Síða 1 af 2

Lucid Dreaming

Sent: Mán 27. Feb 2012 02:01
af Gummzzi
Lucid Dreaming- Einhver prufað þetta ? Óvart eða viljandi, hvernig fórstu að ? Er helvíti spenntur fyrir þessu ! :sofa

http://en.wikipedia.org/wiki/Lucid_dream" onclick="window.open(this.href);return false;

Re: Lucid Dreaming

Sent: Mán 27. Feb 2012 02:13
af DJOli
Hef experiencað þetta, og það er fucked up.

Þetta hefur komið fyrir mig svona einusinni til tvisvar á ári og í hverjum draumnum virðist ég ganga lengra og lengra.

Hef t.d. einusinni týnst í reykjavík þar sem ég vaknaði í lucid dream, fór actually og klæddi mig í fötin. Labbaði úr breiðholtinu og einhvert lengst út í rassgat. Svo "snappaði" ég úr þessu um 7 þegar ég var úti á götu og sá allt í einu helling af bílum í áttina að mér. Þá fór ég inn í næstu opnu búð og fékk að hringja á leigubíl.

Re: Lucid Dreaming

Sent: Mán 27. Feb 2012 03:04
af Jim
Mig dreymir nánast aldrei og þegar ég geri það man ég ekki eftir draumnum :( Væri virkilega til í að upplifa einhverja athyglisverða drauma og muna eftir þeim.
edit: Ef þú vilt virkilega prófa þetta mæli ég með því að fara að sofa í stað þess að hanga í tölvunni klukkan 3 um nótt ;)

Re: Lucid Dreaming

Sent: Mán 27. Feb 2012 08:00
af Plushy
Lendi í þessu mjög oft. Þetta er eins og að hjóla, gerir þetta einu sinni og síðan kemur þetta bara oftast að sjálfu sér.

Re: Lucid Dreaming

Sent: Mán 27. Feb 2012 08:05
af Haxdal
Annaðhvert skipti sem ég dreymi hef ég nánast fulla stjórn á draumnum, hef gert það síðan ég var táningur.

hef bara einu sinni gengið í svefni samt, þá fór ég frammí eldhús að smyrja brauð og endaði á að gera samlokur þangað til brauðið var búið .

Re: Lucid Dreaming

Sent: Mán 27. Feb 2012 08:17
af Philosoraptor
kemur oft fyrir eftir djúpa hugleiðslu fyrir svefn hjá mér

Re: Lucid Dreaming

Sent: Mán 27. Feb 2012 15:09
af Gummzzi
Jim skrifaði:Mig dreymir nánast aldrei og þegar ég geri það man ég ekki eftir draumnum :( Væri virkilega til í að upplifa einhverja athyglisverða drauma og muna eftir þeim.
edit: Ef þú vilt virkilega prófa þetta mæli ég með því að fara að sofa í stað þess að hanga í tölvunni klukkan 3 um nótt ;)
Haha já þetta virkar víst best sofandi :lol: ..En það er staðreynd að manni dreymi alltaf, hvort maður muni dramana er síðan allt annað mál, sama hér meira segja man aldrei drauma ](*,)

Re: Lucid Dreaming

Sent: Mán 27. Feb 2012 15:36
af Kristján
byrjaði ferkar ungur að dreyma svona

byrjaði að gera horft i kringum mig, var að dreyma að ég væri að standa upp úr rúminu mínu og labba fram á gang svo byrjuðu fáranlegur hlutirnir að gerast...
jólaskraut far á flugi og pabbi var að setja hænsna net á vegginn hjá okkur og svo vaknaði ég.

eftir þetta ef eg verið i annaðhvort martröðum að hlaupa frá einhverju, eða eitthvað fáranlegt eins og að vera i mech borg á einhverri plánetu.

