Síða 1 af 1

Ætti að hækka kosninga aldurinn upp í 20?

Sent: Þri 16. Okt 2012 18:05
af hakkarin
Það eru sumir að segja að það eigi að lækka hann í 16 ár sem mér finnst vera alveg fáránlegt. Mér finnst frekar að það eigi að hækka hann ef eitthvað er. Vill ekki gefa ljúgandi stjórnmálamönnum auðveld fórnarlömb til þess að ljúga að.

Skoðun?

Re: Ætti að hækka kosninga aldurinn upp í 20?

Sent: Þri 16. Okt 2012 18:07
af Jim
.

Re: Ætti að hækka kosninga aldurinn upp í 20?

Sent: Þri 16. Okt 2012 18:10
af Sindri A
Ég er fæddur árið 1993 og mér finnst ég hafa jafn gott gegnsægi og manneskja sem er fædd árinu á undan mér. Pólitík á ekki að vera flokksbundin heldur eiga að vera einstaklings framboð. Það er fyrsta breytingin sem mér finnst að ætti að framkvæma.

Re: Ætti að hækka kosninga aldurinn upp í 20?

Sent: Þri 16. Okt 2012 18:20
af Stuffz
það ætti að hækka hann uppí 100 IQ

\:D/

Re: Ætti að hækka kosninga aldurinn upp í 20?

Sent: Þri 16. Okt 2012 18:21
af AciD_RaiN
Stuffz skrifaði:það ætti að hækka hann uppí 100 IQ

\:D/
x2 :happy

Re: Ætti að hækka kosninga aldurinn upp í 20?

Sent: Þri 16. Okt 2012 18:34
af ASUStek
AciD_RaiN skrifaði:
Stuffz skrifaði:það ætti að hækka hann uppí 100 IQ

\:D/
x2 :happy
x3 \:D/

Re: Ætti að hækka kosninga aldurinn upp í 20?

Sent: Þri 16. Okt 2012 18:37
af playman
Jim skrifaði:Nei það er fáránlegt að vera orðinn sjálfráða og mega ekki kjósa, þetta á allt að miðast við 18 ára aldur. Sjálfræði, bílpróf, áfengisdrykkja, kosningaréttur.
Þarft að vera 20 ára til þess að meiga drekka áfeingi.

Re: Ætti að hækka kosninga aldurinn upp í 20?

Sent: Þri 16. Okt 2012 18:44
af fannar82
playman skrifaði:
Jim skrifaði:Nei það er fáránlegt að vera orðinn sjálfráða og mega ekki kjósa, þetta á allt að miðast við 18 ára aldur. Sjálfræði, bílpróf, áfengisdrykkja, kosningaréttur.
Þarft að vera 20 ára til þess að meiga drekka áfeingi.

Held að pointið sem hann átti við væri að lækka áfengis aldurinn :P

Re: Ætti að hækka kosninga aldurinn upp í 20?

Sent: Þri 16. Okt 2012 19:09
af Jim
.

Re: Ætti að hækka kosninga aldurinn upp í 20?

Sent: Þri 16. Okt 2012 19:13
af biturk
nei, frekar að banna konum að kjósa!

Re: Ætti að hækka kosninga aldurinn upp í 20?

Sent: Þri 16. Okt 2012 19:58
af GuðjónR
Hætta bara með kosningar enda skiptir engu máli hvað þið kjósið..

Mynd

Re: Ætti að hækka kosninga aldurinn upp í 20?

Sent: Þri 16. Okt 2012 20:30
af Joi_BASSi!
að mínu mati ætti að lengja skólaskilduna og gefa fólki sjálfræði og kosningarrétt þegar að það hefur náð áhveðnu stigi. í staðinn fyrir að útskrifa 15 ára krakka hvort sem að þeir hafa lært einhvað eða ekki og kalla þá lögmæta borgara 3 árum seinna.
ég er ekki að tala um mikla lengingu. ég held að 18 ára aldurinn sé gott viðmið en ekki sjálfgefinn réttur.

Re: Ætti að hækka kosninga aldurinn upp í 20?

Sent: Þri 16. Okt 2012 20:34
af ManiO
Sindri A skrifaði:Ég er fæddur árið 1993 og mér finnst ég hafa jafn gott gegnsægi og manneskja sem er fædd árinu á undan mér. Pólitík á ekki að vera flokksbundin heldur eiga að vera einstaklings framboð. Það er fyrsta breytingin sem mér finnst að ætti að framkvæma.
Ég var svo sem ekki mótfallinn einstaklings framboði áður en stjórnlagaþings kosningarnar voru fyrir nokkru. Eftir það finnst mér sú hugmynd vera eins ófýsileg og að velja slembið einhvern útlending til að stjórna landinu.

Re: Ætti að hækka kosninga aldurinn upp í 20?

Sent: Þri 16. Okt 2012 20:49
af Nitruz
Það ætti að leggja fyrir fólk smá quizz á kosningar stað og ef það stenst ekki þá má það ekki kjósa.
Einföld og góð lausn.

Re: Ætti að hækka kosninga aldurinn upp í 20?

Sent: Mið 17. Okt 2012 00:10
af Xovius
Mér finnst að þetta ætti bara að vera eins og bílprófið, mættir taka prófið hefðirðu áhuga við 16-17 ára aldur og fengið rétt til þess að kjósa :)

Re: Ætti að hækka kosninga aldurinn upp í 20?

