Síða 1 af 1
Logitech Z-5500
Sent: Mið 22. Ágú 2012 00:17
af HR
Sælir vaktarar,
Ég var að hugsa um að skipta út Z-5500 kerfinu mínu fyrir studio monitora ef ég fæ gott verð fyrir það. Fyrir þá sem ekki þekkja til er þetta eitt allra besta 5.1 tölvu hljóðkerfi sem verið hefur í framleiðslu. Það er rúm 500 wött og skartar THX vottuðum monitorum og sub. Kerfið er alveg æðislegt í bíómyndaáhorf ásamt því að fara vel með tónlist. Hægt er að tengja allan andskotann við þetta en fyrir utan að taka við 5.1 úr tölvu býður kerfið upp á ljósleiðara, RCA og náttúrulega AUX.
Specs:
Output Power: 505W RMS
Setup: 4xSatellite 62W, 1xCenter 69W, 1xSubwoofer 188W 10"
Tíðnissvið: 33 - 20000 Hz
Annað: Fjarstýring fylgir, hægt að festa upp á vegg.
Verð: 65.000 kr.
Skoða öll raunhæf tilboð. Engin skipti.
Vinsamlegast sendið tilboð í Einkapósti.
Kveðja,
Hörður
Re: Logitech Z-5500
Sent: Mið 22. Ágú 2012 00:21
af djvietice
AntiTrust var að selja á 35þ
Re: Logitech Z-5500
Sent: Mið 22. Ágú 2012 00:28
af HR
djvietice skrifaði:AntiTrust var að selja á 35þ
Rosalega er það lítill peningur fyrir þetta kerfi. Var eitthvað bilað í því? :S
Re: Logitech Z-5500
Sent: Mið 22. Ágú 2012 00:30
af djvietice
nei
Re: Logitech Z-5500
Sent: Mið 22. Ágú 2012 00:32
af Magneto
Ég held að þetta sé svona eiginlega nýrri týpan, eða sú sem er tekin við og hún er á 80þ.
http://buy.is/product.php?id_product=9209095
Svo ef maður tekur 30% af því þá er það 56þ.
Re: Logitech Z-5500
Sent: Mið 22. Ágú 2012 00:37
af vesley
Nýrri týpan fær ekki jafn góða dóma.
Sama með Z-2300.
Re: Logitech Z-5500
Sent: Mið 22. Ágú 2012 00:38
af djvietice
vesley skrifaði:
Nýrri týpan fær ekki jafn góða dóma.
Sama með Z-2300.
z-2300 bara 2.1
Re: Logitech Z-5500
Sent: Mið 22. Ágú 2012 00:40
af lollipop0
Hvað er hún gömul?
Hún kom fyrst út 2006 held ég
Re: Logitech Z-5500
Sent: Mið 22. Ágú 2012 00:44
af vesley
djvietice skrifaði:vesley skrifaði:
Nýrri týpan fær ekki jafn góða dóma.
Sama með Z-2300.
z-2300 bara 2.1
Þú segir fréttir.
Z623 átti að koma í stað Z-2300.
Re: Logitech Z-5500
Sent: Mið 22. Ágú 2012 00:49
af HR
Já hef einmitt heyrt það að nýja týpan sé ekki jafn skemmtilegur performer. Ég tók samt sem áður með í reikninginn að z906 væri að kosta út úr búð 90k. Annars eru þessi kerfi út að fara á 380 USD notuð á ebay, ég prufaði að umreikna það í íslenskar krónur miðað við gengi dagsins og 10k frakt. 380 * 120 + 10.000 * 1,35 + VSK = ca. 90k. Held því að 65 kall fyrir þetta módel sé hóflega stillt upp þó ég skoði öll tilboð
Annars er kerfið um 4 ára gamalt. Hafa skal þó í huga að það hefur alltaf verið skrúfað upp á vegg svo það sér ekki á því. Einnig bý ég í fjölbýli svo það er sjaldan sem maður fær tækifæri til þess að keyra það almennilega, sem er einmitt ástaðan fyrir því að ég vil frekar fara í studio monitora, hef ekkert að gera við öll þessi wött
Ég fékk félaga minn sem vinnur sem tæknimaður hjá Exton til að prófa kerfið og gaf hann því topp einkunn
Re: Logitech Z-5500
Sent: Mið 22. Ágú 2012 08:31
af ZoRzEr
Er sjálfur með svona kerfi frami í stofu sem Xbox / PS3 kerfi. Hef átt það í rúm 2 ár. Í önnur 3 ár á undan því átti ég Z-680 frá Logitech, sem er pabbi Z-5500.
Í stuttu máli, þetta kerfi er besta tölvuhátalarakerfi sem fæst. Synd hvað Logitech á erfitt með að gera jafn vandaða græjur og Z-5500 / Z-2300 / Z-680.
Sá sem kaupir verður ekki svekktur.
Re: Logitech Z-5500
Sent: Mið 22. Ágú 2012 08:53
af DJOli
myndi mjög svo skoða það að kaupa þetta kerfi ef ég væri ekki með kerfi með sub.
Er reyndar með 3x250w subs
gangi þér annars vel með söluna.
Re: Logitech Z-5500
Sent: Þri 28. Ágú 2012 00:56
af HR
Upp fer hann!
P.s. Þó nýja útgáfan af kerfinu sé fáanleg á íslandi fyrir 90k (Z906) þá hefur sú gerðin ekki fengið eins góða dóma og sú eldri og kemur t.d. ekki með festingum á veggi. Þær fylgja með Z-5500
Re: Logitech Z-5500
Sent: Þri 28. Ágú 2012 09:29
af worghal
úff, er með hann beinstífann!
ef ég væri ekki að kaupa mér nýjann kassa þá tæki ég þetta.
viltu kanski slétt skipti á
http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f=67&t=48117" onclick="window.open(this.href);return false;
Re: Logitech Z-5500
Sent: Þri 28. Ágú 2012 11:19
af HR
Haha því miður, mig vantar reyndar hjól en bara ekki þessa gerð, bara eitthvað þæginlegt í vinnuna.
En þér er velkomið að vera í bandi við mig ef þér tekst að selja hjólið
Re: Logitech Z-5500
Sent: Mið 12. Sep 2012 22:06
af Kalli9900
Vissulga er þetta fræabært sett enda hef ég átt 2 stk en það er ófáanlegir allir varahlutir í þetta og ég er á ctrl modul no 2(logitech framleiðslu vandamál)ég er í logitech klúbbnum og hef verið í sambandi við þessa gaura í belgíu og það er ekki séns að fá neitt í þetta sem bilar.
Eftir að hafa rekið mig á þennan vegg og hef fjárfest í 2 stk svona tækjum þá væri ekki óvitlaust að hafa vara-sett til að geta púslað saman í framtíðinni en þetta er (að mínu mati ansi mikið yfir markaðsvirði) en ef þú ert til í að selja settið á talsvert viðráðanlegra verði þá endilega sendu pm.
Góðar stundir.