ég er 24 ára og með öflugt ýmindunarafl og horfi mikið á bíómyndir

soldið síðann ég las um þessa drauma og maður getur þjálfað sig i því að dreyma þá.

prufiði að horfa á superman og fleiri myndir þarf sem það er flogið í þeim.
farið að sofa og slittið klukkuna á 2-3 tíma fresti, gerið þetta um helgi þannig það er ekkert að gera hjá ykkur á daginn eftir.
vonandi dreymir ykkur eitthvað og þá getiði prufað að stjórna eitthvað aðeisn i hvert skipti og á endanum ætuð þið að gera flogið(BARA Í DRAUMNUM EKKI Í ALVÖRUNNI!!!!!)
þetta gæti tekið smá tíma að mastera svo þegar ykkur dreymir eitthvað og eruð meðvitaðir um hann þá getiði gert eitthvað í draumnum.

Re: Lucid Dreaming

Sent: Mán 27. Feb 2012 16:34
af Gerbill
Kristján skrifaði:byrjaði ferkar ungur að dreyma svona

Ooohh :(

Re: Lucid Dreaming

Sent: Mán 27. Feb 2012 16:38
af J1nX
veit ekki hvort ég sé að tala um það sama..

Ég lendi mjög oft í því að lenda á milli svefns og vöku, þeas að vera sofandi en samt "vakandi", ligg bara í rúmminu með opin augun og get ekki hreyft mig.. var mjög óþægilegt fyrst þegar þetta byrjaði að gerast en lærði svo á reynslunni að það er best að anda bara djúpt og rólega til að losna úr þessu.. getur verið óþægilegt samt þegar mér finnst eins og einhver standi uppvið rúmmið mitt þegar þetta er að gerast.

Re: Lucid Dreaming

Sent: Mán 27. Feb 2012 17:12
af dandri
J1nx það er sleep paralysis.

Re: Lucid Dreaming

Sent: Mán 27. Feb 2012 17:14
af daniellos333
Kristján skrifaði:byrjaði ferkar ungur að dreyma svona

byrjaði að gera horft i kringum mig, var að dreyma að ég væri að standa upp úr rúminu mínu og labba fram á gang svo byrjuðu fáranlegur hlutirnir að gerast...
jólaskraut far á flugi og pabbi var að setja hænsna net á vegginn hjá okkur og svo vaknaði ég.

eftir þetta ef eg verið i annaðhvort martröðum að hlaupa frá einhverju, eða eitthvað fáranlegt eins og að vera i mech borg á einhverri plánetu.

ég er 24 ára og með öflugt ýmindunarafl og horfi mikið á bíómyndir

soldið síðann ég las um þessa drauma og maður getur þjálfað sig i því að dreyma þá.

prufiði að horfa á superman og fleiri myndir þarf sem það er flogið í þeim.
farið að sofa og slittið klukkuna á 2-3 tíma fresti, gerið þetta um helgi þannig það er ekkert að gera hjá ykkur á daginn eftir.
vonandi dreymir ykkur eitthvað og þá getiði prufað að stjórna eitthvað aðeisn i hvert skipti og á endanum ætuð þið að gera flogið(BARA Í DRAUMNUM EKKI Í ALVÖRUNNI!!!!!)
þetta gæti tekið smá tíma að mastera svo þegar ykkur dreymir eitthvað og eruð meðvitaðir um hann þá getiði gert eitthvað í draumnum.
Kristján skrifaði:(BARA Í DRAUMNUM EKKI Í ALVÖRUNNI!!!!!)
Fjandinn.. :dissed

Re: Lucid Dreaming

Sent: Mán 27. Feb 2012 17:18
af vesley
Lendi stundum í þessu,

Það sem virkar best fyrir mig er að gá hvað klukkan er, því hún er aldrei það sama þegar ég horfi á hana og þá fatta ég að mig er að dreyma.

Hef prufað að býta eins fast og ég get í puttan á mér í draumi og það var virkilega vont :lol:

Hef hinsvegar bara einu sinni staðið upp úr rúminu meðan mig var að dreyma og þá vaknaði ég strax og hafði ekki hugmynd af hverju ég væri ekki lengur í rúminu.

Re: Lucid Dreaming

Sent: Mán 27. Feb 2012 18:00
af AciD_RaiN
Ég næ oft að fljúga en ég þarf að einbeita mér alveg svakalega og það er frekar erfitt... Meira svona svífa. Svo er til hugleiðslutækni sem maður getur upplifað "out of the body experience" en það tekur nokkur ár og mikinn aga til þess.

