Síða 1 af 1
Að panta mat á netinu
Sent: Þri 05. Jún 2012 20:40
af appel
Ég er alveg hlessa!! Maður myndi halda að á árinu 2012 væri hægt að reiða sig á að panta mat á netinu, en nei.
Hef ég prófað á dominos.is og pantamat.is, en alltaf lendi ég í veseni með það.
Á dominos.is klikkar oft að spyrja mig hvort það eigi að sækja eða senda, þá enda ég á að þurfa að hringja og tjékka á því hvort pizzan er ekki send. Það hefur nefnilega gerst að ég hef beðið og beðið og svo hringt og þá var bara skráð að það ætti að sækja pizzuna. Ég hef farið í gegnum þetta pöntunarferli hjá þeim nokkrum sinnum og það er ekki spurt sérstaklega um hvort það eigi að senda eða sækja. Doldið fatlað.
Svo á pantamat.is, var akkúrat núna að panta. Svo bíð ég og bíð... hringi svo í staðinn sem ég pantaði og tjékka á því hvort þetta sé að koma, því pöntunin er 15 mín over-due. Þá segja þeir "ah, ég sé þetta hérna núna. sendi þetta af stað núna." (örugglega 30 mín í þetta þá).
Í alvörunni, best að sleppa að panta mat á netinu, maður brennir sig alltaf á þessu. Best að hringja og tala við manneskju og þá veit maður að þetta er komið í réttan farveg.
Væl væl væl

Re: Að panta mat á netinu
Sent: Þri 05. Jún 2012 20:42
af worghal
búinn að prufa nýja kerfið hjá dominos ?
ég hef alltaf fengið upp glugga sem spyr hvort þetta sé sótt eða sent.
Re: Að panta mat á netinu
Sent: Þri 05. Jún 2012 20:47
af lukkuláki
Aldrei klikkað hjá mér að panta á dominos enda kemur greinilega fram efst þar sem pöntunin er skráð Þú sækir eða Þú færð sent
Skil varla hvernig þú getur klikkað á þessu.
Hélt að pantamat.is væri lööööngu dautt fyrirbæri.
Re: Að panta mat á netinu
Sent: Þri 05. Jún 2012 21:00
af flottur
Að pantamat.is getur tekið langan tíma, eins og að panta sér kjúkling frá bkjúklingum það getur tekið allt að 45-50 min ef þú ert heppinn, alltaf gott að fá kaldan kjúlla og blautar franskar.
Hef enga reynslu af dominos nema það að hafa unnið þar áður en pöntunar dæmið var tekið í gegn, enda var endalaust vesen á þessu netpöntunardæmi.
Reyndar strákurinn sem stjórnaði dominos í spöngini gerði það af mikilli snilld þess vegna var lukkuláki svo heppin að ekkert klúðraðist hjá honum svo fíluðu stelpurnar í þjónustuverinu verslunarstjóran í spöngini.
Mitt take á þetta, ef þú ætlar að pantamat þá hringir þú, ekki panta af netinu.
Re: Að panta mat á netinu
Sent: Þri 05. Jún 2012 21:07
af arons4
Pantaði nú einu sinni pizzu á dominos.is, hún er enþá ekki komin. Nokkrir mánuðir síðan.
Re: Að panta mat á netinu
Sent: Þri 05. Jún 2012 21:09
af urban
arons4 skrifaði:Pantaði nú einu sinni pizzu á dominos.is, hún er enþá ekki komin. Nokkrir mánuðir síðan.
Aron, það þýðir ekkert að panta pizzu á dominos þangað heim til mömmu og pabba...
þeir senda ekki hingað til eyja

Re: Að panta mat á netinu
Sent: Þri 05. Jún 2012 21:11
af arons4
urban skrifaði:arons4 skrifaði:Pantaði nú einu sinni pizzu á dominos.is, hún er enþá ekki komin. Nokkrir mánuðir síðan.
Aron, það þýðir ekkert að panta pizzu á dominos þangað heim til mömmu og pabba...
þeir senda ekki hingað til eyja

Var heima hjá Katrínu, hún er reyndar flutt síðan.
Re: Að panta mat á netinu
Sent: Þri 05. Jún 2012 21:29
af intenz
Hef pantað nokkrum sinnum í gegnum Dominos.is - aldrei lent í veseni og að mínu mati er þetta mjög þægilegt og skilmerkilegt.
Hvað ertu að bulla...

