Síða 1 af 1
Vaktin og SSL/HTTPS
Sent: Mán 15. Okt 2012 23:23
af natti
Halló.
Afhverju er ekki í boði að tengjast spjall.vaktin.is yfir https?
Öllu heldur, afhverju er það ekki on og enabled(forced?) by default?
Kjánalegt að ef ég fer á spjallið hérna á kaffihúsi, eða í skólanum, eða whatever hotspot, að einhver annar geti a) auðveldlega hijakkað sessionið mitt og b) disconnectað sessionið mitt og látið mig logga mig inn aftur og séð u/p hjá mér (þar sem allt er jú í cleartext)...
Bara pæling.
Re: Vaktin og SSL/HTTPS
Sent: Mán 15. Okt 2012 23:28
af GuðjónR
Hvernig leysum við þetta?
Re: Vaktin og SSL/HTTPS
Sent: Mán 15. Okt 2012 23:35
af Klaufi
GuðjónR skrifaði:Hvernig leysum við þetta?
GuðjónR +

Re: Vaktin og SSL/HTTPS
Sent: Mán 15. Okt 2012 23:38
af natti
GuðjónR skrifaði:Hvernig leysum við þetta?
Útvega skilríki fyrir vaktin.is/spjall.vaktin.is (hægt að fá tiltölulega ódýr hjá GoDaddy eða DigiCert).
Heyra í depli þar sem að vefþjónninn er configaður til að svara á porti 443(https) með html kóða (cpanel "Default Web Site Page"), þannig að væntanlega er einhver config error þar á ferð.
Það er auðvitað e-ð config á vefþjóninum svo til að vitna í skilríkið oþh.
Það er yfir öld síðan ég hef pælt í skírteinum fyrir venjulegan vefþjón, þannig að best væri að tala við einhvern sem hefur meiri þekkingu en ég í þessu. (Ef að hýsingaraðilinn er til í að aðstoða þá er það auðvitað bara best.

)
(Veit svo ekki hvort það þarf einhverja config-breytingu í phpBB, hef ekki notað phpBB heldur í lengri tíma.)
Re: Vaktin og SSL/HTTPS
Sent: Mán 15. Okt 2012 23:41
af GuðjónR
Sendi mail á depil í fyrramálið...(góður punktur með ölið klaufi)
p.s. þetta ætti að vera hægt...
Re: Vaktin og SSL/HTTPS
Sent: Þri 16. Okt 2012 08:23
af C2H5OH
Nú spyr ég eins og ég komi undan þúfu, er það eitthvað óöruggara að búa bara til skilríkið sjálfur? veit að það er rosalega þægilegt að búa til svoleiðis í ubuntu + það er frítt

Re: Vaktin og SSL/HTTPS
Sent: Þri 16. Okt 2012 09:50
af tdog
C2H5OH skrifaði:Nú spyr ég eins og ég komi undan þúfu, er það eitthvað óöruggara að búa bara til skilríkið sjálfur? veit að það er rosalega þægilegt að búa til svoleiðis í ubuntu + það er frítt

Það er ekki vottað. Þá fá allir upp meldingu þar sem þeir eru beðnir um að samþykkja ótraust skilríki.
Re: Vaktin og SSL/HTTPS
Sent: Þri 16. Okt 2012 11:28
af Blues-
Það er hægt að fá ókeypis skilríki á startssl.com