Síða 1 af 1
Of Monsters and Men
Sent: Sun 08. Júl 2012 23:24
af Zorglub
Voru einhverjir tölvunördar á 18.000 manna tónleikum í gærkveldi?
Smellti mér og tók myndavélina með, alveg ágætis skemmtun.
Nokkrir rammar á
Fésinu ef að menn hafa áhuga.
Re: Of Monsters and Men
Sent: Sun 08. Júl 2012 23:25
af GuðjónR
Skelltu nokkrum myndum hingað
Ég var ekki þarna því miður, topphljómsveit þar á ferð.
Re: Of Monsters and Men
Sent: Sun 08. Júl 2012 23:32
af Zorglub
Re: Of Monsters and Men
Sent: Sun 08. Júl 2012 23:41
af GuðjónR
Já sæll!
Flottar myndir hjá þér!!
Þú hlýtur að vera með úber myndavélagræjur.
Ná svona hrikalega flottum myndum.
Re: Of Monsters and Men
Sent: Sun 08. Júl 2012 23:47
af Zorglub
GuðjónR skrifaði:Já sæll!
Flottar myndir hjá þér!!
Þú hlýtur að vera með úber myndavélagræjur.
Ná svona hrikalega flottum myndum.
Takk fyrir það
Ekkert stjarnfræðilegar græjur svosem, aðalmálið að kunna að nota þær

Re: Of Monsters and Men
Sent: Sun 08. Júl 2012 23:52
af Daz
Mig langaði reyndar að fara, en ég fattaði það ca kortéri áður en þau áttu að byrja að spila.

Re: Of Monsters and Men
Sent: Mán 09. Júl 2012 01:16
af Orri
Flottar myndir !
En þú verður að gera eitthvað í þessari copyright undirskrift þinni.. Allaveganna finnst mér hún alls ekki vera að gera sig

Re: Of Monsters and Men
Sent: Mán 09. Júl 2012 01:32
af Manager1
GuðjónR skrifaði:Já sæll!
Flottar myndir hjá þér!!
Þú hlýtur að vera með úber myndavélagræjur.
Ná svona hrikalega flottum myndum.
Ertu að gefa í skyn að hann sé ekkert góður ljósmyndari, það séu bara græjurnar sem geri góðar myndir?
"já sæll hvað þetta er góður matur, þú hlýtur að eiga geðveikt góða eldavél" - þetta er sambærilegt við það sem þú sagðir um myndirnar
Það skal tekið fram að þetta er allt sagt í góðu gríni.
Re: Of Monsters and Men
Sent: Mán 09. Júl 2012 10:00
af Plushy
Eina pirrandi við þessa tónleika var að það var nánast ómögulegt að komast í vinnuna í miðbænum á meðan þeim stóð, síðan freistuðust fullt af ungu fólki að reynast komast inn á skemmtistaði í kjölfar þeirra.
En ég hitti Chaplin, ætlaði ekki að þekkja hann fyrst.
Re: Of Monsters and Men
Sent: Mán 09. Júl 2012 15:16
af Zorglub
Já þetta voru dáldið spes tímasetningar, auglýst kl 18, byrjaði kl 19 og Monsters byrjuðu 20:45
Copyright merkið mitt er eitthvað sem var gert í flýti einhverntímann og hefur ekki verið endurskoðað síðan, sennilega vegna þess að ég nota það bara á tónleikamyndir sem eiga það til að flakka duglega milli manna
Græjurúnkið er náttúrulega afstætt, fyrir mann með síma eða vasamyndavél er ég með svaka græjur en fyrir ljósmynda nörda er ég með gamalt dót
Einn kunningi laumaðist til að smella þessari af mér á tónleikunum, menn geta þá bara dæmt sjálfir
Verðmiðinn á þessu setti er allavega lár miðað við tölvurnar hjá mörgum hérna

Re: Of Monsters and Men
Sent: Mán 09. Júl 2012 17:13
af kazzi
hehe þekki þig félagi gaman af þessu
og get vitnað um að hann er góður ljósmyndari
Re: Of Monsters and Men
Sent: Mán 09. Júl 2012 18:44
af Jim
.
Re: Of Monsters and Men
Sent: Mán 09. Júl 2012 18:53
af GuðjónR
Manager1 skrifaði:GuðjónR skrifaði:Já sæll!
Flottar myndir hjá þér!!
Þú hlýtur að vera með úber myndavélagræjur.
Ná svona hrikalega flottum myndum.
Ertu að gefa í skyn að hann sé ekkert góður ljósmyndari, það séu bara græjurnar sem geri góðar myndir?
"já sæll hvað þetta er góður matur, þú hlýtur að eiga geðveikt góða eldavél" - þetta er sambærilegt við það sem þú sagðir um myndirnar
Það skal tekið fram að þetta er allt sagt í góðu gríni.
hahaha það mætti alveg túlka það þannig, en ég meinti það alls ekki þannig.
Sé á myndunum að þær eru teknar á góða vél og af kunnáttu.
Re: Of Monsters and Men
Sent: Mán 09. Júl 2012 18:56
af worghal
Zorglub skrifaði:
var svona vond lykt þarna

?
Re: Of Monsters and Men
Sent: Mán 09. Júl 2012 19:45
af Zorglub
worghal skrifaði:
var svona vond lykt þarna

?
Sko þegar 18.000 manns koma saman þá er tölfræðilega ómögulegt að allir séu vel lyktandi