Re: Lucid Dreaming

Sent: Mán 27. Feb 2012 18:58
af Zpand3x
J1nX skrifaði:veit ekki hvort ég sé að tala um það sama..

Ég lendi mjög oft í því að lenda á milli svefns og vöku, þeas að vera sofandi en samt "vakandi", ligg bara í rúmminu með opin augun og get ekki hreyft mig.. var mjög óþægilegt fyrst þegar þetta byrjaði að gerast en lærði svo á reynslunni að það er best að anda bara djúpt og rólega til að losna úr þessu.. getur verið óþægilegt samt þegar mér finnst eins og einhver standi uppvið rúmmið mitt þegar þetta er að gerast.
Hata þegar þetta gerist.. svo öskra ég eins hátt og ég get í draumnum til að vakna en kem ekki upp orði.

Re: Lucid Dreaming

Sent: Mán 27. Feb 2012 19:16
af Lexinn
J1nX skrifaði:veit ekki hvort ég sé að tala um það sama..

Ég lendi mjög oft í því að lenda á milli svefns og vöku, þeas að vera sofandi en samt "vakandi", ligg bara í rúmminu með opin augun og get ekki hreyft mig.. var mjög óþægilegt fyrst þegar þetta byrjaði að gerast en lærði svo á reynslunni að það er best að anda bara djúpt og rólega til að losna úr þessu.. getur verið óþægilegt samt þegar mér finnst eins og einhver standi uppvið rúmmið mitt þegar þetta er að gerast.
Lenti í þessu í gærkvöldi, skeður við mig af og til en hefur skeð undarlega oft upp á síðkastið. Hélt alltaf að þetta væri vegna súrefnisleysis, svaf oft með andlitið í koddanum, ógeðslegt að lenda í þessu og vera með nefið og munninn oní helvítis koddanum og ná varla andanum.
Hrikalegt í seinustu viku, er byrjaður að sofa á bakinu og ég lenti í þessu. Lá stjarfur og reyndi að hreyfa hendurnar en þær voru bara svo fáránlega þungar, svo heyrði ég fullt af hljóðum hliðin á rúminu en gat ekkert litið til hliðar heldur starði bara beint upp í loftið. Hrikalega varð ég hræddur :(
Ég er byrjaður að sofa á bakinu, heyrði einhverstaðar að það hefði áhrif á drauma fannst það fáránlegt í fyrstu en svei mér þá. Mig dreymir hverja einustu nótt og man þá alltaf! Gæti hinsvegar verið vegna þess að ég er að hvíla :skakkur

Re: Lucid Dreaming

Sent: Mán 27. Feb 2012 19:41
af Kristján
ógeðslegt að lenda i svona köpnunardraumum.

skeði fyrir mig nuna i síðustu viku.

varð allt í einu meðvitaður um að ég var í svona sleep paralysis dæmi og malið er bara að vera rólegur og biða eftir að maður hrekkur upp,

en málið er oftast þegar þetta skeður fyrir mig þá næ ég ekki að brjóta mig alvg úr þessu, þeas ég hrekk við en sofna strax aftur og lendi aftur í þessu nákvæmlega
sama.
svo loksins næ ég að vakan og ligg bara og hugsa eitthvað en þá sofna ég bara og enn aftur skeður þetta

versta sem skeði einu sinni var þegar varð meðvitaður um þetta og varð strax bara rólegur og beið eftir að hrökkva við, maður finnur að þetta stig magnast og svo veit maður að maður á eftir að hrökkva eftir nokkrar sec, en það skeði ekki.... ég hélt að ég væri að fara að hrökkva við en ekkert gerðist, shit hvað ég panicaði þá, ég vaknaði síðann og stóð strax up og fór fram í déskotans sjokki, aldrei lent í þessu eftir þetta reyndar.

Re: Lucid Dreaming

Sent: Mán 27. Feb 2012 19:53
af HalistaX
J1nX skrifaði:veit ekki hvort ég sé að tala um það sama..