Sent: Mið 17. Okt 2012 09:04
af Tbot
ASUStek skrifaði:
AciD_RaiN skrifaði:
Stuffz skrifaði:það ætti að hækka hann uppí 100 IQ

\:D/
x2 :happy
x3 \:D/
Ef þetta skilyrði væri sett á frambjóðendur, þá mundi fækka heldur betur í þeim hópi.

Re: Ætti að hækka kosninga aldurinn upp í 20?

Sent: Mið 17. Okt 2012 12:06
af Sindri A
ManiO skrifaði:
Sindri A skrifaði:Ég er fæddur árið 1993 og mér finnst ég hafa jafn gott gegnsægi og manneskja sem er fædd árinu á undan mér. Pólitík á ekki að vera flokksbundin heldur eiga að vera einstaklings framboð. Það er fyrsta breytingin sem mér finnst að ætti að framkvæma.
Ég var svo sem ekki mótfallinn einstaklings framboði áður en stjórnlagaþings kosningarnar voru fyrir nokkru. Eftir það finnst mér sú hugmynd vera eins ófýsileg og að velja slembið einhvern útlending til að stjórna landinu.
Samt sem áður er glórulaust að kaupa fótboltalið en þú vilt bara tvo leikmenn.

Re: Ætti að hækka kosninga aldurinn upp í 20?

Sent: Mið 17. Okt 2012 12:17
af Halli13
Smá offtopic en...

Ef það væri kosið einstaklinga, hvernig mynduð þið þá vilja sjá myndaða ríkisstjórn?

Re: Ætti að hækka kosninga aldurinn upp í 20?

Sent: Mið 17. Okt 2012 13:33
af ManiO
Sindri A skrifaði:
ManiO skrifaði:
Sindri A skrifaði:Ég er fæddur árið 1993 og mér finnst ég hafa jafn gott gegnsægi og manneskja sem er fædd árinu á undan mér. Pólitík á ekki að vera flokksbundin heldur eiga að vera einstaklings framboð. Það er fyrsta breytingin sem mér finnst að ætti að framkvæma.
Ég var svo sem ekki mótfallinn einstaklings framboði áður en stjórnlagaþings kosningarnar voru fyrir nokkru. Eftir það finnst mér sú hugmynd vera eins ófýsileg og að velja slembið einhvern útlending til að stjórna landinu.
Samt sem áður er glórulaust að kaupa fótboltalið en þú vilt bara tvo leikmenn.

Halli hér að ofan bendir á eitt af stóru vandamálunum.

Re: Ætti að hækka kosninga aldurinn upp í 20?

Sent: Mið 17. Okt 2012 13:40
af natti
Sindri A skrifaði: Samt sem áður er glórulaust að kaupa fótboltalið en þú vilt bara tvo leikmenn.
Heldur þú s.s. ekki með neinu liði, heldur bara með ákveðnum einstaklingum í mismunandi liðum?
Geturu þá farið á fótboltaleik og hvatt bæði liðin áfram, eftir því hvaða liðsmaður er með boltann hverju sinni?

Ef við miðum við þessa samlíkingu þína, þá einmitt geturu ekki farið og keypt tvo leikmenn, eða haldið bara með tveim leikmönnum.
Ef þú ætlar að taka þátt í businessinum, þá einmitt byrjaru á að kaupa lið, ekki leikmenn.

Þú heldur líka með ákveðnu "liði" og vonast til þess að þjálfarar og stjórnendur liðsins velji bestu einstaklinga í liðið hverju sinni.
Sama fyrirkomulag hefur viðgengist í stjórnmálum, en hefur aðeins verið að breytast með prófkjörunum, þar sem "stuðningsmenn" flokks geta haft bein áhrif á hvaða einstaklingar fá að bjóða sig fram með "liðinu".

Það sem mér finnst hinsvegar að þurfa að samræma, það er að annaðhvort breytum við þessu í að kjósa einstaklinga, og að einstaklingar eigi "atkvæðið", eða þá að við kjósum flokka, og flokkarnir eigi atkvæðið.
Í dag er það þannig að við kjósum flokka, en einstaklingar eiga atkvæðið.
Það sem ég á við með þessu er að ef að einstaklingur ákveður á miðju kjörtímabili að skipta um flokk, þá fær hann að halda áfram inni undir formerkjum þess flokks sem hann/hún hóf samstarf með.
Þetta er galið því að miðað við núverandi kosningakerfi, þá skiptust atkvæðin niður á flokka, og því væri mun réttara að ef að einstaklingur skiptir um flokk að hann/hún víki til hliðar og varamaður komi inn í staðinn.

En að upprunalegu spurningunni, þá er ég sammála því að kosningaaldur, sem og önnur réttindi (áfengi, bílpróf etc.) miðist við sjálfræðisaldur.

Re: Ætti að hækka kosninga aldurinn upp í 20?

Sent: Mið 17. Okt 2012 13:47
af dori
Flokkakerfið fittar ekki alveg inn í stóra kerfið. Eins og natti bendir á eru þingmenn kosnir inn á þing en ekki flokkurinn með einhver ákveðið mörg sæti. Þingmaður er líka bara bundinn við sína sannfæringu en ekki við neitt sem flokkurinn segir (þó svo að þetta sé víst eins og versti leikskóli í því hvernig "þjálfararnir" fá "liðsmennina" til að vinna að sínu marki).

Ég held að það hvernig við skipum ríkisstjórn ef einstaklingar eru kosnir sé ekki stærsta vandamálið.