Síða 1 af 1
Tollflokkun á tölvuskjáum
Sent: Mán 30. Apr 2012 09:35
af blitz
Er að skoða að taka inn 27" IPS skjá en vill vera viss í hvaða tollflokk hann fer.
Samkvæmt tollur.is er það bara 25,5% vaskur (reiknivél -> Tölvubúnaður -> Skjáir og myndvörpur eingöngu nothæfir fyrir tölvur) en mig grunar að tollurinn flokki þetta öðruvísi.
Einhver?
Re: Tollflokkun á tölvuskjáum
Sent: Mán 30. Apr 2012 09:39
af vesley
Hann gæti dottið í sama tollflokk og sjónvörp ef það er HDMI á skjánum, ég á samt alltaf erfitt með að trúa því.
Annars er það bara VSK og enginn tollur.
Re: Tollflokkun á tölvuskjáum
Sent: Mán 30. Apr 2012 09:40
af Kristján
var það ekki eitthvað með að ef skjárinn er með hdmi tengi þá er hann sjónvarp.
ALLS EKKI VISS en minnir að hafa lesið það herna einhverstaðar.
Re: Tollflokkun á tölvuskjáum
Sent: Mán 30. Apr 2012 09:45
af dori
Tollstjórinn tók stjórnsýsluákvörðun fyrir ekki svo löngu síðan um að skjáir með DisplayPort tengi væru sjónvörp. Löngu áður var búið að ákveða slíkt með HDMI tengi. Það er alveg 99% líkur á að þessi skjár sem þú ert með sé flokkaður sem sjónvarp nema hann sé bara með VGA/DVI.
Þetta er auðvitað mjög kjánalegt og það sér það hver maður með einhverja tækniþekkingu að þetta meikar ekki sense en svona er löggjöfin/stjórnsýslan okkar heimsk.
Re: Tollflokkun á tölvuskjáum
Sent: Mán 30. Apr 2012 09:58
af blitz
Skjárinn er með dual DVI, ekki hdmi né displayport.
Ætla að hafa samband við Tollinn
Re: Tollflokkun á tölvuskjáum
Sent: Mán 30. Apr 2012 10:18
af dori
Dual DVI á að vera eingöngu til notkunar við tölvur. En ég myndi einmitt hafa samband við tollinn fyrirfram til að fá ekki leiðilegan reikning sem þú getur ekkert gert nema borgað (eða sent skjáinn til baka).
Sem er samt svo fáránlegt því að sams konar skjár sem er með HDMI en enga hátalara er ekkert meira sjónvarp en kostar miklu meira útaf þessum vörugjöldum...
Re: Tollflokkun á tölvuskjáum
Sent: Mán 30. Apr 2012 10:59
af Gilmore
Ég keypti Dell 30" IPS skjá í janúar og þurfti að borga vsk + vörugjöld og tolla því hann er með display port og hdmi.
Re: Tollflokkun á tölvuskjáum
Sent: Mán 30. Apr 2012 12:02
af rapport
Allir skjáir með Display port hækkuðu fyrri um 6-10 mánuðum vegna þessara Tol fanatica ...
En vissu þið að skv. tollskrá þá er búið að flytja inn tvo kjarnakljúfa !!!
Re: Tollflokkun á tölvuskjáum
Sent: Mán 30. Apr 2012 12:26
af AciD_RaiN
rapport skrifaði:Allir skjáir með Display port hækkuðu fyrri um 6-10 mánuðum vegna þessara Tol fanatica ...
En vissu þið að skv. tollskrá þá er búið að flytja inn tvo kjarnakljúfa !!!
Ef það er það sama og nuclear reactor þá var einhver að segja mér þetta um daginn og að það væri eitthvað verið að vinna í því að koma af stað nuclear power plant á Íslandi :neiii
Það hefur aldrei neitt verið að marka þennan aðila þannig að ég hélt að þetta væri bara ein lygin í viðbót...
Re: Tollflokkun á tölvuskjáum
Sent: Mán 30. Apr 2012 12:47
af Demon
Gilmore skrifaði:Ég keypti Dell 30" IPS skjá í janúar og þurfti að borga vsk + vörugjöld og tolla því hann er með display port og hdmi.
Ertu til í að gefa upp hvað þú borgaðir fyrir gripinn?
Væri til í að kaupa svona skjá sjálfur en er einmitt hræddur um að þetta sé frekar dýrt þegar maður flytur þetta heim.
