Síða 1 af 1

Skjár nær ekki signal frá nýju GTX660 - Leyst -

Sent: Fim 27. Sep 2012 15:50
af Yawnk
Sælir, keypti mér GTX 660 kort, setti það í, og tengdi, viftur snúsast og tölvan bootar eðlilega, en það kemur no image á skjáinn, man líka eftir þessu með gamla kortið mitt, þurfti eitthvað að vesenast í Biosnum, bara man ekki hvað.
Er að tengjast með dvi-dvi kapal.
Hvernig laga ég þetta?

Re: Skjár nær ekki signal frá nýju GTX660

Sent: Fim 27. Sep 2012 18:24
af Yawnk
Breytti þráð, ný spurning þannig að ég verð að bömpa þessu :)

Re: Skjár nær ekki signal frá nýju GTX660

Sent: Fim 27. Sep 2012 20:00
af Graven
Búinn að prófa öll tengin á skjákortinu?

Re: Skjár nær ekki signal frá nýju GTX660

Sent: Fim 27. Sep 2012 20:02
af upg8
Athugaðu hvernig þessu er forgangsraðað í BIOS undir "Init Display First"

Re: Skjár nær ekki signal frá nýju GTX660

Sent: Fim 27. Sep 2012 20:09
af Yawnk
Hringdi í Tölvutek, þeir hleyptu mér inn og löguðu þetta á staðnum :) Þurfti að updata Biosinn

Re: Skjár nær ekki signal frá nýju GTX660

Sent: Fim 27. Sep 2012 21:43
af Klemmi
Yawnk skrifaði:Hringdi í Tölvutek, þeir hleyptu mér inn og löguðu þetta á staðnum :) Þurfti að updata Biosinn
Aldrei lent í því að þurfa að update-a BIOS til þess að fá skjákort til að virka, ætla þó ekki að útiloka það.

Finnst líklegra að eitthvað hafi verið vitlaust tengt eða kortið hafi einfaldlega verið bilað og verið skipt út, þeim hafi þótt það líta betur út að segja að BIOS uppfærsla hafi lagað vandamálið :P

Re: Skjár nær ekki signal frá nýju GTX660

Sent: Fim 27. Sep 2012 22:05
af Yawnk
Klemmi skrifaði:

Neinei :) Ég var við hliðina á honum þegar hann var að þessu, biosinn eldgamall og illa stilltur, það var vandamálið.

Re: Skjár nær ekki signal frá nýju GTX660

Sent: Fim 27. Sep 2012 22:18
af MarsVolta
Klemmi skrifaði:
Yawnk skrifaði:Hringdi í Tölvutek, þeir hleyptu mér inn og löguðu þetta á staðnum :) Þurfti að updata Biosinn
Aldrei lent í því að þurfa að update-a BIOS til þess að fá skjákort til að virka, ætla þó ekki að útiloka það.

Finnst líklegra að eitthvað hafi verið vitlaust tengt eða kortið hafi einfaldlega verið bilað og verið skipt út, þeim hafi þótt það líta betur út að segja að BIOS uppfærsla hafi lagað vandamálið :P
Mér finnst þetta frekar ódýrt skot hjá þér Klemmi minn og mjög ófagmannlegt, þar sem þú ert starfsmaður í annari tölvuverslun og stjórnandi á þessari síðu. Ég var einn þeirra sem kíkti á þetta fyrir drenginn, og það kom skjámynd frá skjákortinu eftir BIOS uppfærslu. Yawnk tengdi allt rétt og það voru engar tengingar lausar og skjákortið var ekki bilað.

Re: Skjár nær ekki signal frá nýju GTX660 - Leyst -

Sent: Fim 27. Sep 2012 22:19
af Steini B
Ég get vel trúað því að einhver PCI-E 2.0 móðurborð þurfi uppfærslu á bios þar sem GTX660 er með 3.0

Re: Skjár nær ekki signal frá nýju GTX660 - Leyst -

Sent: Fim 27. Sep 2012 22:36
af Krisseh
Það er líka til að fyrsta start á skjákorti þarf vera vga tengt. (þannig á EVGA Gtx570)

Re: Skjár nær ekki signal frá nýju GTX660

Sent: Fös 28. Sep 2012 00:08
af Klemmi
MarsVolta skrifaði:Mér finnst þetta frekar ódýrt skot hjá þér Klemmi minn og mjög ófagmannlegt, þar sem þú ert starfsmaður í annari tölvuverslun og stjórnandi á þessari síðu. Ég var einn þeirra sem kíkti á þetta fyrir drenginn, og það kom skjámynd frá skjákortinu eftir BIOS uppfærslu. Yawnk tengdi allt rétt og það voru engar tengingar lausar og skjákortið var ekki bilað.
Biðst afsökunar ef ég móðgaði einhvern, eftir á að hyggja var þetta lélegt comment sem ég hefði ekki átt að posta.

