Síða 1 af 1
Guild wars 2 ?
Sent: Fim 16. Ágú 2012 00:23
af jomminn
Hvað segir fólk um leikinn Guild Wars 2 ? Einhver spenna í fólki með hann?
Nú spilaði ég ekki fyrri leikinn en ég er búinn að skoða þennann mikið og það er talað um að Guild Wars 2 sé rosalegur og ekkert í liking við fyrri leikinn
Hérna er got video sem sýnir aðeins hvað ArenaNet eru að gera með þennann leik
http://www.youtube.com/watch?v=35BPhT-KI1E
Svo er PvP hluti leiksins ROSALEGUR ...getið lesið aðeins um það hér
https://www.guildwars2.com/en/the-game/pvp/ og svo video um PvP hlutann hér.
Fyrra videoið er um PvP hluta leiksins og seinna videoið er PvP gamplay
http://www.youtube.com/watch?v=mrzsUkuX ... ure=relmfu
http://www.youtube.com/watch?v=yd8epTJen_U&feature=plcp
Ég er allavegana mikið spenntur fyrir þessum og er búinn að fá mér eintak

væri gaman að sjá hvort það sé menning hérna fyrir þessu

Re: Guild wars 2 ?
Sent: Fim 16. Ágú 2012 08:06
af Benzmann
svona lala bara held ég, spilaði GW 1 áður fyrr mismikið, mun eflaust prófa GW2 þegar hann kemur út og ef maður hefur tíma
Re: Guild wars 2 ?
Sent: Fim 16. Ágú 2012 08:22
af SDM
Já, margir hafa beðið eftir þessum leik síðan hann var announced þ.e. 3-4 árum síðan. Bara 12 dagar í release og get bara ekki beðið eftir headstartinu

Re: Guild wars 2 ?
Sent: Fös 17. Ágú 2012 01:52
af jomminn
9 Dagar í Headstart Release fyrir þá sem hafa fengið sér Pre-order af leiknum

annars fer hann ekki í gang fyrr en 28 ágúst

Re: Guild wars 2 ?
Sent: Fös 17. Ágú 2012 02:00
af SDM
jomminn skrifaði:9 Dagar í Headstart Release fyrir þá sem hafa fengið sér Pre-order af leiknum

annars fer hann ekki í gang fyrr en 28 ágúst

já úps, lagaði þetta hjá mér
Re: Guild wars 2 ?
Sent: Fös 17. Ágú 2012 02:05
af jomminn
það er kanski hægt að búa til smá menningu fyrir þennann leik hér uppá Server og NameTag þegar leikurinn hefst fyrir þá sem hafa áhuga

Re: Guild wars 2 ?
Sent: Fös 17. Ágú 2012 04:40
af Varasalvi
Hlakkar til. Spilaði númer 1 en fannst hann ekkert sérstakur, en mér lýst mikið betur á þennan. Tók þátt í tvemur beta events, fyrra var mjög slæmt (aðalega útaf performance vandamálum), en seinna var mjög gaman.
Held að hann fái góða dóma, hef bara áhyggjur af endinguni, hef lítið heyrt um "end game" og það virðist ekki vera neitt rosalega mikið af því, þó eitthvað.
Re: Guild wars 2 ?
Sent: Fös 17. Ágú 2012 05:25
af SDM
Varasalvi skrifaði:
Held að hann fái góða dóma, hef bara áhyggjur af endinguni, hef lítið heyrt um "end game" og það virðist ekki vera neitt rosalega mikið af því, þó eitthvað.
Scale systemið er mjög gott. Þegar þú kaupir leikinn ertu kominn í endgame.
http://www.guildwarsinsider.com/krewe-g ... sy-adults/
Re: Guild wars 2 ?
Sent: Fös 17. Ágú 2012 06:30
af jomminn
SDM skrifaði:Varasalvi skrifaði:
Held að hann fái góða dóma, hef bara áhyggjur af endinguni, hef lítið heyrt um "end game" og það virðist ekki vera neitt rosalega mikið af því, þó eitthvað.
Scale systemið er mjög gott. Þegar þú kaupir leikinn ertu kominn í endgame.
http://www.guildwarsinsider.com/krewe-g ... sy-adults/
Vissi ekki af þessari síðu ...nú hlakkar mig bara ennþá meira til hehe

þetta lýtur allavegana allt rosalega vel út með þennann leik ...grafík, combat system, storyline, dynamic events system ...og svo hvað þetta verður víst massaður heimur ...borgirnar eru að mér skillst svakalegar !!!
Re: Guild wars 2 ?
Sent: Fös 17. Ágú 2012 13:50
af Fuse
Ég var impressed með þetta event sem var sýnt á Gamescon 2011
http://www.youtube.com/watch?v=VMTs74eWBJ4
byrjar um 30 mínútur inn í vídeóið, event þar sem stór dreki ræðst á alla, og til að sigra þurfa menn að gera eitthvað annað og meira en bara setja Tank fyrir framan drekann.. dps fyrir aftan.. og healers á réttann stað og burn it down. Í GW2 verður þetta töluvert öðruvísi, allavega auglýsa þeir leikinn þannig, ahem.
Er búinn að kaupa pre-purchase edition og hef prófað aðeins af betu weekends, hlakkar til að prófa þegar leikurinn kemur út.
Og loksins loksins verða bæði buy og sell orders á markaðnum, svipað og Eve Online, ekki bara þetta typical ebay style auction house.