Síða 1 af 6

DIABLO 3 Open Beta Weekend 20 - 23 apríl

Sent: Mið 11. Apr 2012 00:04
af jomminn
Fyrsti þráðurinn sem ég set svona upp ...en einhverntíman verður maður að byrja.

Ég var bara að velta fyrir mér hverjir ætluðu að fá sér Diablo 3 þegar hann kemur
...sjálfur er ég búinn að pre-ordera hann af blizzard og ná í hann með góðar væntingar :D:D:D tók samt eftir því að elkó er að selja hann ódýrara en blizzard í pre-order eftir að ég keypti hann :/

Ég sjálfur spilaði Diablo 2 eitthvað þegar hann var sem stæðstur en hef til dæmis ekki spilað hann með öðrum og mér skillst að þessi eigi að vera rosalega mikið hugsaður sem online/co-op leikur og mikið lagt uppúr þeim hluta leiksins.

Hérna er smá myndband sem sýnir spilun og mun á grafík og þessháttar í Diablo 1, 2 og 3 og verð að segja að 3 lítur alls ekki illa út :D
| http://www.youtube.com/watch?v=m0M4sksBOtI" onclick="window.open(this.href);return false; |

En já ...hverjir ætla að fá sér Diablo 3 og hefur fólk einhver comment um hann til þeirra sem kanski hafa ekki spilað fyrri leikina og jafnvel ef vaktarar hafa verið að kynna sér leikinn eitthvað sérstaklega ?

Re: DIABLO 3

Sent: Mið 11. Apr 2012 00:09
af worghal
fæ hann frítt hjá blizzard og sjálfur mun ég stunda auction house eins og brjálæðingur.

Re: DIABLO 3

Sent: Mið 11. Apr 2012 00:12
af jomminn
worghal skrifaði:fæ hann frítt hjá blizzard og sjálfur mun ég stunda auction house eins og brjálæðingur.
ok ...færðu hann fríann vegna árs samning í wow þá ?

Re: DIABLO 3

Sent: Mið 11. Apr 2012 00:13
af worghal
yup.
en ég mun líklegast kaupa hann í collectors ef það kemur til landsins.

Re: DIABLO 3

Sent: Mið 11. Apr 2012 00:16
af littli-Jake
worghal skrifaði:yup.
en ég mun líklegast kaupa hann í collectors ef það kemur til landsins.

http://www.elko.is/elko/product_detail/ ... oryid=1111" onclick="window.open(this.href);return false;

Bara 20 K FML

Re: DIABLO 3

Sent: Mið 11. Apr 2012 00:19
af worghal
well, star wars var á 25k og ég keypti það.
aulinn ég :(

Re: DIABLO 3

Sent: Mið 11. Apr 2012 00:21
af Frost
Búinn að pre-ordera og bíð spenntur! :D

Legg til að það verði stofnaður hópur svo menn geti spilað saman.

Re: DIABLO 3

Sent: Mið 11. Apr 2012 01:19
af jomminn
Frost skrifaði:Búinn að pre-ordera og bíð spenntur! :D

Legg til að það verði stofnaður hópur svo menn geti spilað saman.

alveg sammála þér þar ...var alveg frekar hissa á því að það skildi ekki vera kominn upp þráður fyrir leik af þessari stærðargráðu :p
en ég styð þessa hugmynd með að stofna hóp ...það væri snilld !

Re: DIABLO 3

Sent: Mið 11. Apr 2012 01:24
af DaRKSTaR
keypti collectors edition einfaldlega útaf því að ég elskaði diablo 2 lod og gat ekki hugsað mér annað en ce fyrir diablo 3.

kannski maður nái að mala inn peninga í diablo 3 eins og ég gerði í d2.
byrja í softcore svona til að specca þetta og læra á þetta áður en ég hendi mér í hardcore og að sjálfsögðu ætla ég að spila á us serverum, kaninn er svo mikið fyrir að kaupa hluti fyrir peninga þannig að maður
ætti að getað malað inn á ah sérstaklega á hc items.

Re: DIABLO 3

Sent: Mið 11. Apr 2012 01:31
af jomminn
hefur einhver kynnt sér hvað er í boði í multiplayer partinum á honum ...það verður pvp ...co-op veit ég ...auction house ?

Re: DIABLO 3

Sent: Mið 11. Apr 2012 01:36
af worghal
jomminn skrifaði:hefur einhver kynnt sér hvað er í boði í multiplayer partinum á honum ...það verður pvp ...co-op veit ég ...auction house ?
pvp kemur ekki allveg strax samt.

