
Driverarnir sem fylgja með tölvunni eru algert drasl. Hann sagði að Omega driverarnir virki,
hann var búinn að spila FarCry í klst. án vandræða á þeim.www.omegadrivers.net
Hann sagði líka að það væri
mjög mikilvægt að uninstalla gamla drivernum .
Ég tékka á þessu betur í kvöld, læt vita.
slæm vinna?
Sent: Sun 22. Ágú 2004 01:28
af nomaad
Jebb, Omegadrivernarnir svínvirka. Var að klára fínan leik í UT2004
Muna þetta 8050d eigendur:
1. Uninstalla driver í Control Panel -> Add/Remove Programs
2. Restarta
3. Setja upp Omega drivera (með FastWrites OFF)
4. Restarta
5. YOU ARE GOLDEN
Sent: Sun 22. Ágú 2004 12:55
af DippeR
hehe jamm.. ég hringdi einmitt upp í start fyrir helgi og þá var mér bent á þetta. Hefur ekkert klikkað síðan
omegadrivers ?
Sent: Sun 29. Ágú 2004 20:16
af Major Bummer
eg er i þessu sama mitac 8050D , driver veseni . kemur bara cannot find server þegar eg reyni ad fara inna þessa omegadriver sidu.
Re: omegadrivers ?
Sent: Sun 29. Ágú 2004 20:24
af DippeR
Major Bummer skrifaði:eg er i þessu sama mitac 8050D , driver veseni . kemur bara cannot find server þegar eg reyni ad fara inna þessa omegadriver sidu.
Omegadrivers.net er það.. Ekki driver ef það er málið:)
En já.. kemur á daginn að það er e-ð að skjákortinu mínu og vélin er í viðgerð, bíð eftir að fá að heyra meira frá Start bara.
Sent: Sun 29. Ágú 2004 20:31
af Major Bummer
þetta virkar ekki heldur kemur bara timed out
fann þetta annarstaðar :
http://downloads.driverheaven.net/index4.htm
Sent: Mán 30. Ágú 2004 00:19
af Major Bummer
Sent: Mán 30. Ágú 2004 10:10
af Demon
heh, það eiga nú allir að vita betur en að nota drivers sem fylgja með
Sent: Mán 30. Ágú 2004 10:13
af gnarr
já.. mér þætti gaman að sjá þig reyna það með fartölvu.
Sent: Mán 30. Ágú 2004 10:30
af Demon
gnarr skrifaði:já.. mér þætti gaman að sjá þig reyna það með fartölvu.
eh, I did?
Ég gerði það með mína ferðatölvu