Síða 1 af 5

Nú fer ég að verða vitlaus.... Thermaltake 730w Smart

Sent: Mið 17. Okt 2012 21:31
af Yawnk
Sælir, ég veit ekki númer hvað þessi þráður er sem ég geri um þessa andskotans tölvu mína.
Nú fór aflgjafinn mjög líklega í þriðja skiptið, ÞRIÐJA, á tveggja mánaða millibili.
Fyrst springur hann, svo fer viftan í seinni, og svo þessi þriðji.. fyrir 20 mínútum.

Þetta gerðist svo : Ég var bara í mínum uppáhaldsleik... Battlefield 3 spilandi eins og venjulega, allt í gúddí, búinn að vera svona hálftíma í leik, svo púff, fer rafmagnið af BARA á mínu herbergi útaf vélinni hjá mér, ég hef ekki kveikt á henni síðan.

Og fyrir þá.. sem halda að þetta sé rafmagnið hjá mér, eins og margir virðast halda.. ég sver, það er einfaldlega EKKERT að því, ég var til dæmis aðra tölvu á undan þessari tengda næstum 24/7 í 2 ár, og ekki eitt EINASTA vandamál eins og þetta.
Og einnig þá var nýlega skipt um raflagnir í húsinu, þannig að þetta er ekki vandamálið.
Plús það, að það er ekki mikið load á greininni/fjöltenginu, það eina sem ég er með tengt er tölvan, skjár og hátalarar..

Nú er ég að fá gríðarlega mikla helvítis andúð á Thermaltake, nú sé ég persónulega til þess að ALLIR sem ég þekkja kaupi aldrei neitt tengt Thermaltake, nema kannski kassa, lítið hægt að bila í 10kg af áli...

Á morgun fer ég beinustu leið í Tölvutek, í um það bil hundraðasta skipti, og heimta endurgreiðslu á þessum aflgjafa, ég er verða bandbrjálaður á þessu rugli, ég er búinn að fara svo oft með tölvuna til þeirra, að það mætti halda að ég ætti heima þarna!

Mikið vildi ég að ég hefði hlustað á innsæið og tekið Corsair... þá hefði þetta líklega aldrei gerst.

Er þorandi að taka aflgjafann úr sambandi við allt í vélinni og tengja hann við rafmagn, til að athuga hvort hann sé alveg dauður, eða á ég að láta Tölvutek sjá um það?

*Svona til að bæta við einu skemmtilegu, ég sagði einmitt við síðasta starfsmann sem lagaði vélina hjá mér í Tölvutek seinast, jæja núna er annar October, hversu lengi dugir þessi aflgjafi; Rétt rúmar tvær vikur dugði þessi.

I5 3570k
Z77X-D3H
Thermaltake 730W Smart
4GB DDR3 1333MHZ
GTX 660 (NonTi)
500GB Sata 3
Og allt umvafið í fallegan Coolermaster haf 912 plus..

:face

Re: Nú fer ég að vera vitlaus.... Thermaltake 730w Smart....

Sent: Mið 17. Okt 2012 21:33
af mundivalur
Þetta er SÚPER óheppni ](*,)

Re: Nú fer ég að vera vitlaus.... Thermaltake 730w Smart....

Sent: Mið 17. Okt 2012 21:36
af Yawnk
mundivalur skrifaði:Þetta er SÚPER óheppni ](*,)
Já... Segðu.

Re: Nú fer ég að vera vitlaus.... Thermaltake 730w Smart....

Sent: Mið 17. Okt 2012 21:36
af Nördaklessa
shhiii, talandi um óheppni!

Re: Nú fer ég að vera vitlaus.... Thermaltake 730w Smart....

Sent: Mið 17. Okt 2012 21:41
af AntiTrust
Ef þú ætlar að vera að smella honum aftur í samband passaðu þá að hafa hann á grein sem er ekki í notkun, upp á önnur raftæki.

Re: Nú fer ég að vera vitlaus.... Thermaltake 730w Smart....

Sent: Mið 17. Okt 2012 21:55
af Yawnk
AntiTrust skrifaði:Ef þú ætlar að vera að smella honum aftur í samband passaðu þá að hafa hann á grein sem er ekki í notkun, upp á önnur raftæki.
Jæja, best að drífa sig í að athuga þetta þá, ég skrifa niðurstöður í þráðinn seinna í kvöld líklega.

Re: Nú fer ég að vera vitlaus.... Thermaltake 730w Smart....

Sent: Mið 17. Okt 2012 21:59
af vesley
Þegar 3 aflgjafar drepast í röð þá grunar mig frekar rafmagnið en aflgjafann, sama þótt sumir hér hata Thermaltake.

