Síða 1 af 1

Bilaður bakaraofn

Sent: Fim 24. Maí 2012 11:36
af GuðjónR
Ofninn minn bilaði um daginn, tegundin er De Dietrich og var keyptur hjá Einar Farestveit fyrir nokkrum árum.
Fór með ofninn í viðgerð og það var skipt um stýringu, en ný stýring kostar 42 þúsund.

Þegar heim er komið þá set ég hann í samband og það logar ljós á honum í tvær klukkustundir svo deyr hann.
Ég ef aftur með hann í viðgerð og núna var verið að hringja í mig og mér sagt að það hefði verið ónýtur þéttir á "nýju" stýringunni sem ég borgaði 42 þúsund krónur fyrir.
Og ég spurði hvernig þetta hefði verið lagað, nú með því að skipta um þéttinn sem var bilaður, ég hefði nú viljað fá nýja stýringu sem væri í lagi. :face

Ætli þetta sé öruggt? þegar ég sæki ofninn næst þá verð ég búinn að keyra með hann fram og til baka hátt í 300km...það verður sorpa næst.

Re: Bilaður bakaraofn

Sent: Fim 24. Maí 2012 11:44
af Klemmi
Virkaði ofninn í þessar 2klst eða var hann eitthvað skrítinn?

Spyr þar sem mér finnst lágmarkið að prófa vöruna eftir viðgerð og sjá að hún sé að virka eðlilega :popeyed

Re: Bilaður bakaraofn

Sent: Fim 24. Maí 2012 11:48
af GuðjónR
Klemmi skrifaði:Virkaði ofninn í þessar 2klst eða var hann eitthvað skrítinn?

Spyr þar sem mér finnst lágmarkið að prófa vöruna eftir viðgerð og sjá að hún sé að virka eðlilega :popeyed
Lét ekki reyna á það, setti hann í samband bara og svo 1-2 klst seinna var slökkt á LCD panelnum.

Mig grunar að það hafi ekki verið sett ný stýring í ofnin, annaðhvort hafa þeir reynt að "laga" gömlu með misheppnuðum árangri eða tekið úr öðrum ofni og þess vegna ekki vitað að hún virkaði.
En ég hef ekkert fyrir mér í þessu annað en að það er mjög grunasmlegt að "ný" stýring hafi verið með sprungnum þétti.

Re: Bilaður bakaraofn

Sent: Fim 24. Maí 2012 11:51
af lukkuláki
Þeir taka væntanlega amk. árs ábyrgð á viðgerðinni og þessari nýju stýringu.

Re: Bilaður bakaraofn

Sent: Fim 24. Maí 2012 11:56
af GuðjónR
lukkuláki skrifaði:Þeir taka væntanlega amk. árs ábyrgð á viðgerðinni og þessari nýju stýringu.
Já örgglega, en ég ætla rétt að vona að 60k viðgerð endist lengur en árið..

Re: Bilaður bakaraofn

Sent: Fim 24. Maí 2012 13:18
af FreyrGauti
Þvílík paranoja... :lol:
Kemur nú fyrir að hlutir séu gallaðir, og ekki mikið mál að skipta um ónýtan þétti ef þú ert með þjálfað starfsfólk og tækin í það.

Re: Bilaður bakaraofn

Sent: Fim 24. Maí 2012 13:25
af playman
Ættir líka að geta opnað ofnin og skoðað þessa "nýu" stýringu og séð hvort að hún sé hrein eða með fitubletti/ryk eða eitthvað annað sem bendir til þess að
þú sért ekki með nýa stýringu.
auðvitað geta nýir hlutir skemst, því miður, en það er sem betur fer sjaldgæft.

Einnig mögulega er orginal bilunin ekki í stýringuni heldur í einhverju sem tengist stýringuni og er því að
hleipa of miklum straum inná hana.

