Dolby Digital vs Dolby TrueHD, DTS vs DTS HD MA
Sent: Mið 28. Mar 2012 19:51
Einhver sem hefur prufað muninn og getur sagt mér hvort sé munur á DVD version og blu-ray version á hljóðinu, ekki á blaði heldur sem maður heyrir.
Tölvu og tækniáhuga samfélagið.
https://gamma.vaktin.is/
Hvernig munur? Ef þú getur lýst því eitthvað nánar.hagur skrifaði:Já, það er munur. Hversu vel maður heyrir hann fer auðvitað eftir græjunum sem maður er með. Það er til lítils að vera með heimabíómagnara með Dolby TrueHD og Blu-Ray spilara ef maður er svo með einhverja algjöra dollu hátalara.
Ok takk fyrir þettaAntiTrust skrifaði:Ég er með nýlegan mid-range Pioneer magnara, DTS-HD MA og TrueHD hæfur og munurinn á DTS og HD-MA getur oft á tíðum verið svipaður og munurinn á DVD og Bluray. Þetta fer samt rosalega eftir því hversu góða heyrn þú ert með, hversu góðar græjur (hátalarar/magnari) og fer líka hreinlega eftir myndum/myndefni hversu vel þessi munur nær að njóta sín.
En svo eru bara alls ekki allir sem hafa eyra fyrir hljóðgæðum og eiga í erfiðleikum með að skynja á milli. Ég á líka Bluray myndir / rip sem eru með bæði DTS og DTS-HD MA rásum og blindandi á ég stundum erfitt með að skilja á milli, en svo eru myndir þar sem munurinn er augljós eftir að hafa hlustað á bæði. En svo er líka alveg gígantískur munur á DTS-MA og Dolby TrueHD, alveg eins og það er mikill munur á Dolby og DTS.
En að reyna að lýsa því e-ð nánar fyrir þér hver munurinn er, er eins og að reyna að lýsa muninum á mismunandi litum. Maður verður bara að fá að skynja þetta sjálfur til að átta sig á muninum.