Síða 1 af 1

Micro SD 16gb kort

Sent: Mán 14. Maí 2012 22:24
af Yawnk
http://www.amazon.com/Sandisk-16GB-Micr ... 959&sr=8-1" onclick="window.open(this.href);return false;
Hvað myndi þetta kosta þegar það væri komið til landsins? hehehe, ég veit að þetta er lítill peningur, en það sakar ekki að spyrja, tollreiknivélin er aldrei með rétta flokkinn ;)
Hef lesið eitthvað um að svona Sandisk 16GB bili eftir nokkra mánuði í notkun, hefur það gerst hjá eitthverjum?
Og hver er munurinn á class 2, 4 og 6? er það bara hraði á flutningu gagna á milli?
http://www.tolvutek.is/vara/silicon-pow ... -sd-breyti" onclick="window.open(this.href);return false;
Tölvutek er með þetta fyrir 3 þús kall, ætti maður að ná í þetta á Amazon eða bara spreða aðeins meira í Tölvutekið?

Fyrirfram þakkir.

Re: Micro SD 16gb kort

Sent: Mán 14. Maí 2012 23:52
af MatroX
ef þetta er í síma reyndu að fá þér class 10 kort. því hærri sem classinn er því hraðara er kortið. class 2 og 4 eru rosalega hæg kort ef þú ert að setja þetta í síma á borð við Samsung Galaxy s2

Re: Micro SD 16gb kort

Sent: Þri 15. Maí 2012 11:22
af dori
Class þýðir að þú færð minnst X MB/s sequential skrifhraða (heimild).

Það fer smá eftir því hvað það er sem þú vilt gera hvaða klassa þú vilt fá. Sérstaklega í stóru kortunum þá eru notuð trix til að ná fram háum klass sem oft koma niður á annars konar notkun (leshraða eða eða random skrifhraða). Ef þú ætlar að taka upp HD myndbönd þá viltu 8-10. Annars er 4-6 fínt.

Re: Micro SD 16gb kort

Sent: Þri 15. Maí 2012 15:06
af Kalli9900
ef þú villt seja þetta í breiti(SD) og nota síðan í full hd cameru td. eos 550 d þá verður að hafa 30 mb per sek til að geta skotið full hd video

scandisk hafa reinst mér mjög vel í minni vél og ég hef mistt þau ofna í kerta vax en sammt virka þau allaf.
topp kort

Re: Micro SD 16gb kort

Sent: Þri 15. Maí 2012 22:36
af Yawnk
Ég fékk ekki svar við hinni spurningunni, væri þetta margfalt ódýrara ef ég pantaði á Amazon? Ég veit ekki með tollareiknivélina, en líklegasti flokkurinn á ShopUSA er ''Tölvubúnaður og Minniskort'' og þá fæ ég út 3700 kr, er það virkilega satt fyrir hlut sem kostar 4 dollara? ](*,)

Re: Micro SD 16gb kort

Sent: Þri 15. Maí 2012 22:42
af dori
Ég myndi aldrei taka svona hluti í gegnum shop usa. Reyndar myndi ég örugglega aldrei nota shop usa.

Re: Micro SD 16gb kort

Sent: Þri 15. Maí 2012 22:44
af Klaufi
http://tollur.is/default.asp?cat_id=1700" onclick="window.open(this.href);return false;

>Ljós- og kvikmyndavörur.
>>Minniskort í myndavélar.

Go nuts.

Re: Micro SD 16gb kort

Sent: Þri 15. Maí 2012 22:58
af Yawnk
Klaufi skrifaði:http://tollur.is/default.asp?cat_id=1700

>Ljós- og kvikmyndavörur.
>>Minniskort í myndavélar.

Go nuts.
Haha, takk kærlega fyrir þetta, spara stórt á því að taka þetta svona :)

Re: Micro SD 16gb kort

Sent: Þri 15. Maí 2012 23:04
af playman
Hverninn var það? taka þeir ekki toll af heildarverði?
semsagt vara+sendingarkostnaður=tollverð
Mig minnir að það var eitthvað þannig í gangi.

Re: Micro SD 16gb kort

Sent: Þri 15. Maí 2012 23:13
af Klaufi
playman skrifaði: semsagt vara+sendingarkostnaður=tollverð
Passar.

Re: Micro SD 16gb kort

Sent: Þri 15. Maí 2012 23:18
af playman
Klaufi skrifaði:
playman skrifaði: semsagt vara+sendingarkostnaður=tollverð
Passar.
Frekar asnalegt, maður kaupir t.d. ónítan flatksjá á örfáa dollara til þess eins að fá úr honum einn varahlut og maður þarf að borga tugiþúsunda fyrir drasslið
bara út af því að sendingarkostnaðurinn var svo hár -.- :thumbsd

Re: Micro SD 16gb kort

Sent: Þri 15. Maí 2012 23:20
af Tiger
playman skrifaði:Hverninn var það? taka þeir ekki toll af heildarverði?
semsagt vara+sendingarkostnaður=tollverð
Mig minnir að það var eitthvað þannig í gangi.
Jú og borgar svo VSK bæði af vöruverði og sendingarkostnaðinum.

