Síða 1 af 1
Val á sjónvarpi. Verð 160k MAX
Sent: Fim 05. Júl 2012 16:12
af ingtorbjorgvins
Er að skoða sjónvörp og langar í eitthvað goodshit fyrir 160k max. Verður sennilega bara að vera 32'' ef ég á að ná þessu verðmarkmiði.
Skoðaði mig um á netinu og fann nokkur tæki en veit ekki alveg hvað ég á að velja. Vantar uppástungur að góðum tækjum! Mér líst vel á þetta:
http://www.elko.is/elko/product_detail/ ... 05XXE#elko" onclick="window.open(this.href);return false;
Endilega leiðbeinið mér í þessu

Re: Val á sjónvarpi. Verð 160k MAX
Sent: Fim 05. Júl 2012 17:17
af Moquai
Held að þetta sé af sömu týpu nema bara stærra, og á nákvæmlega sama verði. :edit, eða munar 95 krónum
http://www.samsungsetrid.is/vorur/414/" onclick="window.open(this.href);return false;
Re: Val á sjónvarpi. Verð 160k MAX
Sent: Fim 05. Júl 2012 20:32
af ingtorbjorgvins
Okei snilld, en er þetta samt alveg eins? Það stendur að það sé ekki nettenging, en á elko er nettenging, held ég..
Re: Val á sjónvarpi. Verð 160k MAX
Sent: Fim 05. Júl 2012 20:59
af Hj0llz
Þetta eru alls ekki sama tæki... 37" tækið er D lína sem 2011-2012 týpa á meðan 32" tækið er eh sem er 2012-2013 týpa
Re: Val á sjónvarpi. Verð 160k MAX
Sent: Fim 05. Júl 2012 22:04
af ingtorbjorgvins
Mæliru þá með 32'' eða einhverju öðru?
Re: Val á sjónvarpi. Verð 160k MAX
Sent: Fim 05. Júl 2012 22:20
af Hj0llz
Ertu að hugsa um að hafa tæki í stofu eða svefnherbergi?
Hvað myndiru sitja/liggja langt frá tækinu?
Í hvað muntu nota tækið? dvd, blu-ray? leikjatölvur? eða jafnvel bara að horfa á íslenskt sjónvarpsefni?
Re: Val á sjónvarpi. Verð 160k MAX
Sent: Fim 05. Júl 2012 22:23
af ingtorbjorgvins
Inni í herbergi, samt frekar stóru herbergi. 32'' duga mér fyllilega sko, en the bigger the better

. Er að spila bf3 grimmt í ps3
Re: Val á sjónvarpi. Verð 160k MAX
Sent: Fim 05. Júl 2012 22:35
af Hj0llz
ef þú sættir þig við 32" þá er alls ekkert að því

samt þér að segja þá er ég með 40" inn í mínu herbergi og finnst það orðið full lítið

(tækin verða of lítil einhvernvegin fljótt, að mínu mati)
Tækið sem þú linkaðir á er fínt tæki, fullHD þó að ps3 leikir séu nánast undantekningarlaust 720p, en gætir þá sett blu-ray myndir í ps3 í framtíðinni og notið fullHD.
Er með usb þannig að þú getur tengt flakkara eða minnislykil í tækið.
3 HDMi tengið er orðið normið hjá Samsung í dag (voru 4 á nokkrum tækjum í 2011-2012 línunni) flestir að nota sirka 2-3 tengi þannig að það er ekki issue.
Aðalatriðið er samt að fara í verslanir og sjá tækin í gangi...athuga hvort að þér finnist myndin ásættanleg í tækinu og jafnvel fara með minnislykil/disk og fá að spila hann í nokkrum tækjum
Re: Val á sjónvarpi. Verð 160k MAX
Sent: Fim 05. Júl 2012 22:46
af ingtorbjorgvins
Já einmitt, djö skil ég þig.. Ætla rúlla í elko og samsungsetrið á morgun og tjekka á þessu. Finn vonandi bara draumatækið!
