Síða 1 af 1
Val á USB kubb?
Sent: Mán 13. Feb 2012 17:12
af Glazier
Keypti fyrir nokkrum mánuðum 16gb SanDisk USB kubb hjá bestbuy í USA og sá kubbur er hreinlega bara gallaður, skelfilegur flutningshraði (30-40mín að flytja 700mb bíómynd).
Þannig ég ætla að versla mér nýjann núna og hann þarf að vera á bilinu 8-16gb (má vera stærri en vil frekar fá góðann usb kubb heldur en stórann).
Vil helst hafa hann fyrirferðalítinn þannig það er ekkert roslaegt magn sem kemur til greina.
Var að skoða svona í dag:
http://budin.is/usb-minnislyklar/660054 ... 04169.html" onclick="window.open(this.href);return false;
Lítill og flottur kubbur en ég finn bara ekkert um flutningshraðann á þessu dóti?
Eitthvað annað sem ég ætti frekar að taka, vil reyna að miða við ca. 5000 kr.
Re: Val á USB kubb?
Sent: Mán 13. Feb 2012 18:43
af einarhr
Er búin að eiga 8gb Kingstone DT Mini Slim í 3 ár, hefur reynst mér mjög vel.
http://usbspeed.nirsoft.net/?pdesc=King ... 5&pid=5647
Re: Val á USB kubb?
Sent: Mán 13. Feb 2012 18:48
af KC109
http://www.amazon.com/gp/product/B005HZ ... 00_details" onclick="window.open(this.href);return false;
þessi lítur ágætlega út
ég fæ hann 24.feb en ég held að það væri sniðugt að panta einn svona
þessi kostar 16.900 í Tölvutek en hann er 10þ. krónum ódýrari fyrir utan flutningskostnað á amazon.com
Re: Val á USB kubb?
Sent: Mán 13. Feb 2012 18:52
af Magni81
Ég lenti í þessu sama, að kaupa einhvern Sony usb lykil á E-bay sem reyndist vera með glataðann hraða...
Þannig að ég keypti einn svona hérna heima,
http://usb-flash-drive-review.toptenrev ... eview.html" onclick="window.open(this.href);return false;
hann fær fína dóma þarna.
Hann er 32GB úr Tölvulistanum á tilboði núna 8900kr.
http://tolvulistinn.is/vara/24589" onclick="window.open(this.href);return false;
Re: Val á USB kubb?
Sent: Mán 13. Feb 2012 23:49
af Glazier
Finnst þessi bara svo stór (fyrirferðamikill) vil geta haft þetta á lyklakippunni minni (ooog svo er hann USB3)
Valið stendur eiginlega á milli þessara tveggja:
http://tolvulistinn.is/vara/24563" onclick="window.open(this.href);return false;
http://tolvulistinn.is/vara/24581" onclick="window.open(this.href);return false;
Og ég tæki þá annan hvorn kubbinn í 8 eða 16gb.
SanDisk kubburinn er jafn lítill en miklu þynnri og örlítið ódýrari.
Hinn er svoldið sterkbyggðari og félagi minn á svoleiðis sem hefur farið nokkrum sinnum í þvottavélina og lifir enn, en hann kostar örlítið meira.
Re: Val á USB kubb?
Sent: Þri 14. Feb 2012 00:20
af AciD_RaiN
Ég á þennan 16gb lykil og er með allt til uppsetninga á tölvum á honum plús allt overclocking dótið mitt og hann er alveg að endast vel og vinnur mjög vel

Ég var samt svolítið hræddur um að hann myndi verða fyrir einhverju hnjaski því það er engin hlíf framan á honum þannig ég tók bara usb plug úr einhverju ónýtu rusli og setti yfir...
Re: Val á USB kubb?
Sent: Þri 14. Feb 2012 00:23
af Glazier
Þokkalega góður flutningshraði?
Re: Val á USB kubb?
Sent: Þri 14. Feb 2012 00:24
af BO55
http://www.att.is/product_info.php?cPat ... ts_id=7509" onclick="window.open(this.href);return false;
Ekki spurning. Er með svona, hrikalega hraðvikur. Fátt meira óþolandi en hægvirkir USB lyklar
Las ekki almennilega fyrir ofan... en allavega stend við þetta

16GB líka til á 5000 kall.
Re: Val á USB kubb?
Sent: Þri 14. Feb 2012 00:25
af AciD_RaiN
Glazier skrifaði:Þokkalega góður flutningshraði?
Já ég myndi segja það. Var alltaf með lítinn sata flakkara fyrir og verð að segja að flutningshraðinn á lyklinum er betri

Re: Val á USB kubb?
Sent: Þri 14. Feb 2012 00:40
af Steini B
Tók að gamni mínu tímann að færa mynd sem er 1,51 gb yfir á Corsair Voyager 32GB USB 3,0
40sec á USB 3,0 tengi
53sec á USB 2,0 tengi
Re: Val á USB kubb?
Sent: Þri 14. Feb 2012 00:43
af Glazier
Hugsa að ég endi bara á að kaupa þennan (nema 16gb).
http://tolvulistinn.is/vara/24581" onclick="window.open(this.href);return false;
Re: Val á USB kubb?
Sent: Þri 14. Feb 2012 00:47
af AciD_RaiN
Corsair eru heldur ekki frægir fyrir að klikka

Re: Val á USB kubb?
Sent: Þri 14. Feb 2012 10:36
af dori
Ég hef reyndar ekki gert eitthvað benchmark á honum og veit því ekki hraðann en ég á
svona og hann er mjög lítill og hefur reynst mér mjög vel (hann er það fljótur að ég verð ekki pirraður á því að færa gögn inná hann, hann er semi fullur núna).
Re: Val á USB kubb?
Sent: Þri 14. Feb 2012 10:44
af lukkuláki
Re: Val á USB kubb?
Sent: Fös 17. Feb 2012 12:12
af tomas52
dori skrifaði:Ég hef reyndar ekki gert eitthvað benchmark á honum og veit því ekki hraðann en ég á
svona og hann er mjög lítill og hefur reynst mér mjög vel (hann er það fljótur að ég verð ekki pirraður á því að færa gögn inná hann, hann er semi fullur núna).
x2
algjör snilld keypti svona á útsölunni í tölvutek og ekkert nema reynst mér vel
Re: Val á USB kubb?
Sent: Fös 17. Feb 2012 16:31
af frr
Eitt sem ég hef tekið eftir er að fólk hefur fengið skelfilegan hraða á usb tengjum á framhlið tölva, en svo reynist þetta í fínu lagi ef tengt er í aftan í móðurborðið. Stafar af lélegum köplum úr móðurborði og fram í.