Síða 1 af 1
hjálp við val á skjákorti..
Sent: Sun 01. Júl 2012 23:35
af J1nX
sælir drengir, fer í það á morgun að kaupa mér nýtt skjákort, með hverju mæliði, budget er í kringum 30-35k
var búinn að sjá þennan "
http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f=21&t=48732" onclick="window.open(this.href);return false; " þráð líka og ath hvort maður ætti að bjóða 30k í það?
mér er sama hvort það sé radeon eða geforce, bara að maður fái það besta fyrir þennan pening.. sjáið restina af tölvunni í undirskriftinni
Re: hjálp við val á skjákorti..
Sent: Sun 01. Júl 2012 23:56
af N7Armor
hvenær þarft þú að fá kortið sem fyrst eða?
Re: hjálp við val á skjákorti..
Sent: Sun 01. Júl 2012 23:58
af CurlyWurly
Það væri uppfærsla fyrir þig að fara í þetta 6950 kort en ég held að þú gætir ekki fengið nýtt skjákort fyrir 30-35k í dag sem að er betra en Radeon 5850 kort, verðin á þessu eru einfaldlega bara svo há.
Re: hjálp við val á skjákorti..
Sent: Mán 02. Júl 2012 00:15
af J1nX
5850 kortið er ónýtt, þess vegna er ég að kaupa nýtt, hefði kannski átt að taka það fram í upphafspóstinum
Re: hjálp við val á skjákorti..
Sent: Mán 02. Júl 2012 00:20
af CurlyWurly
Haha, það breytir öllu
en já eins og ég segi, ef þú sættir þig við notað kort er þetta 6950 betra en allt nýtt sem þú færð fyrir þetta verðbil.
Re: hjálp við val á skjákorti..
Sent: Mán 02. Júl 2012 00:31
af worghal
CurlyWurly skrifaði:Haha, það breytir öllu
en já eins og ég segi, ef þú sættir þig við notað kort er þetta 6950 betra en allt nýtt sem þú færð fyrir þetta verðbil.
sammála þessu, og ef hann lætur það af hendi fyrir 30þús, þá er það frábært
Re: hjálp við val á skjákorti..
Sent: Mán 02. Júl 2012 00:33
af J1nX
N7Armor skrifaði:hvenær þarft þú að fá kortið sem fyrst eða?
á morgun
edit: ahh var að sjá að þú ætlar að selja það í lok júlí, hélt þetta væri í lok júní
Re: hjálp við val á skjákorti..
Sent: Mán 02. Júl 2012 00:38
af N7Armor
ja oki á morgun og ertu viss að þú vilt kaupa notaðan kort?
ég er enþá að hugsa um þetta ég er nefnilega að vinna á morgun og ég þarf að fara með skjáin minn 27'' aftur á tolvutek því það er dautt pixel á honum
og já ég finn ekki diskin sem fylgdi með kortinu þarf að leita af honum
Re: hjálp við val á skjákorti..
Sent: Mán 02. Júl 2012 01:04
af J1nX
þyrfti ekkert diskinn, myndi bara ná í drivers on ze internetz