Re: Að panta mat á netinu
Sent: Þri 05. Jún 2012 22:00
af appel
Ég fæ ekki upp þennan pop-up ef ég panta sparitilboð b

Re: Að panta mat á netinu
Sent: Þri 05. Jún 2012 22:08
af intenz
appel skrifaði:Ég fæ ekki upp þennan pop-up ef ég panta sparitilboð b

Sérðu ekki bílinn þarna? Það þýðir sent.

Re: Að panta mat á netinu
Sent: Fim 07. Jún 2012 02:49
af Páll
flottur skrifaði:Að pantamat.is getur tekið langan tíma, eins og að panta sér kjúkling frá bkjúklingum það getur tekið allt að 45-50 min ef þú ert heppinn, alltaf gott að fá kaldan kjúlla og blautar franskar.
Hef enga reynslu af dominos nema það að hafa unnið þar áður en pöntunar dæmið var tekið í gegn, enda var endalaust vesen á þessu netpöntunardæmi.
Reyndar strákurinn sem stjórnaði dominos í spöngini gerði það af mikilli snilld þess vegna var lukkuláki svo heppin að ekkert klúðraðist hjá honum svo fíluðu stelpurnar í þjónustuverinu verslunarstjóran í spöngini.
Mitt take á þetta, ef þú ætlar að pantamat þá hringir þú, ekki panta af netinu.
Getur verið að þú sert að tala um Mikka?
Re: Að panta mat á netinu
Sent: Fim 07. Jún 2012 14:01
af gutti
dominos.is, fínt kerfi hjá þeim bara 1 galli sem ég sé hjá þeim að ég er alltaf fá ostagott í staðinn fyrir Brauðstangir deluxe

en ég hringja og kvarta

Re: Að panta mat á netinu
Sent: Fim 07. Jún 2012 18:03
af flottur
Páll skrifaði:flottur skrifaði:Að pantamat.is getur tekið langan tíma, eins og að panta sér kjúkling frá bkjúklingum það getur tekið allt að 45-50 min ef þú ert heppinn, alltaf gott að fá kaldan kjúlla og blautar franskar.
Hef enga reynslu af dominos nema það að hafa unnið þar áður en pöntunar dæmið var tekið í gegn, enda var endalaust vesen á þessu netpöntunardæmi.
Reyndar strákurinn sem stjórnaði dominos í spöngini gerði það af mikilli snilld þess vegna var lukkuláki svo heppin að ekkert klúðraðist hjá honum svo fíluðu stelpurnar í þjónustuverinu verslunarstjóran í spöngini.
Mitt take á þetta, ef þú ætlar að pantamat þá hringir þú, ekki panta af netinu.
Getur verið að þú sert að tala um Mikka?
Jammz, var að tala um hann, rosalega fínn strákur

Re: Að panta mat á netinu
Sent: Fös 08. Jún 2012 15:49
af Páll
flottur skrifaði:Páll skrifaði:flottur skrifaði:Að pantamat.is getur tekið langan tíma, eins og að panta sér kjúkling frá bkjúklingum það getur tekið allt að 45-50 min ef þú ert heppinn, alltaf gott að fá kaldan kjúlla og blautar franskar.
Hef enga reynslu af dominos nema það að hafa unnið þar áður en pöntunar dæmið var tekið í gegn, enda var endalaust vesen á þessu netpöntunardæmi.
Reyndar strákurinn sem stjórnaði dominos í spöngini gerði það af mikilli snilld þess vegna var lukkuláki svo heppin að ekkert klúðraðist hjá honum svo fíluðu stelpurnar í þjónustuverinu verslunarstjóran í spöngini.
Mitt take á þetta, ef þú ætlar að pantamat þá hringir þú, ekki panta af netinu.
Getur verið að þú sert að tala um Mikka?
Jammz, var að tala um hann, rosalega fínn strákur

Hann er fínn, yfirmaður minn í dag

Re: Að panta mat á netinu
Sent: Fös 08. Jún 2012 15:55
af Varasalvi
Mig langar i Dominos núna...