Re: Micro SD 16gb kort

Sent: Þri 15. Maí 2012 23:22
af chaplin
FOB + Flut./Vátr.
= CIF

CIF + tollur
= Tollverð

Og svo er innskattur tekinn af tollverði. Finnst þó ótrúlegt að það sé tekinn tollur af microSD kortum, heldur eingöngu vsk.

Re: Micro SD 16gb kort

Sent: Þri 15. Maí 2012 23:27
af playman
Einhver sem getur útskírt hversvegna það er "réttlætanlegt" að margborga af sömu vörunni, og afhverju í ósköpunum við erum að borga skatt/toll af sendingarkostnaði?

Re: Micro SD 16gb kort

Sent: Þri 15. Maí 2012 23:36
af Nariur
Það er eins og hver önnur þjónusta sem ber skatt

Re: Micro SD 16gb kort

Sent: Þri 15. Maí 2012 23:39
af dori
Ekki gleyma tollmeðferðargjaldi póstsins. Það bætist ofan á það sem kemur úr reiknivélinni á tollur.is. Tollmeðferðargjald er ~500 kall.

Þetta mun verða rétt um 2000 kr. Ég myndi satt að segja örugglega kaupa þetta á Íslandi til að eiga ábyrgð og fá þetta samdægurs.

Re: Micro SD 16gb kort

Sent: Mið 16. Maí 2012 00:06
af Tiger
playman skrifaði:Einhver sem getur útskírt hversvegna það er "réttlætanlegt" að margborga af sömu vörunni, og afhverju í ósköpunum við erum að borga skatt/toll af sendingarkostnaði?
Útskýrðu nánar....þú borgar einu sinni vsk af tölvuvörum...einu sinn vsk af fluttningskostnaði...engin tollur á hvorugu.

Og afhverju ættiru ekki að borga VSK af sendingarkostnaði? Þú borgar VSK af allskonar þjónustu hérna innalands.

Re: Micro SD 16gb kort

Sent: Mið 16. Maí 2012 00:08
af chaplin
Ef þú kaupir 10 stk. mv. 127kr vísagengi.

5.715 kr með flutning
1.457 kr í innskatt
500 kr í tollmeðferð

= 7.672kr eða já, rúmlega 767 kr stykkið.

Ég myndi þó persónulega frekar leitast eftir Class 6 eða hærra, helst ekkert undir Class 10. Einnig hljómar þetta verð of gott til að vera satt.

Re: Micro SD 16gb kort

Sent: Mið 16. Maí 2012 00:24
af dori
chaplin skrifaði:Ef þú kaupir 10 stk. mv. 127kr vísagengi.

5.715 kr með flutning
1.457 kr í innskatt
500 kr í tollmeðferð

= 7.672kr eða já, rúmlega 767 kr stykkið.

Ég myndi þó persónulega frekar leitast eftir Class 6 eða hærra, helst ekkert undir Class 10. Einnig hljómar þetta verð of gott til að vera satt.
Nah...
Amazon skrifaði:Quantity: 10
$40.00 + $49.90 shipping
89,9*129,07=11603 kr. með flutningi
89,9*0,255*126,63=2903 kr. í vsk
500 kr. í tollmeðferð
=15006 kr. eða rúmlega 1500 kr. stykkið

Það er svo gay hvernig sumir reikna sendingarkostnað. Annars er ég ekki alveg sammála flestum hérna með þessa class áráttu. Þetta skiptir máli í HD myndavél sem tekur myndir hratt eða þegar það eru tekin upp HD myndbönd. En það er tvíeggjað því að ef þú ert með random writes þá viltu ekki þessi kort sem eru optimizuð fyrir über hratt sequential writes.

Bara að muna að símar (þetta er fyrir síma er það ekki?) eru ekki myndavélar og sérstaklega ef þú ætlar að nota þetta til að geyma forrit myndi ég ekki vera að spreða í eitthvað class 10 kort.

Re: Micro SD 16gb kort

Sent: Mið 16. Maí 2012 00:41
af tomasjonss
A) Finnst fáránlegt að borga skatt af sendingarkostnaði vöru. Allt annað að borga af verði vörunnar.

B) Mundi aldrei kaupa svona kort hér á landi. Þau eru lágmarki helmingi dýrari. Ég keypti 16gb kort class 10 á 4000 hingað komið á meðan það var á kringum 15 í Elkó á sínum tíma

Re: Micro SD 16gb kort

Sent: Mið 16. Maí 2012 01:04
af chaplin
dori skrifaði:Allt
Ég hugsa nú að hann fái að senda þetta í einni sendingu, það var aðal ástæðan afhverju ég gerði dæmið með 10 kortum, ef ekki þá er auðvita enginn tilgangur með því.

Annars er dæmið okkar alveg eins að öðru leiti nema ég notaði "sirka" gengið sem hann myndi greiða og svo er tollmeðferðin 550 kr ef ég man rétt.

* Edit - Sá seinna quote-ið þitt. ;)