Myndi allavega láta tjekka aftur á því, þrátt fyrir að það sé nýbúið að skipta um lagnir getur verið vandamál á því. Auðvelt að gera mistök þegar maður leggur rafmagn og geta oft komið upp bilanir.

Eins og AntiTrust sagði ef þú ætlar að kveikja aftur á honum hafðu hann þá á annarri grein (öðru öryggi) og sjáðu hvort sama vandamálið gerist.

Re: Nú fer ég að vera vitlaus.... Thermaltake 730w Smart....

Sent: Mið 17. Okt 2012 22:09
af Yawnk
vesley skrifaði:Þegar 3 aflgjafar drepast í röð þá grunar mig frekar rafmagnið en aflgjafann, sama þótt sumir hér hata Thermaltake.

Myndi allavega láta tjekka aftur á því, þrátt fyrir að það sé nýbúið að skipta um lagnir getur verið vandamál á því. Auðvelt að gera mistök þegar maður leggur rafmagn og geta oft komið upp bilanir.

Eins og AntiTrust sagði ef þú ætlar að kveikja aftur á honum hafðu hann þá á annarri grein (öðru öryggi) og sjáðu hvort sama vandamálið gerist.
Var að bíða eftir að eitthver myndi nefna þetta, en þetta er ekki rétt, því ekki allir aflgjafarnir fóru svona, einn var með lítið vandamál með viftuna, fór á fullan snúning
Og nýlega, þá meina ég fyrir nokkrum árum, þá var ég allaveganna verið með margfalt meira load á þessa grein 24/7 í næstum tvö ár áður en ég fékk þessa vél, þetta er ekki rafmagnið, ég lofa við grafir framtíðabarnanna minna við það... ég er svo viss!

Plús það, þá er aldrei neitt spennuflökt eða neitt slíkt, bara aldrei.
Ef þetta væri rafmagnið, þá hefði eitthvað gerst með gömlu vélina, það ætti ekki bara að vera einangrað við þessa.

Re: Nú fer ég að vera vitlaus.... Thermaltake 730w Smart....

Sent: Mið 17. Okt 2012 22:18
af Xovius
Corsair all the way :D

Re: Nú fer ég að vera vitlaus.... Thermaltake 730w Smart....

Sent: Mið 17. Okt 2012 22:29
af Yawnk
Jæja... Tók hann úr tölvunni og tengdi við rafmagn og kveikti á honum.
Hann virðist vera alveg dauður, viftan snýst ekkert og ekkert fer í gang.
Ég fer þá með aflgjafann í Tölvutek á morgun.

Re: Nú fer ég að vera vitlaus.... Thermaltake 730w Smart....

Sent: Mið 17. Okt 2012 22:30
af Kjáni
Það þarf held ég að vera eithvað tengt sem tekur straum eða þarf að gera svona hotwire með klemmu eða eithvað í þá átt annars er ekki hægt að ræsa upp minnir mig :happy

Re: Nú fer ég að vera vitlaus.... Thermaltake 730w Smart....

Sent: Mið 17. Okt 2012 22:30
af AciD_RaiN
Yawnk skrifaði:Jæja... Tók hann úr tölvunni og tengdi við rafmagn og kveikti á honum.
Hann virðist vera alveg dauður, viftan snýst ekkert og ekkert fer í gang.
Ég fer þá með aflgjafann í Tölvutek á morgun.
Þú settir eitthvað á milli græna og einvers af svörtu vírunum til að tengja þá saman??

Re: Nú fer ég að vera vitlaus.... Thermaltake 730w Smart....

Sent: Mið 17. Okt 2012 22:31
af playman
Yawnk skrifaði:Jæja... Tók hann úr tölvunni og tengdi við rafmagn og kveikti á honum.
Hann virðist vera alveg dauður, viftan snýst ekkert og ekkert fer í gang.
Ég fer þá með aflgjafann í Tölvutek á morgun.
þú veist að hann kveikir ekki á sér nema að tengja tvo pinna samann.

Re: Nú fer ég að vera vitlaus.... Thermaltake 730w Smart....

Sent: Mið 17. Okt 2012 22:32
af Yawnk
Nú, hehehe þá er þetta eitthvað flóknara en ég hélt, ég gerði ekkert af því ofannefnda ;)

Re: Nú fer ég að vera vitlaus.... Thermaltake 730w Smart....

Sent: Mið 17. Okt 2012 22:33
af braudrist
Aflgjafi hefur slegið út rafmagnið í herberginu mínu þannig að þetta gæti vel verið aflgjafinn. Ég mundi bara fara þangað og heimta endurgreiðslu, áttu ekki annars rétt á því eftir 3 skipti samkvæmt neytendalögum?

