Síða 1 af 1
Símakaup -40þús
Sent: Fim 08. Nóv 2012 21:30
af krizzikagl
sælir.
Ég var að hugsa, ég hef 40 þús krónur til að eyða í síma, nýjan eða notaðan, helst Android og nokkuð öflugan.
endilega komiði með uppástungur
Re: Símakaup -40þús
Sent: Fim 08. Nóv 2012 22:16
af Plushy
Ætti að vera hægt að finna notaðan Samsung Galaxy SII fyrir svona pening, kannski bæta smá við.
Re: Símakaup -40þús
Sent: Fös 09. Nóv 2012 15:09
af k0fuz
eða bæta 20 kalli við og fá einhvern sem á leið í fríhöfnina til að kippa glænýjum galaxy S2 með sér
Re: Símakaup -40þús
Sent: Fös 09. Nóv 2012 15:33
af Benzmann
bæta 10þús við og fá sér nýjann Galaxy Ace2 síma
mjög góðir, þá ertu ekki farin í neinar öfgar heldur
Re: Símakaup -40þús
Sent: Fös 09. Nóv 2012 15:43
af dori
Rosalega skrýtin þörf hjá mörgum hérna að vilja alltaf benda á hluti sem eru 50% dýrari en uppgefið budget. Ef það er beðið um besta símann sem völ er á fyrir 40 þúsund þá er ekki hægt að gera fyrir því að aðilinn hafi 20 þúsund meira í vasanum sem hann er til í að láta í þetta og þekki einhvern sem er á leiðinni í gegnum fríhöfnina á næstunni.
Also, það þarf að borga gjöld af svona dýrum hlutum þó að þeir séu keyptir í fríhöfn.
Re: Símakaup -40þús
Sent: Fös 09. Nóv 2012 15:43
af Yawnk
https://vefverslun.siminn.is/vorur/fars ... /#pv_11709" onclick="window.open(this.href);return false; Nokia Lumia 610
Re: Símakaup -40þús
Sent: Fös 09. Nóv 2012 22:50
af Swooper
Eitthvað
svona er líklega það besta sem þú færð fyrir þennan pening. Getur eytt afgangnum í minniskort. Myndi venjulega ekki mæla með LG, en fyrir þennan pening færðu varla neitt almennilegt hvort eð er...
Re: Símakaup -40þús
Sent: Fös 09. Nóv 2012 22:51
af svanur08
Voðalega eru eitthvað margir á móti vörum frá LG.
Re: Símakaup -40þús
Sent: Lau 10. Nóv 2012 00:49
af Yawnk
svanur08 skrifaði:Voðalega eru eitthvað margir á móti vörum frá LG.
Því símar frá LG hafa yfirleitt reynst illa..
Re: Símakaup -40þús
Sent: Lau 10. Nóv 2012 03:35
af svanur08
Yawnk skrifaði:svanur08 skrifaði:Voðalega eru eitthvað margir á móti vörum frá LG.
Því símar frá LG hafa yfirleitt reynst illa..
Ég er ekki að tala um síma bara allt.
Re: Símakaup -40þús
Sent: Lau 10. Nóv 2012 10:27
af k0fuz
dori skrifaði:Rosalega skrýtin þörf hjá mörgum hérna að vilja alltaf benda á hluti sem eru 50% dýrari en uppgefið budget. Ef það er beðið um besta símann sem völ er á fyrir 40 þúsund þá er ekki hægt að gera fyrir því að aðilinn hafi 20 þúsund meira í vasanum sem hann er til í að láta í þetta og þekki einhvern sem er á leiðinni í gegnum fríhöfnina á næstunni.
Also, það þarf að borga gjöld af svona dýrum hlutum þó að þeir séu keyptir í fríhöfn.
er nú einfaldlega baaaaaaaara að benda á þá valmöguleika sem eru í stöðunni... hann biður um nokkuð öflugan síma og oft á tíðum vilja menn púnga út aðeins meiri aur og fá þá meira "high-end" vöru.. Einnig rosalega skrýtin þörf hjá sumum að vera væla útaf öllu
Ps. borgar ekkert af vörunni ef þú ert sniðugur..
Re: Símakaup -40þús
Sent: Lau 10. Nóv 2012 13:15
af dori
k0fuz skrifaði:er nú einfaldlega baaaaaaaara að benda á þá valmöguleika sem eru í stöðunni... hann biður um nokkuð öflugan síma og oft á tíðum vilja menn púnga út aðeins meiri aur og fá þá meira "high-end" vöru.. Einnig rosalega skrýtin þörf hjá sumum að vera væla útaf öllu
Ps. borgar ekkert af vörunni ef þú ert sniðugur..
Og ef þér mistekst að vera sniðugur borgar þú 2x aðflutningsgjöld og 15% álagningu ofan á það.
Ég er bara að benda á að þetta er gegnumgangandi þema í þráðum þar sem fólk biður um ráð. Það er alltaf skotið yfir markið og aðilanum sagt að finna bara það sem vantar upp á einhversstaðar.
Re: Símakaup -40þús
Sent: Lau 10. Nóv 2012 14:23
af k0fuz
dori skrifaði:k0fuz skrifaði:er nú einfaldlega baaaaaaaara að benda á þá valmöguleika sem eru í stöðunni... hann biður um nokkuð öflugan síma og oft á tíðum vilja menn púnga út aðeins meiri aur og fá þá meira "high-end" vöru.. Einnig rosalega skrýtin þörf hjá sumum að vera væla útaf öllu
Ps. borgar ekkert af vörunni ef þú ert sniðugur..
Og ef þér mistekst að vera sniðugur borgar þú 2x aðflutningsgjöld og 15% álagningu ofan á það.
Ég er bara að benda á að þetta er gegnumgangandi þema í þráðum þar sem fólk biður um ráð. Það er alltaf skotið yfir markið og aðilanum sagt að finna bara það sem vantar upp á einhversstaðar.
hehe jájá manni mistekst ekki ef þetta er gert rétt það er nú bara þannig.. tekur síman úr hefur hann á þér, hendir kassanum og hefur bæklinga og hleðslutæki og annað á sitthvorum staðnum í töskunni.. einfalt..
Re: Símakaup -40þús
Sent: Lau 10. Nóv 2012 17:18
af Swooper
svanur08 skrifaði:Yawnk skrifaði:svanur08 skrifaði:Voðalega eru eitthvað margir á móti vörum frá LG.
Því símar frá LG hafa yfirleitt reynst illa..
Ég er ekki að tala um síma bara allt.
LG er með frábærar þvottavélar, víst.
Re: Símakaup -40þús
Sent: Lau 10. Nóv 2012 17:23
af DerrickM
Sjónvörpin eru allt í lagi
Re: Símakaup -40þús
Sent: Lau 10. Nóv 2012 17:27
af Tbot
Notaður S2 er frá 40 upp í 50 þús hérna og á bland.