Re: DIABLO 3

Sent: Mið 11. Apr 2012 01:41
af GullMoli
jomminn skrifaði:hefur einhver kynnt sér hvað er í boði í multiplayer partinum á honum ...það verður pvp ...co-op veit ég ...auction house ?
Smá kynning á Auction House; http://www.youtube.com/watch?v=4ir6zrHXuO0" onclick="window.open(this.href);return false;

Annars mun ég hiklaust versla mér hann, skemmir ekki að hann kemur út daginn sem ég klára í prófum :D

Re: DIABLO 3

Sent: Mið 11. Apr 2012 02:41
af Frost
GullMoli skrifaði:
jomminn skrifaði:hefur einhver kynnt sér hvað er í boði í multiplayer partinum á honum ...það verður pvp ...co-op veit ég ...auction house ?
Smá kynning á Auction House; http://www.youtube.com/watch?v=4ir6zrHXuO0" onclick="window.open(this.href);return false;

Annars mun ég hiklaust versla mér hann, skemmir ekki að hann kemur út daginn sem ég klára í prófum :D
Ég er einminn að lenda í því. Seinasta prófið mitt er 15. maí og sé varla betri leið til að fagna prófalokum heldur en að byrja í þessum leik!

Re: DIABLO 3

Sent: Mið 11. Apr 2012 08:07
af ManiO
Fer í aðgerð 22. maí. Mun sennilega vera á e-m súrum verkjatöflum að spila D3, SC2, FO:NV og skemmta mér konunglega.

Re: DIABLO 3

Sent: Mið 11. Apr 2012 08:21
af Senko
Pantaði Collectors Edition hjá Elko, hlakka mikið til að fá þennan í hendurnar, hef ekki fundið skemmtilega leyki nýlega og er farinn að leiðast, hann kemur á fínum tíma :)
Annars er ég mikið að spá að panta mér viku frí í vinnuni frá 15 Maí, nerding it up too much perhaps? :-k

Re: DIABLO 3

Sent: Mið 11. Apr 2012 08:34
af Frost
Senko skrifaði:Pantaði Collectors Edition hjá Elko, hlakka mikið til að fá þennan í hendurnar, hef ekki fundið skemmtilega leyki nýlega og er farinn að leiðast, hann kemur á fínum tíma :)
Annars er ég mikið að spá að panta mér viku frí í vinnuni frá 15 Maí, nerding it up too much perhaps? :-k
Nei nei það er aldrei neitt of mikið :sleezyjoe

Annars langaði mig rosalega mikið í Collectors Edition en hafði ekki fjármagnið...

Re: DIABLO 3

Sent: Mið 11. Apr 2012 14:41
af Varasalvi
Frekar búa til "Farm Team".
24/7 farm fyrir items til að selja og við verðum allir ríkir! Rich i tell ya!

Re: DIABLO 3

Sent: Mið 11. Apr 2012 20:35
af DaRKSTaR
Varasalvi skrifaði:Frekar búa til "Farm Team".
24/7 farm fyrir items til að selja og við verðum allir ríkir! Rich i tell ya!
það er ekki nokkur spurning svona miðað við hvernig gengið er í dag

Re: DIABLO 3

Sent: Mið 11. Apr 2012 20:56
af Nariur
ég pre-orderaði hann á Amazon, fáránlegt af Blizz að rukka jafn margar evrur og dollara fyrir leikinn

Re: DIABLO 3

Sent: Mið 11. Apr 2012 21:01
af worghal
Nariur skrifaði:ég pre-orderaði hann á Amazon, fáránlegt af Blizz að rukka jafn margar evrur og dollara fyrir leikinn
markaðsetning :happy

Re: DIABLO 3

Sent: Mið 11. Apr 2012 21:12
af Saber
Spurning til þeirra sem ætla sér að græða á þessu. Ætlið þið að taka við greiðslum í gegnum Paypal?

Re: DIABLO 3

Sent: Mið 11. Apr 2012 22:18
af J1nX
búinn að verað spila betuna nokkuð grimmt.. get ekki beðið eftir að leikurinn lendi á klakanum.. maður þarf að farað kaupa sér geisladrif og henda í tölvuna þar sem ég mun reyna að kaupa collectors versionið :P

Re: DIABLO 3

Sent: Mið 11. Apr 2012 22:50
af DaRKSTaR
J1nX skrifaði:búinn að verað spila betuna nokkuð grimmt.. get ekki beðið eftir að leikurinn lendi á klakanum.. maður þarf að farað kaupa sér geisladrif og henda í tölvuna þar sem ég mun reyna að kaupa collectors versionið :P
þarft ekki drif.. nóg fyrir þig að klikka á add game á battle.net accountinum og setja cdkeyinn inn þá geturðu downlodað honum.

Re: DIABLO 3

Sent: Mið 11. Apr 2012 23:42
af J1nX
já það er kannski rétt.. maður getur bara horft á behind the scenes diskinn í sjónvarpinu :P

Re: DIABLO 3

Sent: Fim 12. Apr 2012 01:59
af Tesy
Perfect tími :D

Er búinn í prófum 11. maí.
Hvernig virkar þetta AH? Verður bara lagt inná þig? Þetta verður þá bara nýja vinnan mín.