Síða 1 af 4
Hamborgarasmiðjan
Sent: Fös 27. Júl 2012 19:37
af capteinninn
Hefur einhver borðað þarna?
Sem áhugamaður um hamborgara væri ég til í að vita hvað fólki finnst um þennan stað svo ég viti hvort ég eigi að prófa þetta.
Þetta er staðurinn hliðiná BK
Annað alveg ótengt sem ég er að velta fyrir mér.
Hvar getur maður eiginlega keypt inneign hjá Nova með pening í miðbæ Reykjavíkur. 10-11 selja víst ekki lengur inneignir hjá þeim
Re: Hamborgarasmiðjan
Sent: Fös 27. Júl 2012 19:44
af hagur
Goooood stuff. Bernaise borgarinn er awesome.
Virkilega afslöppuð og heimilisleg þjónusta líka.
Do recommend indeed.
Re: Hamborgarasmiðjan
Sent: Fös 27. Júl 2012 20:10
af Frost
Mæli með þessum stað.
Eins og hagur segir þá er Bernaise borgarinn alveg svakalega góður þarna. Rosalega flottur staður líka
Re: Hamborgarasmiðjan
Sent: Fös 27. Júl 2012 20:11
af capteinninn
hagur skrifaði:Goooood stuff. Bernaise borgarinn er awesome.
Virkilega afslöppuð og heimilisleg þjónusta líka.
Do recommend indeed.
Okei, ég sá að þeir voru með bbq burger á 1300 kall eða þar um bil með frönskum, gosi og kokteil. Það er ekkert vont sko
Re: Hamborgarasmiðjan
Sent: Fös 27. Júl 2012 20:17
af hfwf
Hef ekki farið þangað sjálfur en geri í náinni framtíð. En mitt mottó er alltaf það.. það sem þér finnst gott finnst öðrum vont... prufaðu sjálfur.. :drekka
Re: Hamborgarasmiðjan
Sent: Fös 27. Júl 2012 20:18
af capteinninn
hfwf skrifaði:Hef ekki farið þangað sjálfur en geri í náinni framtíð. En mitt mottó er alltaf það.. það sem þér finnst gott finnst öðrum vont... prufaðu sjálfur.. :drekka
Haha já ég hafði heyrt að roadhouse væri drasl en ég fékk bara alveg prima burger þar um daginn.
Á eftir að fara í burgerinn á hádegisseðlinum á Grillmarkaðnum en hann er víst góður, fékk "best of" verðlaun frá Grapevine um daginn.
Re: Hamborgarasmiðjan
Sent: Fös 27. Júl 2012 20:19
af hfwf
hannesstef skrifaði:hfwf skrifaði:Hef ekki farið þangað sjálfur en geri í náinni framtíð. En mitt mottó er alltaf það.. það sem þér finnst gott finnst öðrum vont... prufaðu sjálfur.. :drekka
Haha já ég hafði heyrt að roadhouse væri drasl en ég fékk bara alveg prima burger þar um daginn.
Á eftir að fara í burgerinn á hádegisseðlinum á Grillmarkaðnum en hann er víst góður, fékk "best of" verðlaun frá Grapevine um daginn.
Nákvæmlega það sem ég á við
Finnst t.d roadhouse bara of gott það sem ég hef smakkað þar(1 burger). :popp
Re: Hamborgarasmiðjan
Sent: Fös 27. Júl 2012 20:43
af GuðjónR
Hef ekki prófað þennan, þarf að prófa.
Fór á Stylinn í síðustu viku, hef ekki farið lengi og bara namm namm...
Fékk mér 200gr. burger...franskarnar þarna eru bara sjúklegar...langar aftur.
Re: Hamborgarasmiðjan
Sent: Fös 27. Júl 2012 21:18
af capteinninn
GuðjónR skrifaði:Hef ekki prófað þennan, þarf að prófa.
Fór á Stylinn í síðustu viku, hef ekki farið lengi og bara namm namm...
Fékk mér 200gr. burger...franskarnar þarna eru bara sjúklegar...langar aftur.
Mér skilst að Elvis sé eitthvað sem maður verði að prófa, annars finnst mér svo leiðinlegt við Style-inn að þeir eru með þennan gourmet Heavy Special en ef maður fær sér eitthvað annað en hann þá verður maður ekki almennilega saddur. Og ég er ekkert heljarmenni
Re: Hamborgarasmiðjan
Sent: Fös 27. Júl 2012 21:20
af GuðjónR
hannesstef skrifaði:GuðjónR skrifaði:Hef ekki prófað þennan, þarf að prófa.