Ég lendi mjög oft í því að lenda á milli svefns og vöku, þeas að vera sofandi en samt "vakandi", ligg bara í rúmminu með opin augun og get ekki hreyft mig.. var mjög óþægilegt fyrst þegar þetta byrjaði að gerast en lærði svo á reynslunni að það er best að anda bara djúpt og rólega til að losna úr þessu.. getur verið óþægilegt samt þegar mér finnst eins og einhver standi uppvið rúmmið mitt þegar þetta er að gerast.
Hata þegar ég lendi í því. Er samt fínt ef maður er með eitthvað í gangi í tölvunni :sleezyjoe

Ég fæ líka stundum drauma þar sem ég hef fulla stjórn og stundum vakna ég og ætla að ná í nýja Samsung Galaxy 50000XIIIVMMVÆV25milljón símann sem ég fékk í draumnum.

Mig dreymdi meira að segja um daginn mjög blautann lucid draum. Ég ætla ekki útí smáatriðin en ég spái því að ég fái semi í hvert skipti sem ég sé Sambíó gelluna í framtíðinni hahahaha :'D

Draumar eru magnaðir oft á tímum. Fyrir nokkrum árum dreymdi mig t.d. alltaf sömu draumana aftur og aftur. Þeir voru nokkrir sem enduðu á því að mig blæddi út í endann. Einn var þannig að ég dett fram af hálfgerðri bryggju, lendi á grjóti fyrir neðan og deyj svo hægt og rólega. Ég veit ekki afhverju mig dreymir svona sora en ég hef oft tengt þá við lofthræðslu og hve hræddur ég er við dauðann. Svo var annar þannig að grunnskóla crush'ið mitt hafnaði mér aftur og aftur og aftur.(Helvítis kellingar, enda var hún pólsk)
Annar sem stendur uppúr er að ég dett fram af gler húsþaki, lendi á gleri fyrir neðann og deyj svo hægt og rólega þangað til ég vakna. Þessir draumar hafa hrætt mig rosalega í gegnum tíðina og oft hef ég ekki þorað því að fara að sofa vegna hræðslu um að mig dreymi þennann sora. Get samt þakkað þessum draumum fyrir að ég sé ekki jafn hræddur að deyja fyrir minn tíma og áður.

Ég hef svo oft lennt í því að villst á milli veruleika og draums/fantasíu. Það er alls ekki gaman. Ég vakna þá með allskonar minningar sem hafa þá gerst í drauminum en mér líður samt eins og það hafi allt gerst í alvöruni. Oft er það þannig að þegar ég vakna þá fynnst mér ég vera að dreyma því að minningarnar úr draumnum sjálfum eru svo sterkar. Það tekur mig stundum nokkra daga að komast yfir þetta en oftast er það ekki meira en 1-2 klst sem mig tekur að komast í raunveruleikann aftur. Þetta gerist t.d. ALLTAF í Október-Nóvember og þegar ég er búinn að snúa sólarhringnum við. Í atvinnuleysi og tölvuleikja spili þá er það ekki óalgengt. Þessir draumar sýna mér stundum hve raunveruleikinn er ömurlegur, erfiður og leiðinlegur og ég hef oft orðið mjög þunglyndur í kjölfar þessara drauma. Oft á tímum líður mér eins og þessir draumar séu mun raunverulegri en raunveruleikinn sjálfur og getur orðið virkilega truflandi sérstaklega þar sem ég get stjórnað því sem ég geri. Þessi raunveruleika villa hefur oft gengið svo langt að stundum er eins og ég vakni bara allt í einu úr hálfgerðu black out'i og veit ekki hvort ég sé í raunveruleikanum eða í draumi. Þetta lýsir sér nokkurnveginn þannig að ég veit ekki hvort það sem ég er að gera sé í alvöruni, sjónin breytist og allt verður einhvernveginn öðruvísi. Eins og þegar maður er subbulega fullur nema ég get staðið í lappirnar án svima og sjónin er ekki 'shaky/blurry cam'. Kannski að þetta sé einhver týpa af out of body experience líkt og Acid_Rain minntist á, ég veit það ekki en ég hef nokkrunveginn lært að stjórna þessu þegar þetta gerist.

Þegar ég hugsa útí það hefur mig aðallega dreymt vonda/skrítna drauma síðustu 3-5 árin. Er btw á nítjánda ári, á mjööög erfitt með nám, lesblindur, athyglisbrest, mjög stórt, mikið og virkt ímyndunarafl og með margra ára sögu þunglyndis að baki vegna eineltis og öðrum eins leiðindum.

