Síða 1 af 1
BenQ skjár
Sent: Mán 10. Sep 2012 12:07
af wixor
Hæ þið eruð svo frábær hérna inni og ég er að leita mér að skjá og vantar aðstoð ykkar.
Ég er með þennan í huga:
http://www.tolvutek.is/vara/benq-gw2750 ... ar-svartur" onclick="window.open(this.href);return false;
Hvað finnst ykkur um hann og er þess virði að kaupa hann?
Takk fyrir aðstoðina
Re: BenQ skjár
Sent: Mán 10. Sep 2012 12:13
af Klemmi
Treysti nú Philips betur en BenQ, auk þess er hann talsvert ódýrari:
http://www.att.is/product_info.php?cPat ... 6a274c2160" onclick="window.open(this.href);return false;
Re: BenQ skjár
Sent: Mán 10. Sep 2012 12:42
af Tbot
Benq er með HDMI tengi að mér sýnist, sem kostar fullt af peningum eftir breytingar hjá tollstjóra.
Re: BenQ skjár
Sent: Mán 10. Sep 2012 12:54
af playman
Það er örugglega BenQ borð inní þessum skjá
Re: BenQ skjár
Sent: Mán 10. Sep 2012 17:55
af wixor
Takk fyrir þetta .. fleirum er velkomið að tjá sig
Er enn að hugsa hvort ég eigi að fá mér 27" BenQ skjáinn
p.s. Hver er munurinn á LCD og LED? Ég meina á maður
eftir að finna einhvern mun? Bara pæling
Re: BenQ skjár
Sent: Mán 10. Sep 2012 18:13
af KermitTheFrog
Bilanatíðni á BenQ skjám er alveg furðulega lítil. Þó er ég ekki að taka inn staka pixla sem, jú, falla ekki undir ábyrgðarbilun.
Eins og playman bendir réttilega á er líklegt að, sama hvaða skjá þú endar með, að BenQ hafi framleitt panelinn í hann og því myndi ég segja að þú værir betur settur með BenQ alla leið í gegn.
Re: BenQ skjár
Sent: Mán 10. Sep 2012 20:12
af wixor
Takk fyrir þetta, alltaf gaman að fá álit annara.
Ef maður er með 27" skjá - þarf maður þá að vera langt frá honum?
Þetta hljómar kannski heimskulega, bara pæling
Re: BenQ skjár
Sent: Mán 10. Sep 2012 21:25
af vesley
wixor skrifaði:Takk fyrir þetta, alltaf gaman að fá álit annara.
Ef maður er með 27" skjá - þarf maður þá að vera langt frá honum?
Þetta hljómar kannski heimskulega, bara pæling
Ég myndi allavega passa mig að vera ekki of nálægt honum þar sem hann er bara með 1920x1080 upplausn.
Re: BenQ skjár
Sent: Mán 10. Sep 2012 22:04
af Klemmi
KermitTheFrog skrifaði:Bilanatíðni á BenQ skjám er alveg furðulega lítil. Þó er ég ekki að taka inn staka pixla sem, jú, falla ekki undir ábyrgðarbilun.
Eins og playman bendir réttilega á er líklegt að, sama hvaða skjá þú endar með, að BenQ hafi framleitt panelinn í hann og því myndi ég segja að þú værir betur settur með BenQ alla leið í gegn.
Ef Tölvutek taka ekki staka pixla í ábyrgð þá er enn meiri ástæða til að forðast BenQ. Það að framleiðendur telji það ekki falla undir ábyrgð að einn pixill bili kemur íslenskum neytendum EKKERT við, ef varan er gölluð, þá er hún gölluð. Hún þarf ekki að vera x-mikið gölluð til að neytandi eigi rétt á úrbótum.
Fólk greinilega leyfir verzlunum bara að komast upp með að segja að hlutir séu ekki undir ábyrgð, ef slíkt mál færi fyrir íslenskan rétt þá er ég öruggur á því að neytandinn myndi alltaf vinna málið og fá nýjan skjá eða skjáinn endurgreiddan.
