Síða 1 af 1

Razer mamba brotin

Sent: Sun 19. Feb 2012 14:01
af AciD_RaiN
Sælir vaktarar. Ég keypti razer mamba mús um mánaðarmótin og af einhverjum ástæðum hefur pinninn sem þrýstir á hægra megin á músinni brotnað af og er fastur inni í músinni. Er einhver sem getur komið með einhverjar hugmyndir? Ég er búinn að vera að reyna að búa til nýjan pinna og líma í en ég er greinilega of vitlaus til þess!!! :mad
Mynd

Re: Razer mamba brotin

Sent: Sun 19. Feb 2012 14:38
af ScareCrow
Farðu með hana og fáðu nýja. Þú fiktar ekki í hlutum sem eru í ábyrgð.

Re: Razer mamba brotin

Sent: Sun 19. Feb 2012 14:49
af AciD_RaiN
ScareCrow skrifaði:Farðu með hana og fáðu nýja. Þú fiktar ekki í hlutum sem eru í ábyrgð.
Ég keypti hana notaða hér á spjallinu og hún er ekki í ábyrgð :crying Er búinn að senda razer tölvupóst til að athuga hvort þeir eigi svona hlíf til að selja mér... Bætti við mynd í fyrsta innlegg

Re: Razer mamba brotin

Sent: Sun 19. Feb 2012 15:50
af worghal
þeger razer mýs eru orðnar ca. árs gamlar, þá fara þær að klikka.
mín razer imperator fór allt í einu að double klikka sjálfkrafa og stundum klikkaði hún ekki neitt.
hún var í ábyrgð og ég fékk henni skipt fyrir corsair m90 :D

Re: Razer mamba brotin

Sent: Sun 19. Feb 2012 15:52
af everdark
Razer gæði..

Re: Razer mamba brotin

Sent: Sun 19. Feb 2012 16:15
af Joi_BASSi!
haltu áfram að reyna að gera nýjan pinna og límdu hann á

Re: Razer mamba brotin

Sent: Sun 19. Feb 2012 16:41
af AciD_RaiN
já ég skal gera það... maður verður bara að vera þolinmóður ;)

Edit: Rústaði henni bara meira en er að tala við einhvern aðila frá Razer á facebook