Síða 1 af 2
Breaking Bad
Sent: Mán 27. Ágú 2012 21:46
af axyne
Hvernig finnst ykkur 5 sería vera að þróast ?
Finnst Walder orðinn svo vondur charecter, var ekki að búast við að hann myndi skjóta Mike. Og þetta tension á milli hans og konunnar hans er orðinn þreytt.
Re: Breaking Bad
Sent: Mán 27. Ágú 2012 22:11
af AciD_RaiN
Allt í rétta átt
Walter er náttúrulega bara alvöru meth framleiðandi og þarf að gera ýmislegt til að ná lengra í bransanum
en er 5. sería ekki að klárast??
Re: Breaking Bad
Sent: Mán 27. Ágú 2012 22:24
af bAZik
AciD_RaiN skrifaði:Allt í rétta átt
Walter er náttúrulega bara alvöru meth framleiðandi og þarf að gera ýmislegt til að ná lengra í bransanum
en er 5. sería ekki að klárast??
Einn þáttur eftir.
Re: Breaking Bad
Sent: Mán 27. Ágú 2012 22:24
af svanur08
Sæll hvað 7 þátturinn var góður!
Re: Breaking Bad
Sent: Mán 27. Ágú 2012 22:25
af AciD_RaiN
svanur08 skrifaði:Sæll hvað 7 þátturinn var góður!
Hef ekki haft tíma til að horfa á hann
Re: Breaking Bad
Sent: Mán 27. Ágú 2012 22:31
af svanur08
Þetta eru vinsælustu þættir í sjónvarpinu í dag í usa ---->
http://www.tv.com/shows/" onclick="window.open(this.href);return false;
Re: Breaking Bad
Sent: Mán 27. Ágú 2012 22:37
af J1nX
svanur08 skrifaði:Þetta eru vinsælustu þættir í sjónvarpinu í dag í usa ---->
http://www.tv.com/shows/" onclick="window.open(this.href);return false;
hvernig í ósköpunum getur Merlin verið í öðru sæti?
Re: Breaking Bad
Sent: Mán 27. Ágú 2012 22:40
af Klemmi
Ég er svo ótrúlega reiður yfir því að Walter hafi drepið Mike að ég á eiginlega ekki orð. Af hverju í andskotanum að halda þessari helvítis eiginkonu og ógeðslega þreytandi syni þeirra í þáttunum en losa sig svo við alla svölu gaurana s.s. Gustav og Mike
Re: Breaking Bad
Sent: Þri 28. Ágú 2012 00:45
af AciD_RaiN
your'e Heisenberg" "You're god damn right I am" brrr ég fékk alveg hroll
Re: Breaking Bad
Sent: Þri 28. Ágú 2012 09:40
af starionturbo
Geðveikir þættir...
Nei í alvöru..?? Mike var svo ótrúlega góður character, ég er ekki búinn að horfa á nýjasta þáttinn en... shit that sucks.
Ég fæ bara kjánahroll hvað kellingin hans Walters er heimsk og enn meiri kjánahroll hvað hann er alltaf að reyna halda í hana...
Var líka ánægður með hvað Walter Jr. er allur að koma til eftir þátt 05x05
Re: Breaking Bad
Sent: Þri 28. Ágú 2012 10:52
af dori
Mér finnst þessir þættir hafa farið í rosalega ranga átt frá því hvernig fyrsta serían lofaði góðu glápefni. Núna spyr ég mig alltaf eftir að ég horfi á þættina af hverju ég sé ekki hættur því...
Klemmi skrifaði:Ég er svo ótrúlega reiður yfir því að Walter hafi drepið Mike að ég á eiginlega ekki orð. Af hverju í andskotanum að halda þessari helvítis eiginkonu og ógeðslega þreytandi syni þeirra í þáttunum en losa sig svo við alla svölu gaurana s.s. Gustav og Mike
Nákvæmlega, hann ætti að vera löngu búinn að losa sig við þessa druslu, hann er lélegur karakter, hún er lélegur karakter og Walt Jr. er hræðilegur karakter (sem virðist bara vera þarna til að pirra okkur). Mátt samt ekki gleyma Soul, hann er lang besti karakterinn.
AciD_RaiN skrifaði:your'e Heisenberg" "You're god damn right I am" brrr ég fékk alveg hroll
Kjánahroll væntanlega?
starionturbo skrifaði:Var líka ánægður með hvað Walter Jr. er allur að koma til eftir þátt 05x05
Að koma til as in "hættur að taka þátt"?
Re: Breaking Bad
Sent: Þri 28. Ágú 2012 11:00
af DaRKSTaR
1 þáttur eftir af þessu.. það er endirinn.. þetta er síðasta season.
Re: Breaking Bad
Sent: Þri 28. Ágú 2012 11:25
af bAZik
DaRKSTaR skrifaði:1 þáttur eftir af þessu.. það er endirinn.. þetta er síðasta season.
Nope, season 5 var splittað í
tvær seríur tvo parta.
Re: Breaking Bad
Sent: Þri 28. Ágú 2012 11:57
af AciD_RaiN
dori skrifaði:Kjánahroll væntanlega?