Varðandi það að BenQ framleiði gott sem alla panela í skjám sem seldir eru hér á landi, þá er það einfaldlega bull. BenQ voru um áramótin 2010-2011 með um 10% markaðshlutdeild í litlum LCD skjám (s.s. tölvuskjám, ekki sjónvörpum), en með meiri markaðshlutdeild voru Asus, Acer og ViewSonic. Hvað stærri skjáina varðar að þá eiga LG og Samsung bróðurpartinn af þeim.
Þó svo að markaðshlutdeild þeirra hafi mögulega hækkað eitthvað á síðastliðnum 20 mánuðum, þá erum við aldrei að tala um nema einhver prósentustig.
Til að gera langa sögu stutta, ekki láta sölumenn ljúga ykkur fulla af bulli um hvað fellur undir ábyrgð né að allir skjáir séu framleiddir af sama aðila.
Re: BenQ skjár
Sent: Mán 10. Sep 2012 22:13
af Steini B
Er alveg sammála þér Klemmi, gallaður pixill er galli í vöru, alveg sama þótt hann sé bara einn
Þetta stendur nú í neðstu línunni á öllum BenQ skjánum hjá Tölvutek:
• 100% Pixla ábyrgð í Tölvutek
Og mér finnst að þetta ætti að vera hjá öllum
Re: BenQ skjár
Sent: Mán 10. Sep 2012 22:17
af Klemmi
Steini B skrifaði:Þetta stendur nú í neðstu línunni á öllum BenQ skjánum hjá Tölvutek:
• 100% Pixla ábyrgð í Tölvutek
Og mér finnst að þetta ætti að vera hjá öllum
Endilega kynntu þér hvað þeir meina með 100% pixla ábyrgð.... þeir eru sneaky, það verður ekki af þeim skafið!
Tölvutek skrifaði:Tölvutek er með 100% Pixlaábyrgð á nýjum LCD og LED skjám svo ef gallaður pixell reynist vera í skjá hefur viðskiptavinur 14 daga frá kaupdegi til að gera athugasemd og fá honum skipt út.
S.s. þeir eru tilbúnir til að bjóða ábyrgð á biluðum pixlum í
2 vikur, ekki 2 árin sem þeim ber skylda til.
Heimildir:
http://tolvutek.is/page/skilmalar-tolvuteks" onclick="window.open(this.href);return false;
Re: BenQ skjár
Sent: Mán 10. Sep 2012 22:25
af Steini B
Klemmi skrifaði:Steini B skrifaði:Þetta stendur nú í neðstu línunni á öllum BenQ skjánum hjá Tölvutek:
• 100% Pixla ábyrgð í Tölvutek
Og mér finnst að þetta ætti að vera hjá öllum
Endilega kynntu þér hvað þeir meina með 100% pixla ábyrgð.... þeir eru sneaky, það verður ekki af þeim skafið!
Tölvutek skrifaði:Tölvutek er með 100% Pixlaábyrgð á nýjum LCD og LED skjám svo ef gallaður pixell reynist vera í skjá hefur viðskiptavinur 14 daga frá kaupdegi til að gera athugasemd og fá honum skipt út.
S.s. þeir eru tilbúnir til að bjóða ábyrgð á biluðum pixlum í
2 vikur, ekki 2 árin sem þeim ber skylda til.
Heimildir:
http://tolvutek.is/page/skilmalar-tolvuteks" onclick="window.open(this.href);return false;
Það er nú reyndar meira en sumir bjóða uppá
En vá hvað þetta er samt asnalegt, alveg eins með auglýsingarnar ("Eitt öflugasta skjákortið í dag" um HD7770
)
Þetta er allavega síðasta búðin sem ég fer í ef mig vantar eitthvað tölvutengt
Re: BenQ skjár
Sent: Mán 10. Sep 2012 22:52
af Pandemic
Benq skjárinn fær mjög fína dóma og er með betri panel.