Re: Lucid Dreaming

Sent: Mán 27. Feb 2012 20:09
af Plushy
Lendi oft í því að tala við fólk um að mæta í vinnuna eða að kennari hafi verið veikur.

Síðan vakna ég og er geggjað jolly að þurfa ekki að mæta í vinnuna eða skólann, veit ekki hvort mig hafi dreymt þetta eða ekki, var svo raunverulegt.

Re: Lucid Dreaming

Sent: Mán 27. Feb 2012 20:26
af Danni V8
Ég kannast við svona. Blautir lucid draumar eru geggjað combination :D

Kannast líka við sleep paralysis. Það gerðist mjög oft hjá mér en ég man ekki eftir að það hafi gerst í langan tíma núna. Mér hefur samt aldrei fundist einhver standa yfir mér að nálægt mér, en það er alveg fokk óþæginlegt þegar þetta gerist.

Re: Lucid Dreaming

Sent: Mán 27. Feb 2012 20:29
af Gummzzi
Danni V8 skrifaði:Ég kannast við svona. Blautir lucid draumar eru geggjað combination :D

Kannast líka við sleep paralysis. Það gerðist mjög oft hjá mér en ég man ekki eftir að það hafi gerst í langan tíma núna. Mér hefur samt aldrei fundist einhver standa yfir mér að nálægt mér, en það er alveg fokk óþæginlegt þegar þetta gerist.
Duudee, u made my day. =D> "Blautir lucid draumar" myndu fullkomna tilveru mína ! :droolboy

Re: Lucid Dreaming

Sent: Mán 27. Feb 2012 20:41
af capteinninn
Mig hefur dreymt þetta nokkrum sinnum. Eitt skiptið náði ég að svífa um, man ennþá eftir tilfinningunni eftir mörg ár.

Spurning um að þjálfa sig í þessu, þessir draumar eru yfirleitt mjög áhugaverðir.

Re: Lucid Dreaming

Sent: Mán 27. Feb 2012 21:13
af halldorjonz
Skemmtilegt þegar þú fattar að þú sért að dreyma, verst að þú vaknar oftast.. Hefur gerst nokkrum x fyrir mig en ekki lengi nuna :(

En seinast þá fattaði ég það og ég svona... ókei snilld, og maður býr til sinn eigin heim bara, og svo finnur maður bara fallega stelpu :troll

Re: Lucid Dreaming

Sent: Mán 27. Feb 2012 21:30
af Bioeight
Mæli með að skoða https://sites.google.com/site/lucidobeastral/ , með því að nota indirect techniques (vakna upp úr svefni, ekki opna augun, ekki hreyfa neitt) þá tókst mér að upplifa þetta í fyrsta skipti í haust. Aðferðin sem ég notaði var að horfa á myndir(Chapter 2- Observing images), mjög einfalt, trickið var bara að ímynda sér að nota augun til að horfa, ekki bara hugsa um eitthvað í huganum.

Ég er ennþá fastur á indirect techniques, en þarf ekki að observa images lengur, ég bara rifja upp tilfinninguna sem ég fékk þegar ég phaseaði í fyrsta skipti. Hún var frekar sérstök, en hún er víst ekki eins fyrir alla.

Re: Lucid Dreaming

Sent: Mán 27. Feb 2012 21:42
af Páll
Ég er einmitt stórfurðulegur á nóttunni...

Stundum "vakna" ég enn er samt sofandi og sé stórar köngulær eða fullt af pöddum út um allt! Ég er með köngulóa/pöddu fóbíu svo að ég hleyp alltaf fram og er þar í svona 2-3 min svo kem ég inn og sé til þess að það sé ekki neitt af pöddum og fer aftur að sofa. Þetta hefur gerst 3 sinnum núna í seinustu viku...alveg ótrúlegt hvað þetta gerist oft!

Finnst þetta svo ógeðslegt, hef gert þetta í nokkur ár, oft 2-3 á viku jafnvel. Eitthver ráð?

Nákvæmlega þetta : http://www.medhelp.org/posts/Sleep-Diso ... how/373466" onclick="window.open(this.href);return false;