Reyndar var þetta meira svona unaðsgæsahúð. Þetta er alveg nokkuð vel af sér vikið af maður er kominn þetta hátt í þessum heimi en kannski ekki á Íslandi en eins og í Belgíu þegar einhver ókunnugur businessmaður er farinn að vita nickname-ið þitt þá ertu orðinn soldið stór og sumir eru stoltir af því
Re: Breaking Bad
Sent: Þri 28. Ágú 2012 12:10
af Gilmore
Mér finnst þetta, einir bestu þættir sem ég hef séð. Svona pínu Dexter fílingur í þessu, alltaf einhver feluleikur og hlutirnir eru alltaf við það að komast upp og maður er alltafá tánum með það.
Kannski ágætt að þetta sé final season, áður en þetta fer að verða útþynnt eins og margir þættir verða.
Re: Breaking Bad
Sent: Mið 29. Ágú 2012 21:38
af intenz
Geðveikir þættir.
Mér finnst synd að þeir hafi losað sig við Mike, hann var skemmtilegur karakter.
Einnig finnst mér hundleiðinlegt hvað þeir ríghalda í konuna og son hans Walters, virkilega leiðinlegar sögupersónur.
Annars bíð ég spenntur eftir framhaldi af því sem átti að gerast ári seinna, hann var á matstaðnum í 1. þættinum í 5. seríu og sótti eitthvað í skottið (þá var hann með hár)
Verður líka gaman að sjá hvernig þetta þróast með þennan nýja vonda gaur.
Re: Breaking Bad
Sent: Mið 29. Ágú 2012 21:47
af Hrotti
ég fíla þessa þætti vel en finnst þeir samt ekki standast samanburð við shield.
Re: Breaking Bad
Sent: Mán 03. Sep 2012 16:29
af AciD_RaiN
HOLY SHIT... maður var bara með standpínu yfir þessum þætti
Ætli Hank sé ekki dauður núna??]
Re: Breaking Bad
Sent: Mán 03. Sep 2012 18:57
af Nxxx
Engann veginn að nenna að bíða í ár eftir part 2
Re: Breaking Bad
Sent: Mán 03. Sep 2012 22:31
af svanur08
Já bíða í ár er bömmer.
Re: Breaking Bad
Sent: Þri 04. Sep 2012 11:35
af machiavelli7
I am the danger
http://www.youtube.com/watch?v=31Voz1H40zI" onclick="window.open(this.href);return false;
hérna er eitt besta atriðið úr þáttunum
Re: Breaking Bad
Sent: Þri 04. Sep 2012 12:34
af AciD_RaiN
ég verð að segja þetta --->
http://www.youtube.com/watch?v=E7PsNmP9VQ8" onclick="window.open(this.href);return false;
og þetta --->
http://www.youtube.com/watch?v=3YVis0HwZdM" onclick="window.open(this.href);return false;
En þetta var líka algjör snilld --->
http://www.youtube.com/watch?v=Pyam5ajZE-0" onclick="window.open(this.href);return false;
Síðasta sem ég myndi gera væri einmitt að laga bindið mitt hahahaha
Re: Breaking Bad
Sent: Þri 04. Sep 2012 13:21
af machiavelli7
1 linkurinn of stuttur vantar nokkrar snilldar línur frá honum walter ;P
enn já klárlega með bestu atriðunum
Re: Breaking Bad
Sent: Þri 04. Sep 2012 15:05
af DJOli
Jæja þá er þetta búið í bili, og ég stórefast um að ég sé sá eini sem ekki getur fokking BEÐIÐ eftir næsta þætti.
Hvar getur maður fengið hibernation booth þegar maður þarf á svoleiðis að halda?.
Annars mátti Mike alveg deyja, hann var með of marga lausa enda, m.a. peninginn sem hann setti í öryggishólf fyrir afastelpuna sína.
Auk þess var hann einhvernveginn ekki "fit" fyrir þetta.
Hank hlýtur að fara að fá fyrir hjartað, frá þættinum þar sem hann fór af lögreglustöðinni í lyftunni, þar sem hægðist á tímanum og alles (lýsir sér nokkurnveginn eins og einhver sem er með bloodclot (blóðköggul?) í kerfinu).
Kerlingunni sinni hefur Walter haldið (hingað til) svo hægt sé að þrífa óhreinu peningana sem hann fær, fokking döh.
Ef hann vildi virkilega losa sig við hana þá væri hann búinn að því, en hver sjálfvirðandi heimilisfaðir færi aldrei að beila á konu sinni og krökkum bara til þess að framleiða amfetamín.
Re: Breaking Bad
Sent: Mið 05. Sep 2012 12:33
af Demon
Er sammála eitthverjum hérna að þetta stenst ekki samanburð við Shield.
Annars er konan hanns Walter nauðsynleg í þessum þáttum og strákurinn líka bara til þess að gefa karakter Walter smá dýpt.
Ef hann byggi bara einn og væri að framleiða meth þá væri ekki þetta conflict sem við sjáum milli þess að vera heimilisföður og druglord.
Það er líka bara svo magnað að fylgjast með því hvað hann lítur stórt á sig núna svona miðað við hvernig hann var í fyrstu seríu. Þar var hann lítið annað en þægur lítill húsfaðir!