AMVA panel >TN panel
Re: BenQ skjár
Sent: Þri 11. Sep 2012 15:01
af wixor
Klemmi & Pandemic: Takk fyrir þetta
úúúfff.. ég er enn að hugsa málið hvað ég eigi að gera..
Finnst ykkur 27" vera of stór ef maður er að vinna og nota netið - þar að segja ekki spila neinar bíómyndir?
Ég tek það fram ég er ekki að vinna í neinum ljósmyndum. Er núna að nota 22" Samsung skjá
Re: BenQ skjár
Sent: Þri 11. Sep 2012 15:09
af Kosmor
Klemmi skrifaði:
S.s. þeir eru tilbúnir til að bjóða ábyrgð á biluðum pixlum í 2 vikur, ekki 2 árin sem þeim ber skylda til.
Eru þeir ekki bara skyldugir til að gera við hann í 2 ár? ekki skipta honum út?
Re: BenQ skjár
Sent: Þri 11. Sep 2012 17:32
af Klemmi
Kosmor skrifaði:Klemmi skrifaði:
S.s. þeir eru tilbúnir til að bjóða ábyrgð á biluðum pixlum í 2 vikur, ekki 2 árin sem þeim ber skylda til.
Eru þeir ekki bara skyldugir til að gera við hann í 2 ár? ekki skipta honum út?
Jú, enda held ég að enginn sé sáttur með að innan við 2 vikna vara, sem bili, sé ekki skipt út fyrir nýja, finnst það nú bara eðlileg krafa
En þið getið prófað að hringja í Tölvutek og segjast vera með ársgamlan skjá með einum dauðum pixli, hvort að þeir geri við hann undir ábyrgð eða ekki.
Re: BenQ skjár
Sent: Þri 11. Sep 2012 20:20
af playman
Klemmi skrifaði:
En þið getið prófað að hringja í Tölvutek og segjast vera með ársgamlan skjá með einum dauðum pixli, hvort að þeir geri við hann undir ábyrgð eða ekki.
Þú gerir ekkert við dauðan pixel, right? þarf ekki að skipta um skjáinn sjálfan, og er þá ekki ódýrara að skipta öllum skjánum bara út.
Re: BenQ skjár
Sent: Þri 11. Sep 2012 21:19
af KanDoo
playman skrifaði:Klemmi skrifaði:
En þið getið prófað að hringja í Tölvutek og segjast vera með ársgamlan skjá með einum dauðum pixli, hvort að þeir geri við hann undir ábyrgð eða ekki.
Þú gerir ekkert við dauðan pixel, right? þarf ekki að skipta um skjáinn sjálfan, og er þá ekki ódýrara að skipta öllum skjánum bara út.
Ef að skjár er skilaður með dauðum pixli innan 14 daga er honum skipt út á staðnum.
Re: BenQ skjár
Sent: Þri 11. Sep 2012 21:24
af Gunnar Andri
Ég og konan erum með 3 svona(ég er með 2 hún einn):
http://start.is/product_info.php?cPath= ... ts_id=3492 samiskjár og klemmi bendir á, sé ekki eftir því að hafa fengið mér þessa skjái.
Re: BenQ skjár
Sent: Mið 12. Sep 2012 00:01
af playman
KanDoo skrifaði:playman skrifaði:Klemmi skrifaði:
En þið getið prófað að hringja í Tölvutek og segjast vera með ársgamlan skjá með einum dauðum pixli, hvort að þeir geri við hann undir ábyrgð eða ekki.
Þú gerir ekkert við dauðan pixel, right? þarf ekki að skipta um skjáinn sjálfan, og er þá ekki ódýrara að skipta öllum skjánum bara út.
Ef að skjár er skilaður með dauðum pixli innan 14 daga er honum skipt út á staðnum.
Not what I meant, but any way.