Fór á Stylinn í síðustu viku, hef ekki farið lengi og bara namm namm...
Fékk mér 200gr. burger...franskarnar þarna eru bara sjúklegar...langar aftur.
Mér skilst að Elvis sé eitthvað sem maður verði að prófa, annars finnst mér svo leiðinlegt við Style-inn að þeir eru með þennan gourmet Heavy Special en ef maður fær sér eitthvað annað en hann þá verður maður ekki almennilega saddur. Og ég er ekkert heljarmenni
Já, ég man ekki hvað minn hét en hann kostaði um 1700kr. að mig minnir ... og hann ku vera 200gr. konan fékk sér 1500kr borgara en hann var bara með 90gr. kjöti ...svipað og sjoppurnar eru með ... ég kalla það álegg!
Re: Hamborgarasmiðjan
Sent: Fös 27. Júl 2012 21:21
af Yawnk
Fór þarna um daginn og fékk mér Smiðjuborgara tilboð ( s.s franskar og kók með ) á 1300 kall held ég, mér fannst borgarinn vera of 'sloppy' alltof mikið kryddaður og sósan svo subbuleg einhvað, en flottur staður og þjónustan var fín, franskarnar eru æði samt
Re: Hamborgarasmiðjan
Sent: Fös 27. Júl 2012 21:28
af GuðjónR
Yawnk skrifaði:Fór þarna um daginn og fékk mér Smiðjuborgara tilboð ( s.s franskar og kók með ) á 1300 kall held ég, mér fannst borgarinn vera of 'sloppy' alltof mikið kryddaður og sósan svo subbuleg einhvað, en flottur staður og þjónustan var fín, franskarnar eru æði samt
Of mikið krydd og sósa? er það hægt?
Einu skiptin sem mér finnst borgarar lélegir er einmitt þegar það vantar krydd eða sósu
Re: Hamborgarasmiðjan
Sent: Fös 27. Júl 2012 21:34
af mundivalur
GuðjónR skrifaði:Yawnk skrifaði:Fór þarna um daginn og fékk mér Smiðjuborgara tilboð ( s.s franskar og kók með ) á 1300 kall held ég, mér fannst borgarinn vera of 'sloppy' alltof mikið kryddaður og sósan svo subbuleg einhvað, en flottur staður og þjónustan var fín, franskarnar eru æði samt
Of mikið krydd og sósa? er það hægt?
Einu skiptin sem mér finnst borgarar lélegir er einmitt þegar það vantar krydd eða sósu
Sammála bragðgóða sósu og eitthvað spes krydd sem bragð er af
Re: Hamborgarasmiðjan
Sent: Fös 27. Júl 2012 21:39
af Dagur
Fer þangað reglulega. Er alltaf mjög ánægður
Re: Hamborgarasmiðjan
Sent: Fös 27. Júl 2012 22:08
af J1nX
hrikalega góðir börgerar þarna og bernaise sósan er himnesk
Re: Hamborgarasmiðjan
Sent: Fös 27. Júl 2012 22:54
af Yawnk
GuðjónR skrifaði:Yawnk skrifaði:Fór þarna um daginn og fékk mér Smiðjuborgara tilboð ( s.s franskar og kók með ) á 1300 kall held ég, mér fannst borgarinn vera of 'sloppy' alltof mikið kryddaður og sósan svo subbuleg einhvað, en flottur staður og þjónustan var fín, franskarnar eru æði samt
Of mikið krydd og sósa? er það hægt?
Einu skiptin sem mér finnst borgarar lélegir er einmitt þegar það vantar krydd eða sósu
Haha já það er vel hægt
Ég meina þá þegar brauðið er orðið blautt í gegn af sósu og þú getur varla tekið um borgarann án þess að það leki á þig helmingurinn af sósunni, það finnst mér ekki gott, kannski var mitt tilfelli sérstakt, því þetta leit út eins og flugvallarborgari.
Hinsvegar þá er Stællinn og Hamborgarafabrikkan alveg ææði.
Re: Hamborgarasmiðjan
Sent: Fös 27. Júl 2012 22:57
af Moldvarpan
Veit ekki með hamborgana,, en varðandi nova, þá geturu hringt í 777-1919 og fyllt á símann/pung með debet/kredit korti.
