Síða 1 af 1
Myndir af tilvonandi sjónvarpskassa
Sent: Mán 13. Feb 2012 22:35
af tomasjonss
Eins og tittillinn gefur til kynna er þetta nýr sjónvarpskassi. Reyndar er þetta bara kassinn og eina sem búið er að versla í hann er PSU og kæling. Svo er að finna rest.
Hér eru nokkrar myndir af kvikindinu.
Kassinn var keyptur á 2000kr og svo notast við svart og hvítt sprey sem ég átti á lager.
http://imageshack.us/photo/my-images/38/p9210590.jpg/
http://imageshack.us/photo/my-images/862/p9210589.jpg/
http://imageshack.us/photo/my-images/685/p9210588.jpg/
Re: Myndir af tilvonandi sjónvarpskassa
Sent: Mán 13. Feb 2012 23:33
af AciD_RaiN
Glæsilegt hjá þér

Hvar færðu mótin sem þú ert að nota? Man ekki hvað þetta heitir

Re: Myndir af tilvonandi sjónvarpskassa
Sent: Mán 13. Feb 2012 23:37
af worghal
AciD_RaiN skrifaði:Glæsilegt hjá þér

Hvar færðu mótin sem þú ert að nota? Man ekki hvað þetta heitir

heitir stencil og ég giska á að hann skeri þetta út sjálfur

Re: Myndir af tilvonandi sjónvarpskassa
Sent: Mán 13. Feb 2012 23:40
af tomasjonss
Takk fyrir það.
Hef gaman af því að taka gamla eða rispaða kassa og spreyja þá í einhverju þema. Þarna er t.d. allt kvikmyndatengt.
Stundum hanna ég mótin sjálfur í photoshop. Setti saman tölvu fyrir pabba og spreyjaði hann sjálfan á kassann
Þetta heitir semsé stensill og gomma af þeim á netinu og svo er afar auðvelt að búa þá til sjálfur, nokkrar reglur sem þarf að fylgja eftir svo maður klúðri því ekki. Allt um það á youtube.
Síðan er bara skera út, annað hvort leggja glæru yfir það sem þú prentar eða vera með ágætan pappa
Re: Myndir af tilvonandi sjónvarpskassa
Sent: Mán 13. Feb 2012 23:58
af AciD_RaiN
Ég er einmitt með gamlan Thermaltake Xaser kassa sem er alveg útúr rispaður en ég er bara ekki með aðstöðu tal að spreyja. Væri einmitt gaman að finna sér einhverja flotta stensla og gera hann fínan en gangi þér bara vel með þetta. Þetta er algjör snilld

Re: Myndir af tilvonandi sjónvarpskassa
Sent: Þri 14. Feb 2012 00:08
af tomasjonss
Takk fyrir það

Bara um leið og það er ekki rigning og logn, þá bara skella sér út, en það er kannski til of mikils ætlast að fá þetta bæði á sama tíma en það má halda í vonina.

Re: Myndir af tilvonandi sjónvarpskassa
Sent: Þri 14. Feb 2012 00:12
af AciD_RaiN
tomasjonss skrifaði:Takk fyrir það

Bara um leið og það er ekki rigning og logn, þá bara skella sér út, en það er kannski til of mikils ætlast að fá þetta bæði á sama tíma en það má halda í vonina.

hahahaha... við búum á íslandi vinur

Ertu eitthvað farinn að spá í því hvað skal setja inn í gripinn?
Re: Myndir af tilvonandi sjónvarpskassa
Sent: Þri 14. Feb 2012 01:14
af tomasjonss
Það verður ekkert stórfenglegt, eitthvað sem nær að höndla að dæla HD stöffi inn á flatskjáinn
Re: Myndir af tilvonandi sjónvarpskassa
Sent: Þri 14. Feb 2012 01:23
af AciD_RaiN
tomasjonss skrifaði:Það verður ekkert stórfenglegt, eitthvað sem nær að höndla að dæla HD stöffi inn á flatskjáinn
Endilega skelltu inn lista þegar þú ert búinn að ákveða/kaupa
