Síða 1 af 1
Asus Zenbook
Sent: Þri 28. Ágú 2012 14:56
af machinehead
Mig vantar fartölvu fyrir vinnuna, er með stóra og góða PC vél heima sem
ég nota mestmegnis en vantar eitthvað þegar ég fer á flakk.
Ég gerði mistök að kaupa risa 17" vél sem ég hélt að væri alveg frábær, og
hún er það, bara of stór fyrir mig.
Þannig ég er að hugsa að fara í hina áttina og fá mér eitthvað lítið og nett.
Hefur einvher hér reynslua Asus Zenbook vélunum?
Var að pæla í þessari
http://www.att.is/product_info.php?cPat ... 44c6fa9da4
Hún er fislétt og pínulítil, en er einhver kraftur í henni?
Ég mun bara nota hana í basif vöfrun, Excel og fleira þess háttar, er samt oft með
mörg tabs opin í einu og er að vinna í mörgu í senn.
Allar hugmyndir vel þegnar.
-MH
Re: Asus Zenbook
Sent: Þri 28. Ágú 2012 15:04
af vesi
er með 10" asus 1000H. hún er létt sem lauf og battery-ið virðist endast endalaust. er mikið að vafra og excel. bætti við hana gig í minni og er eins og draumur, en maður verður soldið þreittur í lok dags til að byrja með, svo venst þetta gífurlega vel. mæli hiklaust með að fá 9 cellu rafhlöðu.
Re: Asus Zenbook
Sent: Þri 28. Ágú 2012 15:08
af machinehead
Já, ég sá eina 10" en fannst hún heldur til of lítil. Ef ég færi í það litla vél þá fengi ég mér Microsoft Surface í Okt.
Re: Asus Zenbook
Sent: Þri 28. Ágú 2012 15:24
af vesi
já,, hef ekki kynnt mér þær, eina sem ég út á Asus að setja þá er það að Engin virðist vera með umboðið fyrir þær á Íslandi, en skil þig með stærðina en hún venst furðu vel og lyklaborð líka.
Re: Asus Zenbook
Sent: Þri 28. Ágú 2012 15:27
af machinehead
http://www.iod.is/" onclick="window.open(this.href);return false; er með umboð fyrir Asus á Íslandi
Re: Asus Zenbook
Sent: Þri 28. Ágú 2012 15:28
af machinehead
Surface vélin heillar mig mikið, spjaldtölva með áföstu lyklaborði, gæti varla hentað minni vinnu betur.
Re: Asus Zenbook
Sent: Þri 28. Ágú 2012 15:31
af skoffin
machinehead skrifaði:...spjaldtölva með áföstu lyklaborði...
Er ekki til eitthvað orð yfir svoleiðis tæki?
Re: Asus Zenbook
Sent: Þri 28. Ágú 2012 15:33
af machinehead
skoffin skrifaði:machinehead skrifaði:...spjaldtölva með áföstu lyklaborði...
Er ekki til eitthvað orð yfir svoleiðis tæki?
Að sjálfsögðu ætlaði ég að segja smellanlegu lyklaborði
Re: Asus Zenbook
Sent: Þri 28. Ágú 2012 15:33
af skoffin
Ég veit - ég er bara að tröllast
Re: Asus Zenbook
Sent: Þri 28. Ágú 2012 15:37
af machinehead
I figured that much :Þ
Re: Asus Zenbook
Sent: Þri 28. Ágú 2012 15:59
af vesi
Þú ert að segja mér fréttir.. er þetta langt síðan það gerðist eða..
Re: Asus Zenbook
Sent: Þri 28. Ágú 2012 16:02
af machinehead
vesi skrifaði:
Þú ert að segja mér fréttir.. er þetta langt síðan það gerðist eða..
No idea, ég var bara að gúggla þetta.