Re: Nú fer ég að vera vitlaus.... Thermaltake 730w Smart....

Sent: Mið 17. Okt 2012 22:36
af AciD_RaiN
Þú getur notað bréfaklemmu úr græna vísrnum í hvaða svarta sem er. Gerði strik inn á myndina sem sýna þetta hehe

Mynd

Re: Nú fer ég að vera vitlaus.... Thermaltake 730w Smart....

Sent: Mið 17. Okt 2012 22:41
af Yawnk
AciD_RaiN skrifaði:Þú getur notað bréfaklemmu úr græna vísrnum í hvaða svarta sem er. Gerði strik inn á myndina sem sýna þetta hehe

Mynd
Úff, ég legg ekki í þetta! ég vil nú ekki fara að hann fari að skemmast meira ;)

Re: Nú fer ég að vera vitlaus.... Thermaltake 730w Smart....

Sent: Mið 17. Okt 2012 22:51
af worghal
Yawnk skrifaði:
AciD_RaiN skrifaði:Þú getur notað bréfaklemmu úr græna vísrnum í hvaða svarta sem er. Gerði strik inn á myndina sem sýna þetta hehe

Mynd
Úff, ég legg ekki í þetta! ég vil nú ekki fara að hann fari að skemmast meira ;)
þetta er safe, hef sjálfur gert þetta á bilaða og í lagi aflgjafa án nokkura breitinga á stöðu þeirra, þeir sem virkuðu virka enþá :happy

Re: Nú fer ég að vera vitlaus.... Thermaltake 730w Smart....

Sent: Mið 17. Okt 2012 22:55
af playman
Yawnk skrifaði:
AciD_RaiN skrifaði:Þú getur notað bréfaklemmu úr græna vísrnum í hvaða svarta sem er. Gerði strik inn á myndina sem sýna þetta hehe

Mynd
Úff, ég legg ekki í þetta! ég vil nú ekki fara að hann fari að skemmast meira ;)
Þetta í rauninni seigir bara aflgjafanum að hann eigi að kveikja á sér.

Re: Nú fer ég að vera vitlaus.... Thermaltake 730w Smart....

Sent: Mið 17. Okt 2012 22:56
af littli-Jake
aflgjafinn er glæsnyr og i 100% abirð hja honum þannig að eg se ekki alveg tilgang i að vera með einherjar svona æfingar.

Re: Nú fer ég að vera vitlaus.... Thermaltake 730w Smart....

Sent: Mið 17. Okt 2012 22:57
af Garri
Auðvitað getur hann skemmt eitthvað ef hann konslúttar röngu pari. Þarna er bara verið að gefa græna vírnum jörð.

Re: Nú fer ég að vera vitlaus.... Thermaltake 730w Smart....

Sent: Mið 17. Okt 2012 23:13
af Yawnk
Held ég geri þetta nú ekki, hef ekki snert aflgjafa áður, og miðað við það sem Garri sagði hér áðan að ég gæti skemmt eitthvað, kannski betra að kunna þetta amk 10% áður en maður fer í þetta ;)

Re: Nú fer ég að vera vitlaus.... Thermaltake 730w Smart....

Sent: Mið 17. Okt 2012 23:14
af Kjáni
Yawnk skrifaði:Held ég geri þetta nú ekki, hef ekki snert aflgjafa áður, og miðað við það sem Garri sagði hér áðan að ég gæti skemmt eitthvað, kannski betra að kunna þetta amk 10% áður en maður fer í þetta ;)
maður kann þetta aldrei fyrir en maður prófar :happy \:D/

Re: Nú fer ég að vera vitlaus.... Thermaltake 730w Smart....

Sent: Mið 17. Okt 2012 23:24
af AciD_RaiN
Þú passar bara að setja í græna og bara einhvern svartan í rauninni.

Re: Nú fer ég að vera vitlaus.... Thermaltake 730w Smart....

Sent: Mið 17. Okt 2012 23:24
af Gislinn
Ég nota tölvuaflgjafa til að gefa 12 og 5 volt hjá mér fyrir rafrásir (s.s. ekki í tölvu), hann er tengdur svona eins og lýst er hér að ofan, hann er búinn að vera tendur svoleiðis í næstum 1 ár og er nánast alltaf í gangi.

Ef þú tengir milli græna (PSU on) og einhvers svarta (jörð) að þá ertu í raun bara að segja aflgjafanum að hann eigi að kveikja á sér, mjög erfitt að skemma eitthvað ef þú passar bara að tengja græna vírin við svartan. Gangi þér vel með þetta.