Re: Hamborgarasmiðjan
Sent: Fös 27. Júl 2012 23:08
af bAZik
GuðjónR skrifaði:hannesstef skrifaði:GuðjónR skrifaði:Hef ekki prófað þennan, þarf að prófa.
Fór á Stylinn í síðustu viku, hef ekki farið lengi og bara namm namm...
Fékk mér 200gr. burger...franskarnar þarna eru bara sjúklegar...langar aftur.
Mér skilst að Elvis sé eitthvað sem maður verði að prófa, annars finnst mér svo leiðinlegt við Style-inn að þeir eru með þennan gourmet Heavy Special en ef maður fær sér eitthvað annað en hann þá verður maður ekki almennilega saddur. Og ég er ekkert heljarmenni
Já, ég man ekki hvað minn hét en hann kostaði um 1700kr. að mig minnir ... og hann ku vera 200gr. konan fékk sér 1500kr borgara en hann var bara með 90gr. kjöti ...svipað og sjoppurnar eru með ... ég kalla það álegg!
Farðu á 73 á Laugarvegi og fáðu þér 300gramma börgerinn, allt fáránlega gott þarna.
Re: Hamborgarasmiðjan
Sent: Fös 27. Júl 2012 23:12
af Domnix
bAZik skrifaði:Farðu á 73 á Laugarvegi og fáðu þér 300gramma börgerinn, allt fáránlega gott þarna.
já mæli líka með 73. Lítill og kósí stemning og góðir borgarar
Re: Hamborgarasmiðjan
Sent: Fös 27. Júl 2012 23:55
af pattzi
Getur Keypt inneign í nova í N1,Olís
Re: Hamborgarasmiðjan
Sent: Lau 28. Júl 2012 00:26
af Pandemic
Þessi staður er líka á smiðjuveginum. En ég er reglulegur gestur þarna og mæli með þessu.
Re: Hamborgarasmiðjan
Sent: Lau 28. Júl 2012 08:28
af audiophile
Elska þessa borgara. Smiðjuborgarinn er ágætlega kryddaður en það gerir hann bara extra bragðgóðan og juicy
Þjónustan til fyrirmyndar líka.
Re: Hamborgarasmiðjan
Sent: Lau 28. Júl 2012 10:33
af natti
Domnix skrifaði:bAZik skrifaði:Farðu á 73 á Laugarvegi og fáðu þér 300gramma börgerinn, allt fáránlega gott þarna.
já mæli líka með 73. Lítill og kósí stemning og góðir borgarar
Ég er sammála öðrum hérna um að Hamborgarasmiðjan er ótrúlega góð.
"73" á Laugavegi er samt á lista yfir staði sem ég fer ekki aftur á og get ekki á nokkurn hátt mælt með.
300gr borgarinn þeirra var bara hálf-elduð hakk-klessa, í brauði. Svona svipað eins og ef ég myndi taka gamalt hakk úr bónus, skilja það eftir á borðinu þar til það nær stofuhita, og borða það svo með skeið. Það var *ekkert* annað bragð af þessum "borgara".
Skemmst frá því að segja að ég kláraði ekki matinn því ég hálfpartinn kúgaðist.
Var þarna með konunni, og hún fékk sér "steikarsamloku". Maður er kannski of góðu vanur frá öðrum veitingastöðum, en stærðin á steikarsamlokunni var svipuð og ef þú tekur venjulega brauðsneð, og skerð hana svo í tvennt.
Venjulega eru steikarsamlokur nú stærri, en ekki
minni en samlokubrauð.
Re: Hamborgarasmiðjan
Sent: Lau 28. Júl 2012 10:39
af beatmaster
Ég fer aldrei aftur á 73 einmitt af því að við fórum þarna 3, og 2 pöntuðu sér steikarsamloku fyrir tæpar 2000 kr. og fengu þetta djók, þetta er án gríns eins og 2 snittubrauðsneiðar á stærð
Ég fékk mér þennann epic 300 gr. borgara og mér fannst ekkert epic við hann, mér fannst hann samt ekki vondur en góður var hann ekki, ég hef líka fengið mér Elvis á Style-num og það er allt annað og miklu betra
Ferðin á 73 olli mér miklum vonbrigðum
Re: Hamborgarasmiðjan
Sent: Lau 28. Júl 2012 11:09
af Oak
Pandemic skrifaði:Þessi staður er líka á smiðjuveginum. En ég er reglulegur gestur þarna og mæli með þessu.
Hann er einungis á Grensásveginum núna.
Salatið sem er on-the-side er magnað hjá þeim og bara mjög fínir borgara.