Re: Bilaður bakaraofn

Sent: Fim 24. Maí 2012 13:30
af GuðjónR
FreyrGauti skrifaði:Þvílík paranoja... :lol:
Kemur nú fyrir að hlutir séu gallaðir, og ekki mikið mál að skipta um ónýtan þétti ef þú ert með þjálfað starfsfólk og tækin í það.
Paranoja? þetta hefur ekkert með paranoju að gera.
Ef þú kaupir nýtt skjákort og það er bilaður þéttir þá viltu væntanlega fá nýtt skjákort en ekki "viðgert" ... það geta fleiri þettar verið bilaðir og annar íhlutur sem orsakar bilun í þetti.
Og ég þarfað keyra 150km í hvert sinn sem ofninn bilar þannig að núna eru komnir 300km og ég er ekki að nenna því :mad

Re: Bilaður bakaraofn

Sent: Fim 24. Maí 2012 13:33
af ORION
GuðjónR skrifaði:

Þér að kenna að vera ekki í RVK :hillarius

Nei hér er einhvað gruggugt? Hljóta að hafa tengt einhvað vitlaust etc.

Re: Bilaður bakaraofn

Sent: Fim 24. Maí 2012 13:35
af GuðjónR
ORION skrifaði: Þér að kenna að vera ekki í RVK :hillarius
:slapp

Re: Bilaður bakaraofn

Sent: Fim 24. Maí 2012 13:40
af capteinninn
Ég myndi minnast eitthvað á að þú býrð svona langt í burtu og sjá hvort þú getir fengið einhvern afslátt eða eitthvað.
Rugl að þeir klúðri þessu og sendi þig svo fram og til baka með vöruna án þess að þú fáir neitt fyrir.

Komdu samt endilega með follow up af þessu, hvernig þetta endaði svo við sjáum hvort þeir höndluðu þetta vel eða ekki

Re: Bilaður bakaraofn

Sent: Fim 24. Maí 2012 13:51
af GuðjónR
hannesstef skrifaði:Ég myndi minnast eitthvað á að þú býrð svona langt í burtu og sjá hvort þú getir fengið einhvern afslátt eða eitthvað.
Rugl að þeir klúðri þessu og sendi þig svo fram og til baka með vöruna án þess að þú fáir neitt fyrir.

Komdu samt endilega með follow up af þessu, hvernig þetta endaði svo við sjáum hvort þeir höndluðu þetta vel eða ekki
Ég kann ekki við það, verð sáttur ef ofninn verður til friðs eftir þetta.

Re: Bilaður bakaraofn

Sent: Fim 24. Maí 2012 15:07
af worghal
smá spurning, falla ofnar og slíkt ekki undir 5 ára regluna í sambandi við ábyrgð? :-k

Re: Bilaður bakaraofn

Sent: Fim 24. Maí 2012 15:24
af GuðjónR
worghal skrifaði:smá spurning, falla ofnar og slíkt ekki undir 5 ára regluna í sambandi við ábyrgð? :-k
Líklega, þessi er ný orðinn 6 ára.

Annars lenti ég í því að pressan í ískápnum (Bloomberg og frá sömu verslun) sprakk þegar ískápurinn var rétt að verða 3ggja ára ..
Eftir mikið tuð og leiðindi þá fékk ég "afslátt" af viðgerðinni. Ef ég hefði vitað af þessari fimm ára reglu þá hefði ég ekki borgað krónu.
Ein af spanhellunum fjórum er líka búinn að gefa upp öndina ... það hefði líka átt að falla undir 5 ára regluna.

2001 þá keypti ég allt nýtt í eldhús frá Siemens og þegar ég flutti 6 árum síðar þá hafði aldrei neitt bilað.
Þetta drasl sem er hérna er allt búið að bila. Og þetta á að vera 300k ofn :thumbsd
Myndi ekki vilja nýjan fyrir 1/3 af því verði.

Re: Bilaður bakaraofn

Sent: Fim 24. Maí 2012 15:26

ahh, svekk að vera kominn ár yfir, en er þetta ekki bara tilefni til að grilla meira og því afsökun á meiri bjór? :D :drekka

Re: Bilaður bakaraofn

Sent: Fim 24. Maí 2012 15:26
af GuðjónR
worghal skrifaði:

jú!! :drekka