Re: Tollflokkun á tölvuskjáum
Sent: Mán 30. Apr 2012 13:55
af Gilmore
Það var eitthvað tæplega 300 þús. Ég var búinn að reikna með svona 220 - 240 þús. Hefði betur keypt hann í gegnum buy.is, en hann kostar 250 þús þar.
Re: Tollflokkun á tölvuskjáum
Sent: Mán 30. Apr 2012 14:23
af Demon
Gilmore skrifaði:Það var eitthvað tæplega 300 þús. Ég var búinn að reikna með svona 220 - 240 þús. Hefði betur keypt hann í gegnum buy.is, en hann kostar 250 þús þar.
Úff. Sweet skjár samt er það ekki?
Re: Tollflokkun á tölvuskjáum
Sent: Mán 30. Apr 2012 14:45
af Gilmore
Hann er það......þvílík myndgæði, ekki hægt að bera það saman við TH skjái, allt annar klassi.
Leikir sjúklega flottir í þessum skjá og líka bara gott að hafa svona mikið skjápláss í allri vinnslu. Photoshop og Premier t.d.
Gallinn er sá að þegar maður ætlar að endurnýja, þá verður maður að kaupa annan skjá í þessum klassa.....erfitt að sætta sig við eitthvað annað hér eftir.
Re: Tollflokkun á tölvuskjáum
Sent: Þri 03. Júl 2012 21:57
af Ulfi
blitz skrifaði:Er að skoða að taka inn 27" IPS skjá en vill vera viss í hvaða tollflokk hann fer.
Samkvæmt tollur.is er það bara 25,5% vaskur (reiknivél -> Tölvubúnaður -> Skjáir og myndvörpur eingöngu nothæfir fyrir tölvur) en mig grunar að tollurinn flokki þetta öðruvísi.
Einhver?
Ertu búinn að flytja hann inn? Hvernig gekk það?
Re: Tollflokkun á tölvuskjáum
Sent: Þri 03. Júl 2012 23:26
af DabbiGj
reglan var að skjáir þyrftu að hafa composite til að flokkast sem sjónvörp
Re: Tollflokkun á tölvuskjáum
Sent: Þri 03. Júl 2012 23:29
af dori
DabbiGj skrifaði:reglan var að skjáir þyrftu að hafa composite til að flokkast sem sjónvörp
Reglan
er að skjáir mega ekki hafa neitt annað en VGA+DVI tengi til að flokkast sem tölvuskjáir. HDMI/DisplayPort -> sjónvörp.
Re: Tollflokkun á tölvuskjáum
Sent: Þri 03. Júl 2012 23:36
af Ulfi
dori skrifaði:DabbiGj skrifaði:reglan var að skjáir þyrftu að hafa composite til að flokkast sem sjónvörp
Reglan
er að skjáir mega ekki hafa neitt annað en VGA+DVI tengi til að flokkast sem tölvuskjáir. HDMI/DisplayPort -> sjónvörp.
Ég er að skoða skjá á Ebay og stendur með stórum stöfum
This is for Desktop, Only using DVI-D link (Dual Link) og það eru ekki öll skjákort sem styðja það einu sinni. Mitt gerir það reyndar.
Þanning ég var að spá hvort einhverjir hafa reynt að flytja þá inn.
Re: Tollflokkun á tölvuskjáum
Sent: Mið 04. Júl 2012 08:46
af blitz
Ulfi skrifaði:blitz skrifaði:Er að skoða að taka inn 27" IPS skjá en vill vera viss í hvaða tollflokk hann fer.
Samkvæmt tollur.is er það bara 25,5% vaskur (reiknivél -> Tölvubúnaður -> Skjáir og myndvörpur eingöngu nothæfir fyrir tölvur) en mig grunar að tollurinn flokki þetta öðruvísi.
Einhver?
Ertu búinn að flytja hann inn? Hvernig gekk það?
Nei, en skv. samtali við Tollinn þá myndi slíkur skjár bara bera vsk, ekki toll.
Re: Tollflokkun á tölvuskjáum
Sent: Mið 04. Júl 2012 10:35
af wICE_man
Það er merkilegt að við skulum þurfa að pæla í þessu. Tölvuskjáir eru tölvuskjáir
Tollstjóri er að beita túlkunarreglum á rangan hátt og hunsa athugasemdir við flokkinn sem tölvuskjáir eru í. Það er verið að kæra hann af nokkrum aðilum og þetta verður vonandi komið í eðlilegt horf sem fyrst. Á meðan verða menn bara að halda áfram að flytja inn hálf-úrelda skjái