Einnig ágætt að vita að einhver borð þarfnist BIOS uppfærslu fyrir þessi kort.

Re: Skjár nær ekki signal frá nýju GTX660 - Leyst -

Sent: Fös 28. Sep 2012 00:09
af worghal
væri gaman að vita hvaða móðurborð þú ert með og hvaða útfærslu af bios það var með.

Re: Skjár nær ekki signal frá nýju GTX660 - Leyst -

Sent: Fös 28. Sep 2012 00:27
af chaplin
Ég hef nú starfað í báðum verslunum svo ég ætta að vonast til þessa að menn haldi ekki að ég sé með e-h cheap shot en ég er algjörlega sammála Klemma, hef aldrei heyrt að það þurfi að uppfæra BIOS til að láta skjákort virka - kannski e-h til í því sem Steini B sagði, en ég veit það ekki, ætla þó auðvita ekkert að efast þetta er tæknimennirnir hjá Tölvutek segja að þetta hafi leyst vandamálið.
Steini B skrifaði:Ég get vel trúað því að einhver PCI-E 2.0 móðurborð þurfi uppfærslu á bios þar sem GTX660 er með 3.0
Er annars nokkuð VGA tengi á móðurborðinu þínu? Hef lent í því oftar en einu sinni að kúnni verslar vél, fer heim, kemur brjálaður til baka að tölva virkar ekki þegar hann tengdi í raun við skjástýringuna á móðurborðinu. Hvaða móðurborð ertu með?

Re: Skjár nær ekki signal frá nýju GTX660 - Leyst -

Sent: Fös 28. Sep 2012 01:09
af MarsVolta
Z77X-D3H, F9>F15.

Upplýsingar um F14 :
Description :
- Improve VGA compatibility
- Support multi-language

Menn geta velt sér upp úr því hvort þetta hafi verið BIOS vandamál eða ekki, en BIOS uppfærsla lagaði allaveganna vandamálið :).

Re: Skjár nær ekki signal frá nýju GTX660 - Leyst -

Sent: Fös 28. Sep 2012 01:40
af worghal
MarsVolta skrifaði:Z77X-D3H, F9>F15.

Upplýsingar um F14 :
Description :
- Improve VGA compatibility
- Support multi-language

Menn geta velt sér upp úr því hvort þetta hafi verið BIOS vandamál eða ekki, en BIOS uppfærsla lagaði allaveganna vandamálið :).
ég sé strax hvað vandamálið var.

Onboard Graphics

Kóði: Velja allt

Integrated Graphics Processor:
1 x D-Sub port
1 x DVI-D port, supporting a maximum resolution of 1920x1200
* The DVI-D port does not support D-Sub connection by adapter.
1 x HDMI port, supporting a maximum resolution of 1920x1200
mjög líklega hefur verið stillt á eitthvað af þessu sem main og það að uppfæra bios hefur einfaldlega resetað default og skjákortið kickað inn.

þetta er það sem ég tel líklegast miðað við það að þetta vandamál hefur komið upp hjá fleirum og þetta var einfaldlega það sem var að.

Re: Skjár nær ekki signal frá nýju GTX660 - Leyst -

Sent: Fös 28. Sep 2012 09:05
af MarsVolta
worghal skrifaði:
MarsVolta skrifaði:Z77X-D3H, F9>F15.

Upplýsingar um F14 :
Description :
- Improve VGA compatibility
- Support multi-language

Menn geta velt sér upp úr því hvort þetta hafi verið BIOS vandamál eða ekki, en BIOS uppfærsla lagaði allaveganna vandamálið :).
ég sé strax hvað vandamálið var.

Onboard Graphics

Kóði: Velja allt

Integrated Graphics Processor:
1 x D-Sub port
1 x DVI-D port, supporting a maximum resolution of 1920x1200
* The DVI-D port does not support D-Sub connection by adapter.
1 x HDMI port, supporting a maximum resolution of 1920x1200
mjög líklega hefur verið stillt á eitthvað af þessu sem main og það að uppfæra bios hefur einfaldlega resetað default og skjákortið kickað inn.

þetta er það sem ég tel líklegast miðað við það að þetta vandamál hefur komið upp hjá fleirum og þetta var einfaldlega það sem var að.
Nei það var ekki málið. Ég var búinn að resetta F9 bios-inn, og stilla hann, en engin skjámynd kom frá skjákorti. BIOS uppfærslan var nauðsynleg til þess að fá mynd frá skjákortinu :happy